Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 46
FJOLMIÐLUN
efnahagsmál en auk þess hefur Ver-
benko sent fjölda viðtala við ýmsa
frammámenn í efnahagslífmu hér á
landi og kynnt þar með málstað ís-
lendinga.
Fjölmiðlar á íslandi eru ekki í bein-
línusambandi við fréttastofuna en
geta leitað til okkar ef þeir óska. Við
sendum daglega út fréttabréf til fjöl-
miðla eða á hverjum virkum degi og
ennfremur gefum við hálfsmánaðar-
lega út blað sem ber heitið Fréttir frá
Sovétríkjunum. Auk þess er hægt að
fá víðtækar og almennar upplýsingar
um Sovétríkjin hjá okkur,“ sagði
María ennfremur.
Aðspurð sagði María að íslending-
ar hefðu talsvert mikinn áhuga á frétt-
um frá Sovétríkjunum og að hennar
sögn hefur gengið vel að miðla frétt-
um frá APN hér á landi. „Áhugi ís-
lendinga á Sovétríkjunum hefur auk-
ist verulega síðan leiðtogafundurinn
var haldinn hér á landi og síðan Gor-
batsjov komst til valda.“
— En hefur APN fréttastofan ein-
hvern raunverulegan áhuga á íslandi
og því sem hér gerist?
„Fréttastofan hefur ávallt haft
áhuga á fréttum héðan. ísland er t.d.
oft á tíðum umfjöllunarefni blaða og
tímarita sem gefm eru út í Sovétríkj-
unum af APN,“ sagði María að lokum.
AFP — AGENCE FRANCE PRESSE:
ÍSLENSK MENNING ER EKKIFRÉTT
„Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, er þekkt persóna í Frakk-
landi og Frakkar hafa áhuga á að fá
fréttir af henni. Núna er ísland í tísku
sem ferðamannaland og auk þess ber
landið oftar á góma vegna aukinna
samskipta landsins við önnur ríki.
Hins vegar hefur sérstaða íslands í
mörgu tilliti minnkað sem rýrir auð-
vitað áhugann á landinu. Nú er búið að
leyfa bjórinn og hundahald í Reykjavík
og um þessar mundir er verðbólgan
„ömurlega" lítil. Eldgos hafa verið fá á
undanförnum árum og þorskastríðum
er lokið fyrir löngu,“ sagði Frakkinn
Gérard Lemarquis fréttaritari AFP
— Agence France Presse á íslandi.
AFP fréttaþjónustan hefur verið
starfrækt á íslandi frá árinu 1976.
Gérard hefur verið fréttaritari frétta-
stofunnar frá upphafi en hefur ásamt
Gérard Lemarquis, fréttaritari frönsku fréttastofunnar AFP.
því þjónað öðrum frönskumælandi
fjölmiðlum, til dæmis dagblaðinu Le
Monde. Enginn fjölmiðill á íslandi
nýtir sér þjónustu AFP en hún er
samt 3ja stærsta fréttastofa í heimi og
á viðskiptavini í yfir 100 löndum. AFP
er sterkust í Vestur-Afríku, Róm-
önsku-Ameríu og Suðaustur-Asíu.
Hún sendir út fréttir á fjórum tungu-
málum; frönsku, ensku, þýsku og
spænsku.
Fréttir frá Islandi eru sendar um
Stokkhólm til Parísar og þaðan til
rúmlega 100 landa. „Ég sendi að með-
altali 2-3 fréttir í viku; stjórnmála-
fréttir, efnahagsfréttir, íþróttafréttir
og gamlar lummur eins og ég kalla
fréttir af bjór, hundum og því sem
gerir ísland sérstætt í augum um-
heimsins. Ég þarf að fylgjast vel með
öllum alþjóðlegum íþróttamótum sem
hér fara fram til þess að geta birt
úrslitin helst samstundis. Ég vildi
gjarnan skrifa meira um íslensk
menningarmál en það er enginn
markaður fyrir slíkar fréttir hjá AFP.
En það er töluverður áhugi fyrir land-
inu og mínar fréttir birtast á ólíkleg-
ustu stöðum t.d. í Kólumbíu, Japan og
víðar. Ég skrifaði nýlega langa grein
um hundakosningarnar í Reykjavík og
sú grein var þýdd á fjögur tungumál
46