Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 56

Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 56
VERSLUN Beðið eftir bjórnum! og náð verulegum árangri. Það var þeim því talsvert keppikefli að bjóða lágt verð þegar útboð ÁTVR var aug- lýst til þess að ná fótfestu á þessum nýja markaði. Við lítum svo á að þessi samningur um 1 milljón lítra sé aðeins byrjunin og að val neytenda muni tryggja frekari sölu á þessum ágæta bjór í framtíðinni." Þess má geta að fyrirtækið Anheuser-Busch Inc. framleiðir um 25 milljón lítra á dag og getur því framleitt fyrir allan íslenska markað- inn á hálfum degi! Magnús nam viðskiptafræði við H.Í., vann hjá Reykjavíkurborg um skeið en stofnaði síðan innflutnings- fyrirtækið 3-K Trading ásamt Ingvari Karlssyni framkvæmdastjóra Karls K. Karlssonar. Hlutverk3-KTrading er umboðssala á Budweiser en auk þess hefur Magnús rekið eigin inn- flutningsfyrirtæki um nokkurt skeið. Útgarðar sf. flytja inn Kaiser bjór- inn austurríska en framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Ásdís Jónasdóttir. Hún kynntist miðinum sem ferða- maður í Austurríki fyrir nokkrum ár- um, lét sér detta í hug að sækja um umboð fyrir bjórinn hér á landi, „og það tókst með þessum árangri," eins og hún komst að orði í samtali við Fijálsa verslun. „Við munum aðeins vera með Kaiser Premium sem er 5.44% að styrkleika miðað við rúmmál og því verður hann sterkasti bjórinn á mark- aðnum. Þessi bjór er sá langmest seldi í Austurríki og hefur verið þar á boðstólum frá því árið 1475 er munkar í Salzburg hófu bruggunina í ölkjöllur- um sínum. Markaðshlutdeild Kaiser samsteypunnar nemur 38% í því mikla bjórlandi Austurríki og auk þess flytur fyrirtækið út drykkjarföng til 30 landa. „Það er enginn vafi á því að Kaiser er góður bjór og ég veit að íslending- ar munu kunna að meta hann. Varð- andi söluna er ég því bjartsýn og segi bara „Keisarinn krýnir sig sjálfur“! Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. er með umboð fyrir Tuborg bjórinn, en hann er einn þriggja erlendra bjóra sem samið hefur verið um innflutning á. Lengi vel var um það deilt hver hefði Tuborg umboðið með höndum og fyrirtækið Karl K. Karlsson nefnt í því sambandi. Misskilningurinn mun m.a. hafa stafað af því að það fyrir- tæki er með umboð fyrir Carlsberg frá Danmörku en sú framleiðsla er á vegum sömu aðila og Tuborg bjórinn. Lárus Berg hjá Agli Skallagrfms- syni sagði að Tuborg ölið yrði flutt inn frá Danmörku til að byrja með en síð- an væri til athugunar að tappa miðin- um á dósir hér heima. Tuborg bjórinn er 5.1% að styrkleika og eflaust sá bjór sem hvað flestir íslendingar þekkja. Fleiri aðilar innanlands hyggja gott til glóðarinnar varðandi sölu á áfeng- um bjór þegar hömlum léttir. Lýður Friðjónsson hjá Vífilfelli sagði að fyrir- tækið myndi bjóða sænska Pripps bjórinn og að síðar mætti búast við að hann yrði tappaður á dósir í verk- smiðjunni hér heima. „Hins vegar hefur ekkert verið rætt við okkur ennþá og allt á huldu hvort þessi ágæti sænski bjór verður hér á boð- stólum“. Svipað hljóð var í Einari K. Jónssyni hjá Sól hf. Hann kvað ekki enn frágengið hvaða bjór yrði átapp- VALIÐ ER ## IVALHOLL Raftæki og búsáhöld s: 12801 Blóm og gjafavörur s: 93-11301 Leikföng og gæludýrafóður s: 93-12853 Verslið þar sem úrvalið er. Sendum í póstkröfu. Greiðslukjör / 4A|| ffOI I staðgreiðsluafsláttur. kirkjubraut h, akranesi ] •• 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.