Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 57

Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 57
rlögmál og félagslegir fordómar og reksraröryggi yfirleitt íbeinu hlutfalli við það sem notandinn borgar, stundum í öfugu hlut- falli. I sjálfu sér er þetta sama ástand og er enn ríkjandi í Bandaríkjunum þótt ástæð- urnar fyrir því séu ef til vill ann- ars eðlis, jafnvel til ídæminu að íslendingar hafi misskilið hlut- verk mikrótölvanna og trúað því að þær gætu komið í stað minitölva. Það er heldur ekki fráleitt að áhugamenn með tölvudellu hafi ofmetið getu mikrótölvanna eða haft oftrú á þeim forritum sem á boðstólum hafa verið. Eftir: Leo M. Jónsson, rekstrartæknifræðing. Örtröö á míkrómarkaði — vaxandi sölumennska í minitölvum Enginn vafi er á því að mark- aður fyrir míkrótölvur er vax- andi og á eftir að verða veru- legur innan fárra ára. Það er hins vegar ekkert útlit fyrir að mikrótölvur vinni markað af minitölvum nema þá að ein- hverju óverulegu leyti. Tölvu- seljendum er að verða þessi staðreynd Ijós og hafa því farið að einbeita sér að afmörkuðum sviðum þar sem mikrótölvan hefur ótvíræða möguleika. Fram að þessu hefur ríkt einn allsherjar glundroði á míkró- markaðinum, þar sem misk- unnarlaust hefur verið blandað saman leikföngum og atvinnu- tækjum og leikfangasalarnir hafa jafnvel staðið í þeirri trú að þeir væru í samkeppni við þá sem selja minitölvur, það er því engin furöa þótt ýmsir hafi tekið sölumönnum með ákveðnum fyrirvara. Þetta hef- ur einnig bitnað á þeim fyrir- tækjum sem hafa tekið réttan pól í hæðina og einbeitt sér að því að selja vönduð mikró- tölvukerfi til nota í fyrirtækjum en þau fyrirtæki hafa lagt á sig verulegar byrðar við að koma upp nægilega góðum hugbún- aði, annað hvort upp á eigin spítur eða í samvinnu við sér- hæfða aðila á kerfisfræðisviöi. Þessi fyrirtæki hafa átt erfitt uppdráttar, sérstaklega vegna þess aó þau hafa fjárfest í nauðsynlegum undirbúningi en fengið takmarkaóa fyrir- greiðslu í bönkum enda skilja bankamenn hérlendis ekkert annað en það sem lyktar af slori eöa kúamykju, — þ.e. hinn hefðbundni forgangur sem sjávarútvegur og land- búnaöur hefur þegar fjár- magna á fyrirtæki. Markaður minitölvanna er mun stöðugri, enda hafa þau fyrirtæki sem selja minitölvur slitið barnsskónum, hugbún- aður er orðinn þróaður fyrir ís- lenskar aðstæður og hugbún- aðarþjónusta komin í fastar skorður. Á þessum markaði ber IBM höfuð og herðar yfir aðra og er það engin furða þegar það er haft í huga að fyrirtækið er útibú frá IBM World Trade Corporation og því óháð forsjá hins íslenska fjárskömmtunarkerfis og feng- ið að byggja sig upp eins og alvöru fyrirtæki sem býður vandaða vöru og skipulagða þjónustu. Sem betur fer hefur einu íslensku fyrirtæki tekist aö skapa IBM nauðsynlega sam- keppni en það er Kristján Ó. Skagfjörð Hf sem selur mini- tölvur frá Digital Equipment Corporation og er furðulegt hvað þeim hefur tekist að gera í þessu þjóðfélagi rekstrarfjár- skortsins. Fram að þessu hafa þessi tvö stóru fyrirtæki fyrst og fremst sinnt þeim markaði sem opinberar stofnanir og stærri fyrirtæki í þjónustu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.