Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 40
IÐNAÐUR
Magnús Helgason framkvæmdastjóri Hörpu, Stanley Pálsson verkfræðing-
ur og Páll Sigurjónsson forstjóri Istaks skála fyrir nýja Hörpuhúsinu.
geta snúið lykli í útihurð hins nýja mann-
virkis! En hvenær hentar þessi bygging-
araðferð að mati Jónasar Frírnannsson-
ar?
NÆGT FJÁRMAGN ER SKILYRÐI
„Alverktöku má beita með góðum ár-
angri þegar verið er að byggja mannvirki
sem byggð hafa verið áður, t.d. iðnaðar-
hús, skrifstofubyggingar eða íþróttahús.
Um leið og byggingar verða flóknar er
ekki víst að hagkvæmni þessarar aðferðar
skili sér eins vel. Dæmi um hús sem við
byggðum eru Ártúnsskóli í Reykjavík, en í
því tilfelli liðu rúmir 4 mánuðir frá því fram-
kvæmdir hófust til þess að fyrsta kennslu-
stundin hófst í hinu nýja húsi. Nýlega luk-
um við byggingu húss fyrir málningar-
verksmiðjuna Hörpu hf. í Reykjavík í
alverktöku og ég er þess fullviss að for-
ráðamenn þess fyrirtækis sjá ekki eftir að
hafa haft þennan hátt á.“
Jónas taldi frumforsendu þess að al-
verktaka gæti heppnast vera þá að bygg-
ingaraðili ráði yfir nægu fjármagni. „Einn
meginkosta aðferðarinnar er hinn stutti
byggingartúni og skkt skiptir miklu máli
þegar ijármagn er jafn dýrt og raun ber
vitni. Til þess að alverktakinn geti hagað
framkvæmdum eins og hann vill má ekki
standa á fjármagni. Þama hygg ég að sé að
finna eina skýringuna á því hvers vegna
alverktaka hefur ekki fyrir löngu rutt sér
til rúms hér á landi,“ sagði Jónas.
HARPA í NÝTT HÚS
í lok síðasta árs flutti málningarverk-
smiðjan Harpa í nýtt og glæsilegt húsnæði
að Stórhöfða 44. Þar var á mjög skömm-
um tíma byggt 2.500 fermetra hús á 8000
fermetra lóð og nægjanlegt svigrúm skap-
aðist fyrir þetta gamalgróna fyrirtæki.
Samningur um verkið var gerður á milli
Hörpu hf. og ístaks hf. í lok febrúar 1988
og húsið afhent eigendum fullbúið rúmlega
9 mánuðum síðar.
Að sögn Magnúsar Helgasonar fram-
kvæmdastjóra Hörpu hf. tókst alverktak-
an undir stjóm ístaks hf. mjög vel. Hann
taldi engan vafa leika á að hagkvæmni
þessarar aðferðar væri ótvfræð auk þess
sem góðir arkitektar að húsi Hörpu og
virkt byggingareftirlit Stanleys Pálssonar
verkfræðings hefði stuðlað að ódýru og
afar heppilegu húsi fyrir starfsemi
verksmiðjunnar.
FYRIRHÖFN SPARAST
„Það er ekki aðeins að alverktakan
sparaði okkur fjármuni heldur einnig fyrir-
höfn. Með því að varpa framkvæmdinni og
eftirliti með henni yfir á herðar sérfræð-
inga gátum við sem stjómum þessu fyrir-
tæki einbeitt okkur að okkar eigin verk-
sviði, þ.e. að framleiða málningu. Ég tel
að fleiri ættu að hagnýta sér þennan kost
því það hlýtur að vera eðlilegast að sér-
fræðingamir fáist við það sem þeir kunna
best en aðrir séu ekki að fást við það sem
þeir ekki kunna til hlítar,“ sagði Magnús.
Hið nýja hús Hörpu hf. er sérhannað
fyrir starfsemina af arkitektunum Ormari
Þór Guðmundssyni og Ömólfi Hall. Áður
var framleiðsla Hörpu á 7 gólfum en er nú
á einni hæð. Vélakostur var stórbættur og
að sögn Magnúsar er Harpa betur í stakk
búin en nokkru sinni fyrr að mæta kröfum
íslenskra kaupenda.
Hefur þú áhuga á að fara út í atvinnurekstur,
eða viltu ef til vill auka við fyrirtæki sem þú
rekur í dag.
# bjóðum upp á ný tækifæri og hugmyndir,
# einnig framleiðsluleyfi og know-how.
Gerum:
# markaðsathuganir,
# framleiðsluútreikninga.
Öflum tilboða í vélar og hráefni.
Hafðu samband það kostar ekkert.
ÍSLENSK FJÁRFESTING HF.
SÍMI: 28450 - AUSTURSTRÆTI 17, RVÍK
40