Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 23
HVENÆR KEMUR
AÐ BÖNKUNUM?
BANKASTOFNANIR
Uppstokkunar í bankakerfinu hefur
verið beðið í marga áratugi en í þeim
málum hefur lítið sem ekkert gerst.
Einungis er unnt að nefna að Spari-
sjþður Reykjavíkur og nágrennis yfir-
tók Sparisjóðinn Pundið og sameinaði
rekstur fyrirtækjanna. Þá hefur
nokkuð verið um það að útibú bank-
anna á landsbyggðinni hafi yfirtekið
litla sparisjóði á viðkomandi svæðum.
ÖNNUR FYRIRTÆKI
I hótel- og veitingarekstri má nefna
að Ólafur Laufdal tók yfir rekstur
Hótel Borgar í Reykjavík og Sjallans á
Akureyri og rekur þau fyrirtæki nú
sem hluta af fyrirtækjasamsteypu
sinni.
Nokkrar auglýsingastofur hafa
sameinast. Auglýsingaþjónustan og
Auglýsingastofa Gísla B.Bjömssonar
sameinuðust í GBB Auglýsingaþjón-
ustuna. íslenska auglýsingastofan
varð til úr Svona gerum við og Oktavo
og Gylmir, Strik og Kynningarþjón-
ustan sameinuðust í Sameinuðu aug-
lýsingastofuna um síðustu áramót.
Nokkuð hefur verið um sameining-
ar þjónustufyrirtækja verkfræðinga,
arkitekta, tölvumanna, endurskoð-
enda og lögfræðinga.
Að endingu skal hér nefnd áratuga-
gömul sameining þegar Tóbakseinka-
sala ríkisins og Afengisverslun ríkis-
ins voru sameinaðar í ATVR, Afeng-
is- og tóbaksverslun ríkisins.
Svo lengi sem menn muna hafa rík-
isstjórnir fslands boðað uppstokkun
bankakerfisins með sameiningu
banka. En ekkert gerist. A seinni ár-
um hefur þessi umræða einkum
snúist um að sameina Utvegsbankann
einhverjum öðmm banka.
En hvaða möguleikar eru nefndir
um sameiningu banka á Islandi?
— Að Útvegsbankinn verði sam-
einaður Búnaðarbankanum.
h ///7- 1/ A / ,
■ HK l|1
[• ‘ '■ • rtflQRHK'nr J9| ÍHB l-i ani, lii i1
Útvegsbanki íslands.
— Að Útvegsbankanum verði
skipt á milli Landsbankans og Búnað-
arbankans.
— Að Útvegsbankinn verði sam-
einaður Landsbankanum.
— Að sparisjóðirnir í landinu eign-
ist Útvegsbankann og sameinist hon-
um með einhverjum hætti.
— Að Iðnaðarbankinn eða Versl-
unarbankinn eða þeir báðir kaupi Út-
vegsbankann.
— Að Iðnaðarbankinn og Verslun-
arbankinn sameinist.
— Að Samvinnubankinn og Al-
þýðubankinn sameinist.
— Að Búnaðarbankinn yfirtaki
Samvinnubankann.
— Að Landsbankinn yfirtaki Sam-
vinnubankann eða Alþýðubankann,
annan hvom eða báða.
— Að erlendir bankar komi með
einhverjum hætti inn í uppstokkun ís-
lenska bankakerfisins.
Óhætt er að segja að margt er
spjallað um sameiningu banka en
minna aðhafst. Því miður.
MISMUNANDIAÐFERÐIR
Hér á eftir verður getið nokkurra
leiða við sameiningu á rekstri fyrirtækja.
1. Samruni eða fullkomin sameining.
Þá eru fyrirtæki sameinuð þannig að nýtt
fyrirtæki yfirtekur öll réttindi og skyldur
hinna gömlu, allar eignir, skuldir og eig-
infiárstöðu. Hluthafar fá hlutabréf eða
eignarhluti í nýju félagi í stað hlutabréfa
eða eignarhluta í þeim gömlu. Dæmi:
Sameining Loftleiða og Flugfélags ís-
lands í Flugleiðir. Sjóvá og Almennar
tryggingar.
2. Tvö fyrirtæki eða fleiri stofnaþriðja
fyrirtækið, ákveða eignaraðild og fela
nýja fyrirtækinu sameinaðan rekstur
gömlu fyrirtækjanna. Með því er unnt að
sameina reksturinn en halda öðrum þátt-
um aðgreindum, svo sem tilteknum
eignum og skuldum. Dæmi: Dagblaðið
og Vísir sameinuðust í Frjálsri fjölmiðlun
hf., en gömlu fyrirtækin, Reykjaprent
hf. og Dagblaðið hf. eru þó ennþá til.
Brunabótafélag íslands og Samvinnutr-
yggingar stofnuðu Vátryggingafélag ís-
lands hf. um sameiginlegan rekstur sinn.
3. Eitt fyrirtæki kaupir annað og fellir
inn í rekstur sinn án þess að fyrri eigend-
ur komi við sögu í hinum sameinaða
rekstri. Þetta getur bæði gerst með því
að félag sé keypt, þ.e. öll hlutabréf
(eignarhlutir), eða að rekstur sé keyptur
af félagi, þó félagið sé ekki keypt í heilu
lagi.
Dæmi: Kaup Frjáls framtaks á Fjölni.
Kaup Hagkaups á Nýjabæ.
4. í nr. 3 er átt við frjálsa sölu milli
aðila. En einnig gætu komið til yfirtökur
á rekstri frá þrotabúum, bönkum eða
sjóðum þegar fyrirtæki komast í þrot.
Dæmi: Skiptaráðandi seldi strax eftir
gjaldþrot veitingahúsið Lækjabrekku og
Kostakaup í Hafnarfirði þannig að rekst-
ur þeirra truflaðist mjög lítið. í þeim til-
vikum var reksturinn yfirtekinn.
5. Öfugt við sameiningar hér að fram-
an er unnt að nefna dæmi þess að til hafi
orðið tvö fyrirtæki úr einu. Má þar nefna
þegar Plastprent klofnaði í Plastos og
Plastprent.
23