Frjáls verslun - 01.11.1979, Side 21
Það ber margt á góma, þegar húsmæðurnar t Brelðholtlnu helmsækja Bðrð fisksala á morgnana og ræða
vlð hann um daglnn og veglnn um lelð og soðningln er keypt.
Rætt við Bárð Árna
Steingrímsson fisk-
sala, um málefni fisk-
sala og öflun fisks á
Reykjavíkursvæðinu
Fisksala á höfuðborgarsvæöinu
hefur ekki verið lengi í brennidepli.
Þegar litið er aftur í tímann minnist
maður þeirra daga, þegar maöur
átti í engum erfiðleikum með aö ná
sér í glænýjan fisk í soðið. Nú
koma aftur á móti fyrir þeir dagar
að hreint engan .fisk er að fá nema
þá kannski saltaðan. í viötölum við
fisksala kemur í Ijós að æ erfiðara
er fyrir þá að útvega nýjan fisk.
Landinn vill líka ekkert annað en
ýsu eða ýsuflak og matreiðslan er
yfirleitt hin sama, steikt eða soðið.
Fæstir hafa lagt sér til munns
karfa, keilu, löngu og telja má
raunar upp flestar þær fiskteg-
undir sem við veiðum. Fæstar
þeirra leggjum við okkur til munns.
Frjáls verslun kynnti sér fyrir
skömmu málefni fisksala. Viðmæl-
andi okkar var Bárður Árni Stein-
grímsson, en hann rekur Fiskmið-
stööina í Fellagöröum í efra Breið-
holti. Hann er varaformaður Fisk-
salafélags Reykjavíkur og ná-
grennis.
Bárður er ungur maður. Hann er
stýrimaður að mennt og hefur alið
allan sinn aldur við sjávarútveg.
Þess má hér geta að faðir hans er
Steingrímur Bjarnason sem rekur
fiskbúðina í Grímsbæ.
Langur starfsdagur
„Starfsdagurinn byrjar oftast
mjög snemma," sagði Bárður er
við báðum hann að segja frá
starfsdegi fisksalans. „Hafi verið
bræla undanfarið þá fer maður
niður á höfn um fimm til sexleytið á
morgnana og kannar hvort ein-
hver togari hafi komið inn, og sé
svo athugar maður hvort hann hafi
einhvern neyslufisk. Þá hefur
maður samband við skipstjóra og
útgerðarmann og falast eftir
kaupum. Oft kemur það nú fyrir að
Erfitt með
fisköflun í
Reykjavík
yfir
vetrartímann
lítill neyslufiskur er um borð og þá
bítast fisksalarnir um hann. Hinir
fyrstu fá vanalega allt en hinir síð-
ustu ekkert.
Annars hefur Bæjarútgerð
Reykjavíkur sýnt fisksölum þann
skilning aö selja okkur alla þá ýsu
sem togararnir hafa komið inn
með, en vegna veiðitakmarkana
21