Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 64
erlent
Coca Cola veðjar á Hollywood
Roberto Goizeta, 51 árs, varð forstjóri Coca Cola Company 1980 og
hefur sett mikinn og breyttan svip á fyrirtækið síðan.
Gosdrykkjarisinn, Coca-Cola Company er nú að
hasla sér völi á nýjum sviðum og ber þar hæst
skemmtanaiðnaður, matvæli og vín. Markaðurinn
fyrir gosdrykki er nú óðum að mettast og því leitar
Coca-Cola inn á ný svið með kaupum á fyrirtækjum í
öðrum greinum eða samstarfssamningum. Kvik-
myndir, sjónvarp og myndbönd eru svið, sem Coca-
Cola forstjórinn, Roberto Goizeta, hefur fyrst og
fremst augastað á. Goizeta er borinn og barnfæddur
Kúbani og flýði þaðan undan Castro.
Liza Minelli var ekki laus við varpsáhorfendur sáu, þegar
taugaóstyrk, eins og sjón- hún hóf kynningu á úthlutun
Oscarsverðlaunanna í Holly-
wood í apríl sl. Önnur persóna,
líklega ekki minna spennt var
þar einnig stödd, en eftir því
sem leið á kvöldið og fleiri
gylltum styttum var deilt út
andaði sá og hinn sami léttar
þar til aö honum fannst hann
vera raunverulegur sigurvegari
kvöldsins.
64