Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 47
og birt í mörgum löndum,“ sagði Gér-
ard Lemarquis.
RITZAU:
ÓTRÚLEGT FRJÁLSLYNDI
Ritzau fréttastofan hefur verið
starfrækt á Islandi um nokkurt skeið
og hefur haft hér fréttaritara í fullu
starfi síðan árið 1981. Fréttir Ritzau
frá íslandi hafa oft á tíðum þótt krass-
andi og verið kenndar við æsifréttir.
Til dæmis var það Ritzau fréttastofan
sem boðaði þau tíðindi fyrst allra að
íslenskur verkalýðsleiðtogi, Guð-
mundur J. Guðmundsson, hefðiþegið
mútur frá fjármálaráðherra landsins,
Albert Guðmundssyni. Þetta þóttu
aldeilis tíðindi úti í hinum stóra heimi
og eins og allir vita urðu þessar fréttir
kveikjan að því að Albert vék úr sæti
Ijármálaráðherra og stofnaði í kjölfar-
ið Borgaraflokkinn. Magnús
Guðmundsson, blaðamaður, var
fyrsti fréttaritari Ritzau á íslandi í
fullu starfi og gegndi því í 7 ár en á
síðasta ári tók danskur maður að nafni
Lars Toft Rasmunssen við frétta-
þjónustunni. Áður en Magnús hóf hér
störf fyrir Ritzau höfðu ýmsir unnið í
lausamennsku fyrir fréttastofuna, þar
á meðal Árni Gunnarsson núverandi
þingmaður og Borgþór Kjæmested.
„Það er misskilningur að fréttimar
sem ég skrifaði hafi verið einhverjar
æsifréttir. Þetta er hlutlaus frétta-
stofa og þótt ég hafi stundum reynt að
segja satt og rétt frá þeirri spillingu,
eða hinu ótrúlega frjálslyndi, sem
óumdeilanlega þrífst hér í stjómkerfi
íslendinga, var ég kallaður landráða-
maður. Sú spilling sem fyrirfinnst hér
í stjómmálum og á öðrum sviðum
þjóðlífsins myndi aldrei ná að þrífast í
Skandinavíu. Það má ekki gleyma því
að Ritzau horfir á íslenskt þjóðlíf með
gestsauga. Ég var hins vegar búinn
að vera svo lengi þegar ég hætti að
starfa fyrir fréttastofuna að ég var
orðinn samdauna því kerfi sem hér
ríkir og þess vegna vildi ég hætta,“
sagði Magnús Guðmundsson í samtali
við Fijálsa verslun.
Ritzau fréttastofan er dönsk og
mun vera ein sú elsta í heimi. Daninn
Ritzau stofnaði hana á fyrrihluta síð-
ustu aldar og fljótlega eftir stofnun
hennar sá hún öllum fjölmiðlum í Dan-
mörku fyrir fréttaefni. Hún varð
nokkurs konar þjóðarfréttastofa
Dana. Ritzau er nú sameign svokall-
aðra „non-profit“ fjölmiðla í Dan-
mörku og reynir þannig að halda sjálf-
stæði sínu. Ritzau er nú með aðsetur í
mörgum löndum og heldur uppi nánu
samstarfi við NTB, norsku fréttastof-
una, TT fréttastofuna í Svíþjóð og
FNB í Finnlandi. Sameiginlega reka
þessar fréttastofur útibú út um allan
heim. Ríkisútvarpið og Sjónvarpið
eru þeir fjölmiðlar á íslandi sem nýta
sér þjónustu Ritzau.
„Síðan Magnús hætti hafa fréttirn-
ar frá íslandi breyst örlítið. Ég hef
lagt meiri áherslu á viðskiptafréttir af
ýmsu tagi og er sú breyting í sam-
ræmi við stefnu fréttastofunnar. Ég
hef kynnt mér rekstur og afkomu
stærstu fyrirtækjanna hér á landi og
skrifað fréttir um þau. Ég tala ekki
íslensku en ég skil og les málið og get
því fylgst með öllum fréttum. Mér
finnst gott að vera á íslandi enda sér-
legur áhugamaður um lönd sem liggja
langt í norðri. Ég starfaði til dæmis
fyrir Ritzau á Grænlandi. Þar náði ég
mér í grænlenska konu sem fluttist
með mér til Islands. Ég get vel hugs-
að mér að vera hér áfram,“ sagði
Daninn Lars Toft Rasmussen.
Lars Toft Rasmussen, fréttaritari Ritzau.
47