Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 16
ingur hefur nýlega keypt flug-
vél af Japönum, til reksturs frá
Luxemborg, og tiltölulega
auðvelt er fyrir einstaklinga að
fjárfesta í farskipum um þessar
mundir. Yfirbygging slíkra
,,fyrirtækja“ er þá nánast engin
til aö byrja meö, og dæmin geta
gengið upp fáist verkefni fyrir
tæki þau sem keypt hafa verió.
Hér eru íslendingar í auknum
mæli aö verða þátttakendur í
alþjóðlegum viðskiptum, þar
sem ekki er spurt um þjóðerni
manna eða heimaland, heldur
hvaða viðskipti þeir hafa að
bjóða.
Góð menntun og reynsla
íslendinga
Eftir aó hafa um aldir verið
þiggjendur í alþjóðlegri verslun
og fjölþjóða viðskiptum, eru ís-
lendingar nú smám saman að
verða sjálfum sér nægir á
þessu sviði, og þegar teknir að
veita öórum þjóðum ýmsa
þjónustu. íslenskir menn í við-
skiptum hafa engu minni
reynslu en menn frá ná-
grannaþjóðunum, og menntun
í viðskiptafræðum er hér á
landi síst minni en til dæmis á
hinum Norðurlöndunum. Þetta
geta íslendingar nú nýtt sér í
samkeppni við aðra, og ef til vill
verður þess skammt að bíða aö
,,töskuheildsalar“ komi hingað
til lands, setji upp ,,söluskrif-
stofur“ á einhverju hótelanna,
og græði á tá og firngri á því
sem íslendingum væri í lófa
lagið að gera sjálfir. Milliliðir í
þessum viðskiptum taka til sín
umtalsvert fjármagn, sem bæöi
er greitt af framleiðendum vöru
eða greiðendum þjónustu og
vöru. Augljós hagkvæmni fylgir
því fyrir íslenskt þjóðarbú að
landsmenn annist sem mest
af milliliöaþjónustunni fyrir
innanlandsmarkað sjálfir, og
reyni um leió að hafa hagnað af
að annast þessa þjónustu fyrir
aóra.
Ekki viröist óskynsamlegt að
íslensk stjórnvöld hafi um það
forgöngu, að auðvelda íslend-
ingum að stunda slíka alþjóð-
lega starfsemi héðan að heim-
an, of lengi hefur verió lagður
steinn í götu þeirra er vilja hafa,
dugnað og þor til að leggja út í
áhættusaman rekstur á alþjóð-
legum mörkuóum.
Áskriftasíminn er 82300
Frjáls verslun
Benzín- og olíustöð
ESSO OLÍS SHELL
við Aðaigötu Stykkishóimi sími 93-8254 og 93-8286
Alhliöa ferðamannaverzlun
tsso
SALA Á BENZÍNI OG OLÍUM ^
ALLS KONAR FERÐAVÖRUR 'Li' Shell
ÖL, SÆLGÆTI, ÍS, HEITAR PYLSUR OG FL.
FERÐAMENN! VERIÐ VELKOMIN
16