Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 65
hafi vaxið örar en nokkur gat spáð
fyrir um og sérstaklega hafi þróunin
verið ör í ýmsum Asíulöndum undan-
farin misseri. Nú er svo komið að
menn sjá það fyrir að eftir s.s. hálfan
annan áratug verði orðinn skortur á
góðu hráefni í fiskeldisfóður. Menn
eru því farnir að svipast um eftir öðr-
um leiðum og hefur líftækniiðnaður-
inn verið nefndur í því sambandi.
Staða íslendinga sem framleiðenda
bæði á eldisfiski og fóðri ætti því að
vera sterk fyrir þennan atvinnuveg,
svo fremi sem ekki verður gengið um
of á þá fiskstofna sem eru undirstaða
fóðurframleiðslunnar.
ÚTFLUTNINGUR TIL FÆREYJA
Þrátt fyrir að EWOS hf. sé ekki
gamalt fyrirtæki hefur það þegar hasl-
að sér völl á sviði útflutnings. Frá því
að nýja verksmiðjan var tilbúin sl.
haust og fram til áramóta, var selt
fiskeldisfóður til Færeyja fyrir um 40
milljónir króna og Árni segist reikna
með að verðmæti þessa útflutnings í
ár verði á milli 140 og 150 milljónir
króna. Útflutningur til annarra landa
er ekki á döfinni en Árni segir að
EWOS hf. hafi alla möguleika á því að
selja fóður á austurströnd Bandaríkj-
anna og Kanada. Ein af níu EWOS -
verksmiðjum í heiminum er reyndar
staðsett á vesturströnd Kanada og
því þyrfti íslenska verksmiðjan að
keppa við fóður þaðan. Það ætti eftir
að koma í ljós hvort væri ódýrara að
flytja fóðrið með lest yfir þveran
Vesturheim eða með skipum frá ís-
landi.
í máli Árna kemur fram að mikil
samkeppni ríkir á fóðurmarkaðnum,
jafnt hér heima sem erlendis. Ámi
telur þessa samkeppni af hinu góða en
hún hafi þó vissulega líka sína ókosti.
Fiskeldi er áhættusöm atvinnugrein
og það tekur oft langan tíma að byggja
fyrirtækin upp, þannig að þau skili
arði. Skuldasöfnun fiskeldisfyrirtækja
hefur verið áhyggjuefni fóðurfram-
leiðendanna og Árni segir að á síðasta
ári hafi útistandandi skuldir aukist
gríðarlega mikið.
NÝJUNG Á MARKAÐI:
ELDÞOLNIR A-VEGGIR
Fyrirtækið A-veggir í
Reykjavík hefur nú á boðstól-
um nýja gerð eldvarnarveggja,
sem hafa ýmsa kosti fram yfir
hefðbundna inniveggi. Um er
að ræða veggi og klæðningar
sem byggð eru upp á blikkpróf-
ílum og gifstrefjaplötum er
læsast saman án þess að nagl-
ar eða skrúfur séu notaðar.
Blikkstoðirnar eru framleidd-
ar hjá fyrirtækinu en plöturnar
eru innfluttar frá Noregi. Eru
þær úr 20% spónatrefjum og
80% gifsi.
í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
kemur fram að A-veggir eru mjög eld-
þolnir, fljótlegir íuppsetningu, hafa mjög
hátt hljóðeinangrunargildi, þola vel raka
og eru auk þess sambærilegir í verði við
hefðbundna létta veggi. ÓlafurH. Ólafs-
son múrarameistari og Vörður Ólafsson
húsasmíðameistari reka A-veggi og eiga
fyrirtækið ásamt Edgar Guðmundssyni
og Óla J. Ásmundssyni er áður ráku Mát
hf.
Sérstakur útbúnaður inni í veggjunum
kemur í veg fyrir að steinull falli burt ef
eldur brennir annað byrði veggjarins og
er hann því mun eldþolnari en ella. Fleiri
kosti má nefna: Plötur A-veggja má nota
sem blindfræsta klæðningu á trégrind,
t.d. innan á útveggi og þess utan er
grunnur undir málningu óþarfur þegar
A-veggjaplötur eru notaðar. Loks eru
stoðir veggjanna úr blikki þannig að þeir
vinda sig ekki.
Þess má geta að A-veggir eru notaðir
í 12 hæða nýbyggingu Ármannsfells hf.
við Aflagranda í Reykjavík og fóru 215
tonn af plötum í það verk. A-veggir eru
til húsa að Tindaseli 3 og er síminn 91-
670022.
SVEINN MAGNÚSSON
AUGLÝSINGAR -
MARKAÐSRÁÐGJÖF
ÞÓRSGATA26
101 REYKJAVÍK
SÍMI 622270 ■
65