Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 45

Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 45
að sjálfsögðu eftir atburðarásinni hér á landi. „í síðustu kosningum var brjá- læðisleg vinna að vera fréttaritari AP, maður hafði vart undan. En stundum kemur fyrir að heilu vikurnar líði án þess að nokkur frétt sé send og þá byrjar samviskan að naga mann. Yfir- leitt erum við þó nokkuð duglegir við fréttasendingamar. Fréttirnar sem við sendum eru vitaskuld þær sem á einhvern hátt koma útlendingum við eða þykja for- vitnilegar. Dæmi um hið síðamefnda er Kvennalistinn á Islandi og bjór- bannið. Nú, áfengiskaup Magnúsar Thoroddsen hæstaréttardómara vöktu mikla athygli heimsbyggðarinn- ar og eins vildu menn vita allt um ísbjöminn sem var drepinn hér uppi á Fróni síðastliðinn vetur. Sú frétt þótti einstök. Allskonar svona fréttir, sem í út- löndum túlkast sem „ólíkindafréttir“, eru mjög vinsælar. Aftur á móti hefur enginn áhuga á því þótt skattar hækki hér á landi eða hvort hér sé á ferðinni eitthvert hneyksli varðandi samsetn- ingu kjöthakks. Og almennt séð hafa útlendingar ekki áhuga á frásögnum sem eru einhverjar „spekulasjónir" um eitt eða annað á íslandi. Það verð- ur einhver einstakur atburður að hafa átt sér stað. Agúst hefur matað AP á þeim fjölmörgu flug- og sjóslysum sem hér hafa orðið í nágrenni landsins og hefur frætt heiminn um björgunar- aðgerðir og slík mál. En sem sagt, að undanskildum atburðum á sviði stjórnmála, eru það fréttir sem þykja með ólíkindum sem vekja mesta eftir- tekt,“ sagði Ásgeir að lokum. APN — AGNETSTVO PETSJATI NOVOSTI: Sovéska fréttastofan APN — Ag- entstvo Petsjati Novosti, hóf starf- semi sína á íslandi árið 1970 og hefur starfað hér óslitið síðan. Yfirmaður hennar hér heitir Vladimir Verbenko og sér hann um að senda fréttir héðan inn á net APN. Þetta er fullt starf hjá Verbenko og er vera hans á íslandi að öllu leytið kostuð af APN sem er sjálf- stæð stofnun og í engum tengslum við sovéska sendiráðið hér á landi. Verbenko talar ekki íslensku og skilur ekki málið þannig að fréttir héðan eru þýddar fyrir hann. María Þorsteinsdóttir, ábyrgðarmaður sovésku fréttastofunnar APN. María Þorsteinsdóttir er ábyrgðar- maður fréttastofunnar og hefur starf- að sem slík í um 11 ára skeið. Að sögn Maríu var APN fréttastofan stofnuð 1961. Að stofnun hennar stóðu Blaða- mannafélag Sovétríkjanna, Rithöf- undasamband Sovétríkjanna, Sam- band vináttufélaga og menningar- tengsla við önnur lönd, félagið Znaníe, sem er útgáfufyrirtæki, og miðstjórn Alþýðusambands Sovét- ríkjanna. APN hefur skrifstofur í mörgum löndum og er efni fréttastof- unnar dreift í 110 þjóðlöndum og í borgum Sovétríkjanna. „Fréttastofa APN flytur fjölþættar fréttir frá Sovétríkjunum en auk stjórnmálafrétta og frétta frá verka- lýðssamtökum færir hún fréttir af við- burðum á sviði lista og menningar og þjóðlífi hinna ýmsu þjóða sem byggja Sovétríkin. Fréttastofan túlkar stefnu Sovétríkjanna í alþjóðamálum — hún hefur t.d. birt í heild sinni þá samninga sem Sovétríkin og Banda- rílcin hafa gert um afvopnunarmál,“ sagði María. „Við sendum fréttastofunni fréttir um íslenskt þjóðfélag, menningu þjóðarinnar, stjórnmálaviðburði og 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.