Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 21
„Afkoman er viðunandi miöaö viö aö tap hefur veriö á rekstrinum undanfarin ár,“ segir Höröur Sigurgests-
son.
ftir fimm ára taprekstur
þannig til komin, aö Eimskip
seldi skip seint á árinu 1982.
Það fé, sem fyrir það fékkst,
munum við nota til að fjárfesta í
öðru og nýju skipi. En salan
gerir það að verkum, að
greiðslustaðan gefur e.t.v.
betri mynd en raunverulegt er.
— Eru það einhverjir sér-
stakir þættir í starfseminni,
sem þú þakkar öðrum fremur
þessa góðu afkomu?
— Það er einkum tvennt,
sem við þökkum þessa af-
komu, sem við þó teljum ekkert
sérstaklega góða. Hún er við-
unandi miðað við það, að tap
hefur verið á rekstrinum und-
anfarin ár. Það er því ekkert
sérstakt þó hér sé tæplega 8
milljón kr. hagnaður. Þessari
viðunandi afkomu ræður góö
nýting á skipunum einkum fyrri
hluta ársins 1982 og þarna er
einnig að koma í Ijós árangur af
ýmis konar hagræðingarað-
gerðum og breytingum á
rekstri, sem að hefur verið
unnið í fyrirtækinu um skemmri
og lengri tíma.
— Hvað skaparöðru fremur
góða nýtingu? Eða er hún til-
viljun?
— Það er fyrst og fremst
uppbygging flutningakerfisins,
sem ræður nýtingu skipastóls-
21