Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Síða 23

Frjáls verslun - 01.11.1979, Síða 23
hafa togararnir komið meö ansi litla ýsu inn síðustu mánuðina." — Hvernig fariö þið annars að? ,,Við leggjum leið okkar yfirleitt um Suðurnesin og reynum aö snapa okkur þann fisk sem við getum, en það hefur í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir fisk- búðirnar, bensínkostnaður o.fl. Það er auðvitað línufiskur sem fólk vill, enda fær hann besta meðferð. Hann er oftast sóttur til Keflavíkur, Grindavíkur eða Sandgerðis." Auðveldari hráefnisöflun yffir sumartímann — Er ekki hráefnisöflunin mis- munandi eftir árstíðum? ,,Jú. Það er miklu auðveldara aö fá góðan fisk yfir sumartímann heldur en vetrartímann. Hér í Reykjavík eru gerðar út nokkrar trillur yfir sumartímann og bjarga þær málunum að mestu leyti. Einnig var 200 tonna bátur geröur héðan út og aflaði hann fyrir fisk- sala. En yfir vetrartímann er engin smábátaútgerö og verðum við því að reiða okkur á togarafiskinn eða Suðurnesjabátana." Hefur samninga við tvo báta — Hefur.þú einhverja samninga við Suðurnesjabáta? ,,Já. Ég samdi viö tvo báta um að kaupa allan afla annars þeirra og af hinum bátnum kaupi ég allan aflann úr öðrum hverjum róðri á móti öðrum fisksala. Bátarnir koma að landi kl. 10—11 á kvöldin og þegar heim er komið með afl- ann er vinnudagurinn orðinn ansi langur hjá manni." Erfitt að reka fiskbúð — Hvernig er að reka fiskbúð á þessum verðbólgutímum? ,,Það er síður en svo hagstætt. Rekstrarkostnaöur hefur hækkað ofboöslega síðustu mánuði. Ég hafði starfsmann fyrri part ársins, en ég verð að segja honum upp. Fiskbúðin hafði hreinlega ekki efni á að halda starfsmanni." — Hvað hefurðu starfað lengi sem fisksali? „Ætli það séu ekki orðin sex ár. Á þessum tíma hefur fisksalan minnkað um 50% gæti ég best trúað. Aö auki hafa kjörbúöirnar tekið nokkurn hluta fiSksölunn- ar. Mér finnst þetta miður vegna þess að ég veit að fiskurinn verður með þessu móti dýrari, en ég er ekki trúaður á það, að fólk geri sér grein fyrir því." — Hefur þá fisksölum fækkað? „Eflaust hefur þeim eitthvað fækkað en þaö sem máli skiptir fyrir fisksalastéttina er að í hana hafa á undanförnum árum komið ungir menn og áhugasamir. Þessir menn eru harðduglegir og leggja mikið kapp á aö útvega góðan fisk, enda hefur það sýnt sig að það er betra og meira úrval í fiskbúðun- um nú en áður. En þessi ósérhlífni sem þessir menn sýna, hlýtur að skilja eftir sig spor. Menn endast ekki lengi með því að vinna 16—18 tíma á sólarhring." Fisksalafélag Reykja- víkur og nágrennis Eins og áður sagði er Báröur varaformaður Fisksalafélags Reykjavíkur og nágrennis. Til- gangur þessara samtaka fisksala segir Bárður vera að gæta hags- muna félagsmanna. Félagsstjórn kemur fram fyrir hönd félagsins fyrir verðlagsstjóra. Þess má einn- ig geta að Fisksalafélagiö er aðili að Vinnuveitendasambandi (s- lands. „Fiskverð verður að vera sem frjálsast“ Við sþurðum Bárö um verðlagn- ingu á neyslufiski. Hann sagði að verðlagningin þyrfti að vera sem frjálsust. „Stundum kemur góður fiskur og stundum ekki eins góður og það er út í hött að verðleggja hann eins. Þess vegna verður fisksalinn aö hafa leyfi til að verð- leggja fiskinn sjálfur og auðvitað aö greiða það verð fyrir hann sem honum finnst og seljandinn sam- þykkir." „Unga fólkið vill jafnvel trosið“ Við báðum Bárð að lokum að segja okkur frá því sem hann hefur á boðstólum dags daglega. „Þar kennir margra grasa," sagði Bárður. „Það er auðvitað ýsan, flökuð, nætursöltuð, reykt, og svo auðvitað heil. Ann- ars er þetta skata, saltfiskur, kinn- ar og gellur. Rauðspretta, smá- lúóa og stórlúða. Siginn fiskur og sigin grásleppa. Saltsíld, ný síld og fiskfars. Hákarl og rækja. Ufsi og langa eftir pöntunum, og alltaf skötuselur og tindabykkja. Síðan er ég með hrogn og lifur eftir ára- mótin." — Fyrir utan ýsuna kaupir ekki aðeins eldra fólk hinar tegundirn- ar? „Nei, blessaður vertu. Unga fólkið kaupir alveg eins trosið, saltfiskinn, gellurnar og kinnarnar, en því miður ekki eins mikið lúð- una, hún er kannski of dýr." Úrvallð af flskmetl hjá flsksölum í höfuðborglnni er oft á tfðum fremur fábrotið vegna margvfslegra örðuglelka við öflun þess. 23

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.