Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 21
hefur nú tekið við af öllum þessum,
þ.e.a.s. Smjörlíki hf.
Sanitas og Sana á Akureyri hafa
verið sameinuð í eitt fyrirtæki.
Vélsmiðjan Hamar sameinaðist
Stálsmiðjunni og einnig liluta af Slipp-
félaginu í Reykjavík. Nokkuð hefur
verið um sameiningar fyrirtækja í
prentiðnaði. Sveinabókbandið sam-
einaðist á sínum tíma Prentsmiðjunni
Odda og nýjasta dæmið er sameining
Prentstofu G. Benediktssonar og
Amarfells. Harpa yfirtók fyrir mörg-
um árum tvær málningarverksmið-
jur, Liti & lökk og Atlantic. Lýsi og
Hydrol sameinuðust á síðasta ári og á
árinu 1988 keypti Sveinn bakari kepp-
inaut sinn, Nýja Kökuhúsið og sam-
einaði fyrirtækin. Smjörlfldsgerðin
Akra og Snakkiðjan sameinuðust Víf-
ilfelli rétt fyrir síðustu áramót.
VÁTRYGGINGAR
Sameining vátryggingafélaga hefur
verið mjög til umræðu undanfarið í
tengslum við hin tvö stóru sameining-
armál, Sjóvá-Almennar tryggingar og
Samvinnutryggingar-Brunabótafélag
íslands en þau tvö síðarnefndu hafa
stofnað Vátryggingafélag íslands hf.
um sameiginlegan rekstur sinn.
Þessu til viðbótar má nefna að Hag-
trygging sameinaðist Sjóvá en þeirri
sameiningu lauk í árslok 1988.
ÚTGÁFA
Það vakti þjóðarathygli á sínum
tíma þegar keppinautarnir á síðdegis-
blaðamarkaðnum, Dagblaðið og Vís-
ir, sameinuðust í DV í lok eins prent-
araverkfallsins.
Bókaútgáfan Vaka keypti Helgafell
á sínum tíma og sameinaði fyrirtækin í
Vöku-Helgafell. Nýlega sameinuðust
tveir stórir bókaklúbbar, Veröld og
Bókaklúbbur Amar & Örlygs í ís-
lenska bókaklúbbinn. Árið 1987
keypti Sam-útgáfan Vikuna og sam-
einaði hana útgáfustarfsemi sinni.
Frjálst framtak hefur keypt nokkur
tímaritafyrirtæki og sameinað þau út-
gáfustarfsemi sinni. Þar er um að
ræða Fiskifréttir, Áfanga, Gestgjaf-
ann og Fjölni sem hafði með höndum
útgáfu fjögurra tímarita.
SAMGÖNGUR
Sameining Loftleiða og Flugfélags
íslands í Flugleiðir er væntanlega
sameining aldarinnar á íslandi enda
tók hún mörg ár og vakti gífurlega
athygli og umræður þar sem skoðanir
manna voru býsna skiptar.
Amarflug keypti Iscargo og sam-
einaði flugfélögin undir nafni Amar-
flugs.
Eimskip hefur keypt nokkra af
keppinautum sínum í gegnum tíðina
og sameinað félaginu. Má þar nefna
Eimskipafélag Reykjavíkur, Skipafé-
lagið Bifröst og íslensk kaupskip sem
sameinuðust Eimskip. Auk þess
keypti Eimskip allar eigur Hafskips
eftir gjaldþrot þess síðamefnda. Loks
hefur Eimskip keypt eitt af skipum
skipafélagsins Vílcur sem nýlega
komst í þrot.
FERÐASKRIFSTOFURNAR
Helsta sameining á þeim vettvangi
er sameining ASÍ og Samvinnuhreyf-
ingarinnar á ferðaskrifstofum sínum í
HVERJIR ERU NÆSTIR?
Um þessar mundir er víða verið
að vimia að sameiningu fyrirtækja í
viðskiptalífinu á íslandi. í sumum til-
vikum er opinberlega viðurkennt að
sameining sé í athugun. Dæmi um
það eru:
Meitillinn og Glettningur í
Þorlákshöfn.
Sj ávarútvegsfyrirtækin
við Skagafjörð.
Kaupfélögin á Suðurlandi.
Kaupfélögin í Norður-
landskjördæmi eystra.
Fyrirtæki í fiskeldi.
Auk þessa er flestum kunn lang-
varandi umræða um vanda Amar-
flugs sem gæti endað með samein-
ingu Flugleiða og Arnarflugs.
Nefndur hefur verið sá möguleiki
að KRON og Mikligarður sameinist
alveg. Viðurkennt er að viðræður
hafa farið fram um sameiningu út-
varpsstöðvanna Bylgjunnar og
Stjörnunnar. Fyrir liggur að Trygg-
ingamiðstöðin á 51% í Reykvískri
endurtryggingu. Menn velta því
auðvitað fyrir sér hvort TM stígi
ekki skrefið til fulls með samein-
ingu.
í opinberum rekstri skoða menn
möguleika á sameiningu eins og
fram hefur komið með alvarlegum
athugunum á sameiningu Landakots
og Borgarspítala. Margt bendir til
þess að sameining spítalamia verði
að veruleika.
Loks er á kreiki þrálátur orðróm-
ur um að Olíufélagið og Skeljungur
séu að kaupa OLÍS í þeim tilgangi að
skipta félaginu á milli sín og sameina
hvorn helming um sig rekstri við-
komandi fyrirtækis.
Þegar þetta tbl. Frjálsrar versl-
unar kemur út í lok febrúar er auð-
vitað mögulegt að einhver af fyrr-
nefndum fyrirtækjum hafi þá þegar
sameinast.
‘ - 'kilra
21