Frjáls verslun - 01.02.1989, Page 55
Ragnar Birgisson, Sanitas:
Efverð á innlendum bjór feryfir 80-100 kr.
dósin mun smyglið blómstra.
Lárus Berg, Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni:
Egils Gull bjór verður í fyrírrúmi hjá okkur
ogsvo flytjum við inn Tuborg.
og er þá að sjálfsögðu ótalið smyglið
sem eflaust nemur tugum lítra. Þess
ber að geta að inni í þessum neyslu-
tölum öllum er pilsner talinn með en
þess má geta að erlendis neyta menn
mjög lítils magns af slíku öli. Má telja
víst að sama verði upp á teningnum
hér þegar Kða fer á árið.
Eins og áður sagði mun neysla hér-
lendis ráðast mjög af verðlagningu
bjórsins. Nýjustu tölur úr ÁTVR eru
þess efnis að 33 cl dós af innlendu öli
muni kosta um eða innan við 100 kr.,
en átappaður bjór hérlendis verði
15% dýrari og innfluttur bruggaður
bjór allt að 30% dýrari.
Ragnar Birgisson forstjóri Sanitas
taldi að verð á innlendum bjór ætti að
vera 80-100 kr. dósin. „Ef menn hafa
útsöluverðið hærra en þetta mun hinn
löglegi mjöður aldrei ná að keppa við
smyglið því í þeim atvinnuvegi hafa
menn margfalt meira svigrúm til að
lækka álagningu og undirbjóða gild-
andi útsöluverð. En miðað við þetta
verð er ég þess fullviss að neysla inn-
anlands verður allt að 15 milljónir lítra
á ári. Þá byggi ég á neyslutölum frá
nágrannalöndunum. Fari hins vegar
verð innlenda bjórsins upp í 115-125
kr. dósin tel ég að neyslan verði ekki
meiri en 10-12 milljón lítra“.
Ragnar taldi að neysla fyrstu tvö
árin yrði mun meiri en undir venjuleg-
um kringumstæðum. íslendingar
væru nýjungagjamir og því mætti
búast við allt að 20 milljón lítra neyslu
fyrst í stað en síðan drægi úr og ein-
hvers konar meðalástandi yrði náð.
Ef þessi spádómur Ragnars rætist
mun hver Islendingur kneyfa um 110
k'tra af öli á ári og vonandi verður
engum bumbult af!
HVERJIR HAFA UMB0ÐIN?
Á grundvelli útboðs sem ÁTVR
stóð fýrir á síðasta ári voru valdar 3
erlendar tegundir til sölu í vínbúðum
fyrirtækisins frá jafnmörgum löndum.
Flestir íslendingar þekkja þessar
bjórtegundir af eigin reynslu eða af-
spum en færri kunna deili á þeim
mönnum sem reyndust hafa umboð
fyrir mjöðinn.
3-K Trading heitir fyrirtækið er
hreppti Budweiser hnossið en for-
svarsmaður þess er Magnús Jónas-
son, en hann hefur haft umboð fyrir
þennan kunna bandaríska bjór í nokk-
ur ár og séð um alla þjónustu við
bandaríska herinn. Magnús sagði í
samtali við Frjálsa verslun að hann
hefði frekar búist við því að Budweis-
er yrði einn þeirra erlendu bjóra sem
kæmu til með að vera hér á boðstól-
um eftir að bjórbanninu yrði aflétt.
„Framleiðandi Budweiser er lang-
stærsti framleiðandi bjórs í heiminum
og er með 42% af allri bjórsölu í
Bandaríkjunum. Undanfarin ár hefur
fyrirtækið sótt inn á heimsmarkaðinn
55