Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 34

Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 34
LOGFRÆÐI una að aðili hefur látið farast fyrir að gæta réttar síns. Hann hefur m.ö.o. liðið notkun annars aðila á líku firma- nafni í einhvem tíma. Firmalögin geyma ekkert ákvæði um tómlætis- verkanir í sambandi við firmarétt og verður því að líta til dóma Hæstarétt- ar. LILLAOG HEKLA Er þá fyrst að nefna dóm frá árinu 1953, Efnagerð Reykjavíkur gegn nærfataverksmiðjunni Lillu. Um var að ræða notkun beggja aðila á nafninu „Lilla“ á vörur sínar og krafðist Efna- gerðin þess að Nærfataverksmið- junni yrði dæmt óheimilt að nota orðið „Lilla“ í firmanafni sínu. Bæði í undir- rétti og í Hæstarétti var nærfata- verksmiðjan sýknuð af kröfum stefn- anda. í forsendum Hæstaréttar er sérstaklega vikið að því að stefndi hafi notað orðið „Lilla“ í firmanafni í nítján ár án þess að stefnandi hæfist handa við að fá notkuninni hnekkt. Svipuð niðurstaða varð uppi á ten- ingnum í dómi Sjó- og verslunardóms Reykjavíkur þann 9. október 1967. Þar freistaði heildverslunin Hekla þess að fá hnekkt notkun fataverksm- iðjunnar Heklu á notkun orðsins Hekla. Niðurstaða dómsins varð sú að stefnda var heimilt að nota nafnið áfram m.a. með tilliti til þess að stefndi hafði átölulaust notað nafnið um nær tveggja áratuga skeið. Fræðimenn hafa túlkað þessar nið- urstöður á þann veg að almennar rétt- arreglur um afleiðingar athafnaleysis við gæslu réttar síns eigi við í firma- réttinum. LOKAORÐ Þó þeir dómar sem hér hafa verið reifaðir séu sumir komnir nokkuð til ára sinna þýðir það ekki að málaferli og árekstrar vegna firmanafna heyri sögunni til. Reyndar er það öðru nær. Vegna þessa hafa menn velt því fyrir sér hvort ekki sé affarasælla að breyta fyrirkomulagi varðandi skrán- ingu firma hér á landi. Nú eru firmu skráð á fjölmörgum stöðum eða hjá sýslumönnum, bæjar- fógetum um land allt og hjá borgar- fógeta. Það gefur því augaleið að sama nafnið eða lík nöfn geta verið skráð á tveim stöðum sama dag án þess að nokkur verði þess var fyrr en um seinan. Er þá hugsanlegt að báðir aðilar séu búnir að leggja vinnu, fé og fyrirhöfn í hönnun firmans, markaðs- setningu og þess háttar. Bæði Sigurgeir Sigurjónsson hrl., í grein sinni, „Firma og Firmavernd" í Úlfljóti árið 1969, og Þórður Eyjólfs- son, fyrrum hæstaréttardómari, í grein um félagarétt í sama blaði árið 1969, bentu á nauðsyn þess að taka upp markvissari skráningu firma- nafna. Þeir töldu engan vafa á því að skráning yrði öruggari ef hún færi fram á einum stað undir eftirliti sér- fróðra manna og lögðu á það áherslu að þessi breyting yrði gerð hér sem fyrst. Nú tuttugu árum síðar er þessi ósk þeirra ítrekuð. TÖLVUBORÐ, KRISTJAN SIGGEIRSSON prentaraborö, telefaxborö og fleiri tegundir smáboröa sem henta öllum fyrirtækjum, stofnunum og til heimilisnota. Hjá KÁESS er nú landsins mesta úrval slíkra borða á sérstaklega hagstæðu verði. Verið velkomin í sýningarsal okkar að Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík, eða hringið í sima 91-672110 og fáið frekari upplýs- ingar. 34

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.