Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 53

Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 53
minnsta kosti og veldur því auðvitað stærð markaðarins en einnig sú venja sem víða hefur skapast að fleiri en einn og fleiri en tveir aðilar sjá um reikningsuppgjör bankanna. Tölvuvæðing banka og sparisjóða hefur aukist mjög á síðustu árum og heyrst hafa raddir um að sumir þeirra séu það vel tæknivæddir að þeir gætu sem best annast þá þjónustu sem Reiknistofan hefur með höndum. Hvað segir Þórður B. Sigurðsson um þau mál? 68 MILUÓN FÆRSLUR ,Jú, vissulega hafa bankarnir tæknivæðst eins og önnur fyrirtæki og það gerir þeim kleift að annast ýmsar þær færslur sem við hefðum áður tekið að okkur. Hins vegar bæt- ast stöðugt við ný verkefni í hverri stofnun og þróunin hefur verið sú að stofnanirnar hafa leyst sum þeirra en meginverkefni okkar hafa aukist ár frá ári þrátt fyrir það. Ég man þá tíð þegar við vorum að undirbúa stofnun þessa fyrirtækis að samreikningar úr öllum bönkum og sparisjóðum árið 1971 sýndu 7 milljón færslur það ár. Fyrsta starfsárið, 1975-76, hafði færslufjöldinn nær tvöfaldast og æ síðan hefur hann aukist ár frá ári. Færslufjöldi árið 1988 var 68.192.182 eða 9.6% meiri en árið á undan. Það er því ljóst að Reiknistofa bankanna hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna og að þetta samstarf peninga- stofnana í landinu er ódýrasti kostur- inn en jafnframt sá öruggasti." Langinestur hluti af verkefnum Reiknistofunnar er fólginn í færslum vegna tékkareikninga og voru þær 49.222.000 talsins á síðasta ári. Þar á eftir komu færslur vegna sparisjóðs- bóka, aðalbókhalds, skuldabréfa og víxla. Það er athyglisvert að skoða aukinn fjölda tékkafærslna í ljósi mik- illar aukningar á notkun greiðslu- korta. Reiknistofan hefur fleira með höndum en færslur fyrir banka og sparisjóði því fyrir nokkru fól fyrir- tækið Greiðslumiðlun hf. eða VISA á íslandi Reiknistofu bankanna að sjá um færslur sínar og má því segja að fleiri stoðum hafi verið rennt undir þessa traustu stofnun í húsinu dökka við Arnarhól. Þórður B. Sigurðsson. RÁÐGARÐUR Sérhæfð ráðningaþjónusta fyrir stjórnendur og sérfræðinga ATVINNUREKENDUR ATH! Rétt val á fólki til stjórnunar og sérfræðistarfa er mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækja. Við finnum fyrir ykkur rétta starfsmanninn í skrám okkar, með fyrirspurnum og auglýsingum. Þið sparið ykkur mikla vinnu og tíma með því að láta okkur annast ráðninguna fyrir ykkur. Hafið samband og kynnið ykkur málin. Okkar fag er ráðning sérhæfðra starfsmanna til að annast stjórnunarstörf, fjármál og tæknileg málefni. RÁÐGARÐUR STjÓRNUNAR OG REKSTRARRÁDGJÖF NÓATÚNI 17, 105 REYKJAVÍK, SÍMl (91) 68 66 88 53

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.