Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 42
FJOLMIÐLUN
ERLENDAR FRÉTTASTOFUR Á ÍSLANDI:
ISLAND A HEIMSKORTIÐ
Þrátt fyrir íbúafæð landsins
hefur Island vakið eftirtekt
heimsbyggðarinnar fyrir
margra hluta sakir. Við þykjum
um margt sérstök og sérsinna og
mörgum finnst með ólíkindum
hvað hér getur skotið upp kollin-
um. A sínum tíma þótti t.d. alveg
einstakt að hér sæist ekkert
sjórnvarp á fimmtudögum, ekk-
ert brennivín drukkið á mið-
vikudögum, engir hundar leyfð-
ir í höfuðborginni og síðast en
ekki síst enginn bjór heimilað-
ur.
TEXTI: KATRÍN BALDURSDÓTTIR MYNDIR: GU
Smám saman hefur orðið breyting
á þessu og erum við að missa sér-
stöðu hvað framangreind mál varðar,
meira að segja bjórinn er að koma á
markaðinn. En önnur mál hafa tekið
við sem vakið hafa athygli, mál eins
og uppkoma Kvennalistans, kjör Vig-
dísar Finnbogadóttur í embætti for-
seta íslands og hvalamálið svo eitt-
hvað sé nefrit. Nú skákeinvígi
Fischers og Spasskys er j)að sem út-
lendingar minnast á er Island ber á
góma að ógleymdum leiðtogafundin-
um.
En hveijir eru það sem miðla frétt-
AR GUNNARSSON O.FL.
um frá íslandi út í hinn stóra heim? Að
vísu skrifa margir fyrir einstök erlend
blöð og tímarit um hérlenda atburði
en það eru ekki þeir sem miðla frétt-
um til erlendu fréttastofanna sem ná
hvað mestri útbreiðslu á sínu efni um
veröldina.
Þær fréttastofur sem senda reglu-
lega fréttir héðan og út í hinn stóra
heim eru Reuters fréttastofan, AP —
Associated Press, APN — Agents-
tvo Petsjati Novosti, AFP — Agence
France Presse og Ritzau. Til að for-
vitnast um starfsemi og virkni þess-
ara fréttastofa á íslandi og annars
42