Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 59

Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 59
starfsemi á nýjan stað í Reykjavík og getur framleitt um 2 milljónir k'tra af sterku öli á ári. Verksmiðjurnar eru báðar vel tæknivæddar og því vel í stakk búnar að mæta aukinni eftir- spurn eftir bjómum. Fram að þessu hefur Sanitas framleitt Viking bjór til sölu í Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eir- íkssonar og Ölgerðin Polar bjór til sölu á sama stað. Þessar tegundir munu áfram verða þar á boðstólum. Ragnar Birgisson hjá Sanitas sagði að þeir myndu leggja megináherslu á sölu Sanitas Gull bjórs, sem er 5.6% að styrkleika, Pilsners sem verður 4.6% að styrkleika og loks Löwen- brau sem verður 5.3% og framleiddur hér heima eftir þýskum uppskriftum. Hefur fyrirtækið haft í sinni þjónustu sérfræðinga frá Löwenbrau og gefur tilraunabruggun til kynna að íslenska framleiðslan muni takast mjög vel. Lárus Berg hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar sagði að þar á bæ yrði höfuðáherslan lögð á markaðsfærslu Egils Gull bjórs, sem verður 5.0% að styrkleika svo og innflutning á Tu- borg bjórnum kunna frá Danmörku. Síðar verður athugað með möguleika á átöppun hans innanlands. Kannanir gefa ótvírætt til kynna að íslendingar muni fyrst og fremst kjósa íslenska bjórinn eftir 1. mars. Sjálfsagt stafar það fyrst og fremst af því að sá bjór verður mun ódýrari en einhverju kann um að ráða tilhneiging manna að styðja við bakið á íslenskum iðnaði. Velja íslenskt eins og iðnrek- endur hafa hvatt okkur til að gera. UNDIRBOÐ ÚTLENDINGA Allt fram til þessa dags hefur staðið í forráðamönnum ATVR að semja við íslensku framleiðendurna um verð og magn til sölu í verslunum ÁTVR. Einar Kristinn Jónsson. Höskuldur Jónsson forstjóri hefur glögglega gefið til kynna að hans hlut- verk sé fyrst og fremst að afla ríkis- sjóði tekna með sölu á áfengi og að ef menn vilji láta það sjónarmið alfarið ráða sé óneitanlega hagkvæmara að selja einungis erlendan bjór í verslun- umÁTVR. íslenskir bjórframleiðendur vilja taka annan pól í hæðina. Segja þeir að erlendu framleiðendurnir hafi lækkað verðin verulega til þess eins að kom- ast inn á íslenska markaðinn. Síðar muni þau verð hækka. Þá séu verð erlendu framleiðendanna lág vegna gífurlegrar framleiðslugetu þeirra og stórs heimamarkaðar sem þeir njóti. Bent er á að aðildarríki Evrópubanda- lagsins fái endurgreiðslur frá banda- laginu við útflutning, malt og humlar séu niðurgreiddir og kostnaðarliðir eins og laun, skattar og fjármagn sé mun ódýrara en hér á landi. Síðast en ekki síst benda iðnrek- endur á að framleiðsla bjórs innan- Fiski- fréttir Áskriftar- sími 91-82300 lands spari gjaldeyri, veiti fjölda manns atvinnu, skapi ríkinu tekjur í formi skatta o.s.frv. Lítum nánar á innkaupsverð hinna 3ja erlendu tegunda. Ljóst er að um veruleg undirboð er að ræða því við höfum undir höndum tölur um verð sambærilegra tegunda frá öðrum er- lendum framleiðendum. Þær tegundir sem buðu lægst eru ÍTALDEILIS /MAKALAUS> MJÖÐUR’V; mm Ó. Johnson s Kaaber hf 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.