Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 36
STJÓRNUN
VERÐBÓLGAI
STARFSHEITUM
— HVER ER MUNURINN Á FORSTJÓRA OG FRAMKVÆMDASTJÓRA?
í íslensku atvínnulífi virðist
ríkja hálfgerður glundroði í
notkun starfsheita. Til dæmis
eru æðstu stjórnendur fyrir-
tækja ýmist kallaðir fram-
kvæmdastjórar, forstjórar, for-
stöðumenn, stjórnarformenn
eða öðrum nöfnum allt eftir
smekk hverju sinni. I þessum
efnum eru hvorki til ákveðnar
fastmótaðar hefðir né skráðar
reglur. I allra stærstu fyrirtækj-
um á Islandi má þó finna nokkuð
fast form á heitum æðstu yfir-
manna en síðan er það mjög mis-
mundandi hvernig aðrir yfir-
menn eru titlaðir. Þetta eru
fyrirtæki eins og Samband ís-
lenskra Samvinnufélaga, Flug-
leiðir, Eimskip o.s.frv. Þar heita
æðstu stjórnendur forstjórar og
síðan eru framkvæmdastjórar
sem heyra undir forstjórana og
lúta þeirra stjórn.
GLUNDROÐI
Að undanskildum þessum allra
stærstu fyrirtækjum er ekki nokkur
leið að sjá fyrir um hvort yfirmaður
tiltekins fyrirtækis er kallaður fram-
kvæmdastjóri, forstjóri eða eitthvað
enn annað. Stærð og starfsmanna-
fjöldi fyrirtækja virðist ekkert hafa að
segja varðandi þessi starfsheiti - það
eru næstum alveg jafn miklar líkur á
að finna forstjóra í fyrirtæki þar sem
vinna um 30 manns eins og í fyrirtæki
þar sem vinna um 300 manns. Og
stundum er enginn titlaður sem for-
stjóri í stóru fyrirtækjunum þótt slík-
TEXTI: KATRÍN BALDURSDÓTTIR TEIKNING: B
ur titill finnist í þeim smærri. Stærð,
umsvif, velta og starfsmannafjöldi er
því ekki heppilegur leiðarvísir varð-
andi það hvort biðja beri um fram-
kvæmdastjórann eða forstjórann vilji
maður eiga tal við æðsta yfirmann
tiltekins fyrirtækis.
STANGAST Á HJÁ
TRYGGINGAFÉLÖGUNUM
Tryggingafélögin, sem flestir
kannast við og hafa verið í sviðsljós-
inu að undanförnu, eru ágætt dæmi
um þetta misræmi í notkun starfs-
heita. Æðsti yfirmaður Sjóvátrygg-
ingafélagsins bar starfsheitið fram-
kvæmdastjóri en sá sem var í sömu
stöðu hjá Almennum tryggingum bar
heitið forstjóri og þó var Sjóvátrygg-
ingafélagið stærra fyrirtæki en Al-
mennar tryggingar. Nú er búið að
sameina þessi félög og nýja félagið er
að sjálfsögðu mun stærra en umrædd
félög voru sitt í hvoru lagi, en samt
fmnst þar enginn forstjóri. Tveir
framkvæmdastjórar og aðstoðar-
framkvæmdastjóri eru yfirmenn
fyrirtækisins.
Hjá Brunabótafélagi íslands var
bæði að finna forstjóra og tvo aðstoð-
arforstjóra og yfirmaðurinn hjá Sam-
vinnutryggingum var nefndur for-
stjóri og hafði hann framkvæmda-
stjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra
sér við hlið. Eftir sameiningu Sam-
vinnutrygginga og Brunabótafélags-
ins var ákveðið að hafa einn aðila með
forstjóratitil, einn stjórnarformann í
fullu starfí og síðan íjóra fram-
kvæmdastjóra. Þótt þessi tvö sam-
einuðu tryggingafélög séu af svipaðri
VAR LEÓS
stærð heita stöður æðstu yfirmanna
öðrum nöfnum.
Við samrunann í báðum þessum til-
fellum átti sér stað nokkur samdrátt-
ur í notkun titla og margur yfirmanna-
titillinn var látinn fjúka. Þetta á sér-
staklega við um samruna Sjóvá og
Almennra trygginga. Um þessa skip-
an mála segir Sigurjón Pétursson að-
stoðarframkvæmdastjóri hins nýja
sameinaða félags: „Áður en félögin
voru sameinuð ákváðum við hjá Sjóvá
að fækka ýmsum titlum og mörg
starfsheiti lögðust niður. Og enn
meiri hagræðing var gerð þegar fé-
lögin voru sameinuð. Þetta gerðist
ekki sársaukalaust, en var engu að
síður nauðsynlegt. Á sínum tíma var
okkur hjá Sjóvá ráðlagt að taka upp
skipulag sem fól í sér heilmikila fjölg-
un á starfsheitum. Til dæmis urðu allt
í einu til forstöðumenn hvers sviðs og
einnig voru til deildarstjóra á hverju
sviði. Þetta voru óþarflega margir
titlar. Það eru verkefnin sem skipta
máli en ekki starfsheitin.
Auk þess er verulegur verðbólgu-
þefur af allri þessari notkun á starfs-
heitum. Ef sú þróun, sem verið hefur
á undanfömum árum, heldur áfram
endar það með því að annar hvor
maður verður orðinn forstjóri, fram-
kvæmdastjóri, fjármálastjóri eða
deildarstjóri. Nei, slíkt gengur ekki
og sem betur fer eru fyrirtæki og
einstaklingar farnir að kippa í spott-
ana og láta titlana fjúka.“
SPURNING UM LAUN HJÁ RÍKINU
Sá ruglingur sem viðgengst í notk-
un starfsheita æðstu yfirmanna í ís-
36