Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 37

Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 37
lensku atvinnulífi á einnig við hjá opin- berum fyrirtækjum, sem á undan- fömum árum hafa verið að taka upp heiti stjóratitla úr viðskiptalífinu. Nú eru t.d. hjúkrunarkonur sem eru yfir- menn í ákveðnum stofnunum ekki lengur kallaðar forstöðukonur eða yfirhjúkrunarkonur heldur hjúkrunar- forstjórar og sumir yfirlæknar eru kallaðir framkvæmdastjórar ákveð- inna sviða. Það eru einnig til hjúkrun- arframkvæmdastjórar, hjúkrunar- stjórar og hjúkrunardeildarstjórar en stundum er mikið ósamræmi í notkun orðanna. Hvert sem litið er má sjá, að lítils samræmis gætir í notkun starfsheita hjá ríkinu. Þannig eru yfirmenn tiltek- inna stofnana á vegum ríkisins ýmist kallaðir forstöðumenn, forstjórar, framkvæmdastjórar eða eitthvað enn annað. Yfirmaður Pósts og síma er t.d. kallaður póst- og símamálastjóri, yfirmaður Innkaupastofnunar ríkisins er kallaður forstjóri, yfirmaður Raf- magnsveitu ríkisins kallaður raf- magnsveitustjóri ríkisins, yfirmaður Landsvirkjunar kallaður forstjóri, yfirmaður Hollustuvemdar ríkisins kallaður framkvæmdastjóri sem og yfirmaður Sfldarverksmiðja rfldsins og yfirmaður Almannavarna ríkisins. Þá eru yfirmenn tiltekinna stofnana ríkisins kallaðir forstöðumenn eins og t.d. sá sem stjómar Unglingaheimili ríkisins. „Þær breytingar sem gerðar hafa verið á undanförnum árum á notkun starfsheita hjá hinu opinbera og þar á meðal hjá okkur á Ríkisspítölunum eru í anda þess skipulags sem ríkir hjá almennum viðskiptafyrirtækjum og gerðar í hreinum stjómunarlegum til- gangi. Þær hafa einnig verið gerðar í anda jafnréttis því nú er óheimilt að láta stöðuheiti enda á t.d. orðinu kona. Þess vegna þurfti orðið for- stöðukona að fjúka og tekið var upp orðið hjúkrunarforstjóri,“ sagði Davíð Á. Gunnarsson sem er yfir- maður Ríkisspítalanna og kallast sú staða nú forstjóri Ríkisspítalanna, en hét áður ráðsmaður. VERÐBÓLGA í TITLUM „Öll þessi aukning á notkun tilta hjá okkur og annarsstaðar er að sjálf- sögðu einnig afurð verðbólgunnar. Það er verið að búa til titla til þess að skapa grundvöll fyrir hærri launum. Hjá Ríkisspítulunum hefur það m.a. gerst þannig, að yfirmönnum er feng- in aukin ábyrgð og bera þeir því ekki aðeins faglega ábyrgð heldur einnig fjárhagslega. Til dæmis eru sumir hjúkrunarforstjórarnir og sumir yfir- 37

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.