Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 5
RITSTJORNARGREIN
SJALFSTÆÐI
SEBLABANKA
í þrætum manna að undanförnu um það hvort rétt sé að
ráða stjórnmálamenn í stöðu bankastjóra Seðlabanka ís-
lands hefur þvf miður of lítið farið fyrir því sem skiptir
bankann og þjóðina hvað mestu máli; nauðsyn þess að
Seðlabankinn sé sjálfstæður í ákvarðanatöku og eins
óháður stjórnmálamönnum og frekast er kostur.
í þau fáu skipti, sem umræðan hefur þó komið upp,
hefur einn maður verið svarinn andstæðingur þess að
Seðlabankinn sé sjálfstæður. Þessi maður vill auka vald
stjórnmálamanna yfir bankanum sem allra mest. Með öðr-
um orðum, hann vill draga úr valdi og stjórnun banka-
stjóra og bankaráðs Seðlabankans.
Þessi maður er Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og einn umsækjenda um stöðu banka-
stjóra Seðlabankans. Þetta sjónarmið Steingríms gerir
hann ótrúverðugan og óhæfan sem stjórnanda bankans.
Skiptir þá engu hvort einhverjir telji hann hæfan vegna
fyrri starfa sem forsætisráðherra.
Eitt meginmarkmið sjálfstæðra seðlabanka í hinum
vestræna heimi er að halda uppi sterkri og ábyrgri stjórn
peningamála og stuðla að stöðugu verðlagi. Það er for-
senda þess að hægt sé að skapa raunverulegan hagvöxt og
þar með atvinnu. Þjóðir með sjálfstæða seðlabanka eiga
það sameiginlegt að hafa náð betri árangri en flestar aðrar
í efnahagsmálum.
Við stöðugt verðlag — og trausta sjálfstæða seðlabanka
— dregur úr verðbólguhræðslu fyrirtækja, neytenda og
sparifjáreigenda. Verðbólga hefur ekki áhrif á ákvarðanir
þeirra. Þetta er afar mikilvægt. Væntingar fólks um verð-
bólgu ýta einar og sér undir vaxtahækkanir. Stöðugt verð-
lag er því jarðvegur lágra vaxta og hagvaxtar.
Fleiri sterk rök eru fyrir sjálfstæði seðlabanka og
ábyrgri stjórn þeirra í peningamálum. Stöðugt verðlag er
langtímamarkmið. Stjórnmálamönnum hættir hins vegar
til að vinna með skammtímamarkmið í huga. Þetta stafar
meðal annars af því að stjórnmálamenn eru um of tengdir
ákveðnum hagsmuna- og þrýstihópum.
Sjálfstæður seðlabanki, sem heldur vörð um langtíma-
markmið, dregur þannig úr getu stjórnmálamanna við að
þjónusta hópa með skammsýn markmið, þrýstihópa sem
hugsa meira um eigin hag en hagsmuni heildarinnar.
Stöðugt verðlag — jarðvegur lægri vaxta, meiri hagvaxtar
og aukinnar atvinnu — er hagsmunir heildarinnar.
Um nokkurt skeið hefur ekki verið hagvöxtur á íslandi.
Það er afleiðing vitlausra fjárfestinga vegna stöðugrar
verðbólgu síðustu tveggja áratuga og beinum afskiptum
stjórnmálamanna, með skammsýn markmið, af fjárfest-
ingum. Á þessum tíma var Seðlabanki íslands áberandi
ósjálfstæður og um of stjórnað beint af ríkisstjórnum.
Hin nýju lög um Seðlabanka íslands hafa aukið völd
hans og sjálfstæði. Helst þyrfti sjálfstæði hans að vera
meira. Allra síst þarf Seðlabankinn hins vegar á banka-
stjóra að halda sem vill auka ósjálfstæði hans.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristín
Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið
er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 812300, Auglýsingasími 685380
— RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 — STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: SteinarJ. Lúðvíksson
— FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.995 kr. fyrir 6.-10. tbl. — 10% lægra áskriftarverð ef greitt er
með greiðslukorti. 499 kr. á blað nema bókin 100 stærstu sem er á 999 kr. LAUSASÖLUVERÐ: 599 kr. —
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
GRAFÍK: G. Ben. prentstofa hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5