Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 60

Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 60
VERSLUN langt fyrir neðan „eðlilegt markaðs- verð“ ytra. ÁTVR fær kassa af Bud- weiser á 218 kr, af Kaiser á 264 kr og af Tuborg á 278 kr. Eftir okkar upp- lýsingum má ráða að innkaupsverð á Carlsberg (sem er framleiddur af sama aðila og Tuborg) sé 305 kr., Heineken 377 kr. og Löwenbrau 385 kr. hver kassi. Er þar t.d. um 46% hærra verð að ræða en í tilfellinu með Kaiser. Þá má nefna að sennilega kaupir bandaríski herinn á Keflavíkur- flugvelli kassann af Budweiser á 267 kr. en það er yfir 20% hærra verð en ÁTVR fær þann mjöð á. Það er því ljóst að niðurstöður út- boðsins gefa veruleg undirboð til kynna og þau verð eru því engan veg- inn sú viðmiðun sem hafa ber í huga þegar samið er um verð á innlenda bjórnum. Og þar stendur einmitt hníf- urinn í kúnni. NIÐURGREIDDUR BJÓR? Heyrst hafa fullyrðingar um að ís- lensku framleiðendurnir telji sig þurfa að fá 5-600 krónur fyrir kassann af öli og sennilega eru þær tölur ekki fjarri lagi. Við skulum búa til dæmi um mis- mun á innkaupsverði erlends bjórs og innlends til ATVR. Miðað er við 10 milljón lítra ársneyslu. Þá er fundið út meðalverð erlendu tegundanna, sem reynist vera 253 kr. á kassa og miðað við að Eimskipafélag íslands taki 24 kr. í flutningsgjald á kassa, en sú tala hefur heyrst nefnd. ÁTVR hefur því greitt 277 kr. fyrir kassann þegar hann er kominn til landsins. í hverjum kassa eru 7.92 lítrar af bjór og kostar því hver lítri í innkaupi 35 kr. 10 mill- jón lítrar kosta því 350 milljónir króna. Gefum okkur að innlendi framleið- andinn þurfi að fá 550 kr. fyrir kass- ann. Sama magn af slíkum miði kostar því 69.50 kr. lítrinn eða 695 milljónir miðað við sama magn og í fyrra dæm- inu. Mismunurinn er því 345 milljónir króna, erlendu framleiðslunni í hag. Þar við bætist svo sú verðstefna ÁTVR að hafa innlenda bjórinn allt að 30% ódýrari út úr versluninni en þann útlenda. Það er því ljóst að ÁTVR tapar hundruðum milljóna á því að taka innlendan bjór til sölu miðað við þau verð sem sá erlendi fékkst á. Um þetta hefur staðið styr og þessi mismunur í tölum lækkar ekki nema annað tveggja gerist: verð innlenda bjórsins reynist mun lægra en hér hefur verið reiknað með eða að verð útlenda bjórsins hækki mjög á næst- unni. Iðnrekendur hallast að seinni skýr- ingunni og bæta því við að Eimskip taki aðeins um 1/9 hluta af auglýstri verðskrá fyrir að flytja bjórinn til landsins og allir sjái að slíkt gangi ekki til lengdar. Þá er óþarfi að taka fram að í verði innlendu aðilanna eru ýmis gjöld og skattar sem renna til ríkis- sjóðs í einu eða öðru formi svo hér er ekki verið að ræða um tekjutap ríkis- sjóðs heldur Áfengisverslunarinnar sem slíkrar. LÖGLEGUR EÐA ÓLÖGLEGUR BJÓR Senn skal þessum bollaleggingum lokið. Einn er þó sá þáttur sem ekki hefur verið nefndur í þessari umfjöll- un en það er ólöglegur innflutningur á bjór, en eins og allir vita hefur sú atvinnugrein blómstrað um margra ára skeið. Verðstefna stjórnvalda ræður mestu um hvort smyglarar uni glaðir við sitt eður ei í framtíðinni. Hins veg- ar er ljóst að ÁTVR á mjög erfitt með að keppa við slíkan innflutning því „álagning“ á smyglinu er ærið há en tilkostnaður að sama skapi lágur. Kosti góður erlendur bjór 130-140 kr. dósin í Ríkinu þýðir það að kassinn mun kosta vel yfir 3000 krónum. Þar með verður hagkvæmara fyrir neyt- andann að kaupa smyglaðan varning og sængin því útbreidd fyrir hlutað- eigandi aðila. Eitt er þó sennilegt að gerist varð- andi smyglið: mest mun bera á þeim tegundum sem löglega eru fluttar inn. Það mun einfaldlega bera minna á slíkum gauksungum í hreiðri bjórunn- enda og því hættara á að vökulum augum tollheimtumanna ríkisins sjáist yfir slíkan varning. mDebet \d $gga Fjárhags- og launabókhald, innheimtur, tollskýrslugerð aðstoð og ráðgjöf o.fl. Ijósritun, ritvinnsla innbinding skjala Austurstræti 8 Símar 670-320,10106 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.