Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 44

Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 44
sem ég hef skrifað fyrir fréttastofuna. Mér skilst að viðtalið hafi birst í Int- ernational Herald Tribune." AP — ASSOCIATED PRESS: „ÓLÍKINDAFRÉTTIR" VEKJA EFTIRTEKT AP fréttastofan er langstærsta fréttaþjónusta í heimi með höfuð- stöðvar í New York. Fyrirtækið er í eigu bandarískra dagblaða og er svo- kallað „non profit organizatiorí', þ.e. verði einhver ágóði af rekstrinum er honum varið til að bæta fréttanetið. Tilgangurinn með þessu fyrirkomu- lagi er að tryggja sjálfstæði frétta- þjónustunnar. Fyrsti fréttaritari AP á íslandi mun hafa verið Ivar Guðmundsson blaða- maður og fyrrum fréttastjóri hjá Morgunblaðinu en síðar gerðist ræð- ismaður íslands í New York. Ætíð síðan hafa fréttaritarar AP á íslandi verið starfandi blaðamenn hjá Morg- unblaðinu og nú sinna þessu starfi þeir Agúst Asgeirsson og Asgeir Sverrisson sem báðir skrifa erlendar fréttir fyrir Morgunblaðið. Morgunblaðið gerðist áskrifandi að AP fréttastofunni árið 1961 og Ríkis- útvarpið notfærði sér einnig þessa þjónustu um tíma. Þessir fjölmiðlar notuðu sér fréttaþjónustu AP sem ætluð var Mið-Austurlöndum. Um var að ræða eins konar endurvarp loftskeyta sem unnt var að veita við- töku. Síðar fékk Morgunblaðið sér- staka Evrópulínu og notfærði sér fréttaþjónustu AP allt til ársins 1987. í dag nýtir blaðið sér hins vegar síma- myndaþjónustu AP. „AP er ekki samkeppnishæf við Reuters á sviði tæknibúnaðar. Auk þess náði Reuters gífurlegum árangri þegar þeir hófu að senda við- skiptafréttir og bjóða upp á mjög háþróaðan tæknibúnað á lægra verði,“ sagði Ásgeir Sverrisson er hann var spurður um ástæðuna fyrir því að fjölmiðlar á íslandi væru að mestu hættir að nýta sér fréttaþjón- ustu AP. „Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að AP sé miklu betri frétta- stofa og það er synd að hér ríki nánast einokun Reutersfrétta," sagði Ás- geir. Ásgeir sagði að fréttastreymi AP frá íslandi væri ansi misjafnt og færi lega frá slíku. Einnig er áhugi fyrir staðreyndum sem þykja sérstakar og öðruvísi, eins og til dæmis bjórbannið og hundabannið. En það má segja að héðan berist fáar stórfréttir og það er enginn þrýstingur frá Reuters með að fá æsifréttir." — En hafa einhverjir áhuga á frétt- um frá íslandi? Birtast þær einhvers staðar? ,Já, það er ólíklegasta fólk sem sýnir fréttum frá íslandi áhuga. Til dæmis kom mér á óvart, er ég heim- sótti Persaflóaríkin fyrir nokkru, hversu margir þar höfðu áhuga á Is- landi. Blöð í Kuwait og Bahrain birtu fréttir héðan sem ég hafði skráð. Fréttirnar mínar fara að vísu ekki beint inn á Reuters-kerfið heldur eru fyrst ritskoðaðar og þýddar en stund- um er nánast engu breytt. í aðalda- gblaðinu í Taiwan og í dagblöðunum í Peking gat fyrir skömmu að líta grein- ar sem ég skrifaði um jólabókaflóðið á íslandi sem þykir með ólíkindum. Int- emational Herald Tribune, hið þekkta dagblað, birtir stundum grein- ar um íslensk efnahagsmál sem koma ffá Reuters og svo mætti lengi telja. “ — Þórir var að lokum spurður að því hvaða frétt honum hefði þótt skemmtilegast að skrifa fyrir Reut- ers? „Ég tók einu sinni viðtal við Halldór Laxness fyrir Reuters og sennilega er það samtal það skemmtilegasta Ásgeir Sverrisson og Ágúst Ásgeirsson, fréttaritarar AP. FJOLMIÐLUN 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.