Frjáls verslun - 01.11.1979, Page 13
ordspor
Eins og blöð skýrðu frá gerðist það nú
fyrir skemmstu að rannsóknarlögregla
ríkisins hóf umfangsmikla athugun á við-
skiptum eins af stœrri bílaumboðunum,
þar sem grunur lék á að þinglýsing skjala,
sem viðskiptamenn fyrirtœkisins höfðu
greitt, hefði raunverulega aldrei farið
fram. Það vakti athygli manna, sem fylgzt
hafa með frásögnum œðstu yfirvalda
dómsmála um seinagang í kerfinu og
áratuga langan drátt á afgreiðslu mála, að
svo mikill kraftur skyldi vera settur íþetta
tiltekna mál af hálfu rannsóknarlögregl-
unnar. Skýringin mun sú, að rannsókn-
arlögreglustjórinn sjálfur var aö ,' aupa bil
af umboðinu og saknaði þinglýsingar-
stimpla, sem hann var búinn að borga
fyrir.
Á undanförnum vikum hefur sú hug-
mynd verið sett fram hvað eftir annað í
fuliri alvöru, að bezt væri að rífa mann-
virkin við Kröflu og selja draslið úr landi.
Þessar bollaleggingar hafa verið einn
liður í því að auðmýkja Jón Sólnes, fyrr-
verandi formann Kröflunefndar, svona
rétt fyrir kosningar. Þeir, sem þekkja
gleggst til tæknilegu hliðar málsins segja,
að ástand Kröfluvirkjunar sé talandi
tákn um pólitískt hugleysi. í nágrenni
San Francisco í Bandaríkjunum eru
a.m.k. 10 „Kröflur“ í fullum gangi á einu
mesta jarðskjálftasvæði veraldar. Þær
gufuaflsstöðvar hafa þurft að ganga í
gegnum barnasjúkdómaskeið með sízt
minni erfiðleikum en verið hafa við
Kröflu. Þess er því beðið með nokkurri
eftirvæntingu að sjá hvaða stjórnmála-
menn það í raun og veru eru, sem ætla að
taka á sig þá ábyrgð að hafa ekki kjark til
að Ijúka verkefninu við Kröflu.
Flugleiðir hafa haft í hyggju að endur-
nýja flugvélaflota sinn í innanlandsflugi
að einhverju leyti með minni flugvélum en
Fokker Friendship, sem vœru hagkvœm-
ari í rekst/i á stytztu flugleiðum og þeim
fáförnustu. Sérstaklega hafa augu Flug-
leiðamanna éeinzt að kanadískum flug-
vélum, sem nafa verið hannaðar sérstak-
lega fyrir stuttar vegalengdir og erfið
flugvallaskilyrði. Vélar af gerðinni
Mohawk 298, 28 sœta eru taldar koma til
greina. Þá herma fréttir að dótturfyrir-
tœki Flugleiða, Air Bahama, hafi fest
kaup á breiðþotu af gerðinni Boeing 747
til notkunar í leiguflugi fyrir A ir India.
Nýtt kvikmyndahús mun senn rísa í
Breiðholtinu. Á sínum tíma var lóð undir
bíó og kvikmyndunarstúdíó úthlutað til
fyrirtækisins Edda Film í svonefndri
Mjódd en ekki hefur orðið af fram-
kvæmdum af þess hálfu. Þessi kvik-
myndahússlóð verður auglýst til endur-
úthlutunar og er talið, að Laugarásbíó
hafi áforni um að færa út kvíarnar og vilji
sjá Breiðholtsbúum fyrir bíósýningum.
13