Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 73
dæmis 15% minni það sem af er
þessu ári, en var á sama tíma í
fyrra. Þaö væri þá helst að þaö
vantaði ódýrari gistimöguleika
hér. Undanfarið hefur það
stóraukist að ferðamenn fari
þeint út á land, án þess að hafa
viðdvöl í Reykjavík. Þetta er
sennilega meðal annars vegna
þess aö hótelin úti á landi
bjóða mun lægri verð. Það er
mjög eðlilegt ef tekið er tillit til
þjónustunnar sem þar býðst
samanborið við Reykjavík. En
þessi þróun er síður en svo
æskileg fyrir hótelin hér í borg-
inni.“
Skýrslan ergott mál
Hvernig líst þér á hótel-
skýrsluna sem unnin var á
vegum Ferðamálaráðs?
,,Þessi skýrsla er gott mál.
Það getur oft verið betra að fá
utanaðkomandi aðila til að
gera slíka úttekt, því glöggt er
jú gests augað. Margt var
ágætt sem þarna kom fram, en
einnig töluvert af villum í
skýrslunni. Þetta voru alls ekki
óeðlilegar kröfur sem settar
voru fram og flest af þessu
framkvæmanlegt. En þá er aft-
ursþurning um peninga.“
Hvað var það helst sem þótti
vanta?
,,Þaö var reyndar ýmislegt
og mjög misjafnt eftir hótelum.
Aöallega eru það ýmis tæki
sem vantar. Vel búið ráð-
stefnuhótel þarf að hafa sér-
staka ráðstefnusali, með góðri
lýsingu, fullkomiö magnara- og
upptökukerfi og helst ættu aó
vera sérstök borð og stólar.“
Er það þess virði að leggja út
í mikinn kostnað til að laða
hingað fleiri ráðstefnur?
,,Já, ég held aó þessi mark-
aður lofi það góöu að sú fjár-
festing mundi skila sér afar
fljótt. En það vantar sárlega
stóraukinn skilning á mikilvægi
þessa þáttar í íslenskum ferða-
málum. íslensk hótel hafa ekki
bolmagn til að standa í slíku
upp á eigin spýtur, til dæmis að
gera það markaðsátak sem
þyrfti að gera. Vonandi fer
þessi skilningur aö aukast í
framhaldi af vaxandi umfjöllun
um þessi mál.“
Verum ófeimin
Einhverlokaorð?
,,Já, mérfinnstaö menn þurfi
að vera opnari fyrir nýjungum
og vera ófeimnir við að troða
nýjar slóðir við landkyningu á
íslandi. Þó gömlu góðu Geys-
ismyndirnar standi enn fyrir
sínu, þá er okkur nauðsynlegt
að prófa nýjar leióir í land-
kynningu. Ég get nefnt sem
dæmi, auglýsinguna frægu
sem Flugleiðir voru með fyrir
helgarferðir frá Stokkhólmi til
(slands. Hún olli svo sannar-
lega umtali og hefur skilaö ár-
angri. Ný liðinn vetur er sá þriöji
sem þessar helgarferðir eru í
boði og bara núna í vetur
komu hingað 3000 ferðamenn
frá Bretlandi og Norðurlönd-
unum í slíkum helgarferöum.
Þetta setti skriðu af stað og
mætti gjarnan vera hvatning til
frekari nýjunga í ferðamálum
og landkynningu.“
mest selda
tímaritiö
Áskriftarsímar 82300 og 82302
73