Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 62

Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 62
IÐNAÐUR Derek Mundell, gæðastjóri Ewos hf. að störfum á rannsóknastofunni. milljónir króna í ár og fjárfestingar verða örugglega miklar á komandi ár- um, segir Arni, en hann upplýsir að samhliða uppbyggingu verksmiðjunn- ar hafi þurft að bæta við starfsfólki. í upphafi störfuðu átta manns hjá EWOS hf. en starfsmenn nú eru 16 talsins. Ámi segir að eftir árið verði starfsmenn örugglega orðnir 25. Þess má geta að EWOS hf. og Fóður- blandan hf. hafa víðtækt samstarf á mörgum sviðum og eitt þeirra er samnýting í skrifstofuhaldi. — Við hefðum sennilega farið seint af stað ef Fóðurblandan hf. hefði ekki verið hér í húsinu en þessi samvinna þýðir að við komumst af með a.m.k. tveimur til þremur færri starfsmenn en ella, segir Arni. Þess má geta að samstarf fyrirtækjanna er að öðru leyti með þeim hætti að EWOS hf. á fóðurverksmiðjuna og selur Fóður- blöndunni hf. einfaldlega þann tíma sem fyrirtækið þarf. Fóðurverk- smiðjan er nú starfrækt frá því snemma á morgnana, fram til kl. 22 á kvöldin á virkum dögum og á laugar- dögum. Ámi reiknar með sólar- hringskeyrslu sex daga vikunnar á mesta annatímanum nú í sumar, en að hans sögn er framleiðslugetan um tíu þúsund tonn af fóðri á ári, miðað við mestu keyrslu. Að sögn Áma hefur stefnan ekki verið sett á neitt ákveðið framleiðslumagn en hann gerir ráð fyrir því að salan í ár verði um sjö þúsund tonn af fóðri. 35% MARKAÐSHLUTDEILD Að sögn Áma hafa eigendur EWOS hf. sett sér það markmið að auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á inn- anlandsmarkaði. — Gallinn er bara sá að það veit enginn maður, hve mikið verður framleitt af eldisfiski hérlendis á ár- inu. Það drepst alltaf töluvert af þeim seiðum sem sett eru út en við reikn- um með því að framleiðslan verði um 4500 tonn af laxi á árinu og sam- kvæmt því emm við með um 35% markaðshlutdeild í fóðurframleiðsl- unni. Við höfum verið að bæta við okkur fyrirtækjum í viðskipti að und- anförnu, allt stórum landsstöðvum, þannig að Jætta eru mjög áhugaverð viðskipti. I framhaldi af þessu hyggj- umst við bjóða upp á þá nýjung hér- lendis að afgreiða fóðrið í tankbflum til fiskeldisstöðvanna. Stöðvar eins og t.d. Lindarlax eru komnar með tölvu- stýrð fóðrunarkerfi og við munum einfaldlega dæla fóðrinu í tiltekin fóð- ursfló í stöðvunum. Þetta þýðir að fóðrið verður mun ódýrara og fóðrun- in sjálf verður bæði ódýrari og auð- veldari. Það verður byrjað á þessu á næstu vikum, segir Árni, en hann getur þess að EWOS hf. sækist nú í auknum mæli eftir því að gera lang- tímasamninga við viðskiptavini sína. Þessir samningar fela m.a. í sér að EWOS hf. mun veita aukna ráðgjöf vegna fóðrunar, sjá um gæðaeftirlit í stöðvum og tilraunastarfsemi. Það þýðir m.ö.o. að einstakar stöðvar geta óskað eftir því að gera tilraunir með ákveðnar fóðurtegundir í sam- ráði við EWOS hf. „LOÐNUVERKSMIÐJURNAR VORU STAÐNAÐAR" EWOS hf. framleiðir nú 15 tegundir af fiskeldisfóðri og Ámi sagði að sennilega yrði einum þremur til ijór- um nýjum tegundum bætt við á næst- unni. Stöðugt er unnið að vöruþróun og fyrirtækið er með eigið gæðaeftir- lit og rannsóknastofu. Að auki hefur 62

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.