Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 43

Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 43
staðar hitti Frjáls verslun þá aðila sem starfa fyrir þessar fréttastofur á ís- landi. REUTERS: ÍSLAND í DAGBLÖÐUM PERSAFLÓARÍKJANNA Allir stærstu fjölmiðlar á Islandi nota sér fréttaþjónustu Reuters og má raunar segja að Reuters einoki hinn íslenska fjölmiölamarkað. Sjón- varpið, Stöð 2, öll stærstu dagblöðin og útvarpsstöðvarnar nota Reuters en enginn nema Ríkisútvarpið og Sjónvarpið hafa aðgang að öðru en Reuters. Reuters rekur einnig frétta- myndaþjónustu og hafa t.d. bæði Morgunblaðið og D.V. komið sér upp búnaði til að taka á móti fréttamynd- um frá fyrirtækinu. Allir bankar á íslandi taka á móti viðskiptafréttum frá fréttastofunni og er sú þjónusta mjög þýðingarmikil þegar haft er í huga að mínútur og jafnvel sekúndubrot geta skipt máli í heimi fjármálanna. Reuters er einnig með hótelfréttir og eru þær notaðar af nokkrum fyrirtækjum hér á landi t.d. Hótel Holti. Reuters er lfldega stærsta fyrir- tæki í heimi sem starfar eingöngu við upplýsingamiðlun. Enginn einkaaðili er með jafn stórt samskiptanet og upplýsingar af ýmsu tagi eru sendar til samtals 133 landa. Reuters var stofnað árið 1851 af Julius Reuter sem fyrst um sinn starf- rækti fyrirtækið úr tveimur herbergj- um í kauphöllinni í London. Reuter hafði einn aðstoðarmann sem var tólf ára drengur. En eins og gerist í ævin- týrunum þá óx fyrirtækið og dafnaði en var fyrstu öldina aðallega í eigu breskra dagblaða. Árið 1984 voru hlutabréf í fyrirtækinu seld á frjálsum markaði en tuttugu árum áður hafði Reuters tekið þá afdrifaríku ákvörðun að nota tölvutækni til að dreifa fjár- málaupplýsingum til fyrirtækja um all- an heim. Það er nú aðalverkefni Reut- ers, þótt það sé áfram ein af þremur eða fjórum stærstu fréttastofum heims. Við árslok 1987 störfuðu á annað þúsund fréttamenn, ljósmyndarar og sjónvarpsupptökumenn við Reuters. Þar við bætast fréttamenn og ljós- Þórir Guðmundsson, fréttaritari Reuters á íslandi. myndarar í hlutastarfi, sennilega í hverju einasta ríki í heimi. Reuters er eina fyrirtækið í heimi sem tekur á móti og dreifir fréttum, fréttamynd- um og sjónvarpsfréttum til áskrifenda um víða veröld. Á íslandi er enginn í fullu starfi hjá Reuters, en fulltrúi söludeildar er Þorsteinn Thorarensen og frétta- maður í hlutastarfi er Þórir Guð- mundsson, fréttamaður á Stöð 2. Þórir var spurður að því hverju það sætti að Reuters einokaði næstum markaðinn fyrir erlendar fréttir hér á landi: „Fréttir Reuters eru ef til vill nær okkar heimsmynd en t.d. fréttir bandarísku fréttastofanna, sem eru aðallega skrifaðar fyrir bandaríska neytendur. Reuters er stærsta fréttastofan í Evrópu og ber keim af því. En mér fínnst það miður að ekki skuli ríkja meiri samkeppni um er- lenda fréttamiðlun á íslandi. Það er slæmt fyrir neytendur og einnig Reuters fréttastofuna sjálfa." Þórir sagði það mjög misjafnt hversu margar fréttir hann sendi héð- an. „Ef eitthvað er að gerast á vett- vangi stjómmálanna sendi ég stund- um 2 - 3 fréttir á dag, annars geta liðið allt að tvær eða þrjár vikur án þess að nokkuð þyki fréttnæmt héðan. Reut- ers hefur mikinn áhuga á efnahags- málum og ég reyni að greina reglu- 43

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.