Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 78
G. Hinriksson flytur inn ým-
islegt fleira, svo sem viðhalds-
og fylgiefni fyrri vélar. t.d. tectyl
ryðvarnarefni. Og eitt er það
sem haslar sér æ meiri völl en
það eru bílalyftur til nota á bif-
reióaverkstæóum. Hægt er að
fá bílalyfturnar af öllum stærö-
um og gerðum. Léttist brúnin á
bifvélavirkjum við að fá slík
tæki. því aðstaðan er engan
veginn sambærileg við gömlu
gryfjuaðferðirnar. f Danmörku
er það til dæmis orðin algjör
undantekning að sjá slíkar
gryfjur á bifreiðaverkstæðum.
Bifvélavirkjarnir hreinlega
neita að fara ofan í þær. Er
svipuð þróun að fara af stað
hér.
Danska fyrirtækið Stenhoj,
sem framleiðir bæði loftpress-
ur og bílalyfturnar er mjög stórt
á þessu sviði. Velta þeirra á
síðasta ári var nálægt 200
milljónum króna og 75% af
framleiðslunni var flutt út til
tæplega 90 landa. Þar af fara
um 30% á markað á Norður-
löndunum. Um 300 starfsmenn
vinna hjá verksmiðjunum og ná
þær yfir 25 þúsund fermetra
landssvæði.
G. Hinriksson hf. hefur nú
stækkað verulega við sig hús-
næðiðá Skúlagötunni, þarsem
skrifstofur, söludeild og við-
gerðarþjónustan eru til húsa.
Er nú komin fyrirtakssýningar-
aðstaða í söludeildinni á jarð-
hæðinni og eru stefnt aó því að
öll afgreiðsla geti gengið fljótar
fyrir sig eftir þessar breytingar.
Framkvæmdastjóri G. Hin-
riksson hf er Sigurður Kr. Sig-
urðsson, en stofnandi þess
og stjórnarformaður er Gylfi
Hinriksson.
Frjáls-
verslun
Áskriftar-
símar
82300
82302
Ferðamenn
Vöruhúsiö Hólmkjör er ein stærsta verslunin í Stykkis-
hólmi. Versiun sem býður uppá nýlenduvörur, heimilis-
tæki, fatnað og m.fl.
Hafi eitthvað gleymst, sem þú ætlaðir að hafa í ferðalagið,
þá má gera ráð fyrir að við getum eitthvað fyrir þig gert.
Tehúsið er kvöld- og helgarsala, sem er opin allan ársins
hring, en auk þess er Tehúsið opið frá kl. 1—23 yfir
sumartímann.
VERIÐ VELKOMIN
VÖRUHÚSIÐ HÓLMKJÖR
Stykkishólmi : Sími 93-8304
78