Frjáls verslun - 01.03.1985, Page 53
VERSLANIR
Allt að 75 verslanir í nýja
„Hagkaupshúsinu”
Texti: Jóhannes Tómasson/Myndir Loftur Ásgeirsson.
Fyrirtækiö Hagkaup í Reykja-
vík undirbýr nú byggingu nýs
verslunarseturs í Reykjavík.
Veröur þaö staösett í Kringlu-
mýri, nýja miöbænum í Reykja-
vík. Hér er um að ræða nýjung
hér á landi, stórt verslunarhús
þar sem Hagkaup verður til húsa
meö allan rekstur sinn og allt aö
75 aörar verslanir aö auki.
Segja má að hér sé um heila
verslunargötu aö ræöa, yfir-
byggða götu, enda veröa þarna
torg og stræti undir þaki og
verslanir á báða bóga.
Búiö er aö teikna þessa versl-
unarsamstæðu og eru fram-
kvæmdir hafnar. Gert er ráð fyrir
að fyrri hlutinn verði tekinn i notk-
un á miöju ári 1987. Þar er um að
ræða tvær verslunarhæöir sem
Hagkaup er til husa, 3700 fer-
metrar hvor auk liðlega 1200
fermetra skrifstofuhæðar fyrir-
tækisins og á 11 þúsund fer-
metrum til viöbótar yrðu 50 aörar
verslanir til húsa. i síðari áfanga
bætast við um 5 þúsund fermetr-
ar, en þar er gert ráð fyrir aö rými
sé fyrir um 25 verslanir til viðbót-
ar.
Margs konar verslanir
Þegar hefur verið áætlað hvers
konar verslanir verða í um 95%
húsnæðisins, en reynt verður að
halda opnum nokkrum möguleik-
um. Verður reynt aö hafa sem
flestar gerðir verslana, og má
sem dæmi nefna að á neðri hæð-
inni eru ráðgerðar rafmagns- og
heimilistækjaverslun, hljómplötu-
verslun, skóverslun, tiskuversl-
un, teppaverslun, búsáhald-
averslun, blómaverslun, heilsu-
fæðiverslun og verslun meö
gjafakonfekt og tóbak. Á efri
hæðinni er ráðgert að hafa tisku-
Líkan af Hagkaupshúsinu ásamt nærliggjandi byggingum í Kringlumýrinni. Lengst til hægri má sjá Hús verslun
arinnar og langa húsiö vinstra megin og fyrir miöri mynd er Hagkaup með öllum tilheyrandi verslunum.
51