Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 42
NÆRMYND
FELLUR í GÓÐAN JARÐVEG AÐ
MAGNÚS BERST LÍTT Á
Það hefur komið í hlut Magnúsar að
stýra Kaupfélagi Eyfirðinga gegnum
samdráttarskeið sem varað hefur nú
um hríð og fá fyrirtæki hafa farið var-
hluta af. Meðal þess sem gert var til
að mæta samdrætti hjá KEA var að
segja upp fólki. Þetta var gert fljót-
lega eftir að Magnús tók við og kunn-
ugir fullyrða að hann hafi tekið
það mjög nærri sér og eytt
miklum tíma í að undirbúa upp-
sagnirnar og reynt í lengstu
lög að forðast að til þeirra
þyrfti að koma. Þótt ýmis stór
orð féllu í kringum það lægði
öldurnar fljótt og er það þakk-
að því hve heiðarlegur og
hreinskiptinn Magnús var í
samskiptum sínum við þá sem
sagt var upp. Þessu fylgdu
talsverðar skipulagsbreyting-
ar sem gerðar voru á efstu
stigum fyrirtækisins. Það hef-
ur og fallið í góðan jarðveg að
Magnús berst lítt eða ekki á í
sínu starfi sem þykir hæfa á
samdráttartímum. Menn
segja reyndar að hann myndi
aldrei láta standa sig að ógæti-
legri meðferð fjármuna þó svo
að gósentímar væru hjá kaup-
félaginu.
SUMUM ÞYKIR HANN OF
LITLAUS
SEM KAUPFÉLAGSSTJÓRI
Sú hrifning sem margir létu í ljósi af
Magnúsi, bæði sem persónu og
stjórnanda, var ekki alveg einróma
því einn viðmælenda blaðsins lét svo
ummælt að sér þætti hann jaðra við
að vera of litlaus sem kaupfélagsstjóri
KEA, eins stærsta fyrirtækis á ís-
landi.
VEIÐIR FUGLOGFISK
Þeim frístundum sem Magnús eyð-
ir ekki með fjölskyldu sinni ver hann
stundum í veiðiskap. Hann gengur til
rjúpna og gæsa stöku sinnum og er
félagi í veiðifélagi Laxár í Aðaldal og
þangað fer hann á hverju sumri og
rennir fyrir lax með félögum sínum.
Meðal veiðifélaga hans og vina eru
Geir Friðgeirsson, barnalæknir á Ak-
ureyri og séra Pétur Þórarinsson,
prestur í Laufási. Ennfremur má
nefna að Jóhann Gauti, faðir Magnús-
ar, gengur með honum á skytterí og
einnig Axel, tengdasonur Magnúsar,
sem er trúlofaður Gunnhildi dóttur
hans. Eftirlætis veiðisvæði Magnús-
ar og félaga hans eru í landi Laufáss
við Eyjafjörð en þar þykja góðar veiði-
lendur, sérstaklega fyrir gæs og iðu-
lega eru þeir félagar fengsælir.
Magnús er giftur Hrefnu G. Torfa-
dóttur kennara. Þau kynntust
skömmu eftir menntaskóla og fóru
saman til Svíþjóðar og námu bæði við
Uppsalaháskóla. Meðan Magnús
lærði rekstrarhagfræði lagði Hrefna
stund á ensku og sænsku og hefur
fengist við kennslu á Akureyri og
kennt bæði ensku og sænsku. Þau
eiga saman þrjú böm, Gunnhildi Lily,
Hrafnhildi Ósk og Magnús Torfa.
MIKILL FJÖLSKYLDUMAÐUR
Eins og áður sagði er Magnús mik-
ill fjölskyldumaður og saman stundar
fjölskyldan gönguferðir eða bílferðir
þar sem síminn lætur hinn önnum
kafna fjölskylduföður í friði. Ónefndur
er einn fjölskyldumeðlimur, sem er
tík af íslensku kyni sem allir hafa mik-
ið dálæti á, og iðulega má sjá Magnús
úti að skokka eða ganga með heimilis-
hundinn sem nú er nokkuð við aldur,
eða á 11 ári.
„Magnús er afbragðs maður og
mörgum kostum gæddur. Við höfum
þekkst í 20 ár,“ segir séra Pétur Þór-
arinsson í Laufási.
„Þetta er afar traustur náungi sem
hefur ekki hátt um sjálfan sig og lætur
ekki mikið á sér bera. Hann er
mjög vinnusamur, glöggur og
framsýnn. Hann er athugull og
gætinn og fer ekki út í hlutina
að óathuguðu máli. í vinahópi
slakar hann á og skemmtir sér
en er aldrei margmáll því hann
hugsar áður en hann talar.
Hann er lítið fyrir að dæma
aðra og tekur sjaldan mikið
upp í sig og er yfirleitt fremur
alvarlega þenkjandi."
FRJÁLSLYNDUR
FRAMSÓKNARMAÐUR
Flestum ber saman um að
Magnús Gauti sé framsóknar-
maður. Maður sem þekkir
hann vel segir að hann tilheyri
frjálslyndari armi Framsóknar-
flokksins. Ekki þarf að þykja
neitt einkennilegt þótt það sé
sjálfsagður hlutur að maður í
þessu embætti sé framsóknar-
maður þó sumir vilji meina að
hugtakið frjálslyndur fram-
sóknarmaður sé þversögn.
Magnús mun vera samvinnumaður
í þess orðs bestu merkingu. Maður
sem trúir enn á hugsjónirnar um mátt
hinna mörgu og samstöðu þeirra til
stórra verka.
Honum þótti eins og öðrum blóð-
ugt að horfa upp á Sambandið liðast í
sundur. En þrátt fyrir það skipbrot
hefur hann alls ekki, frekar en margir
aðrir, misst trúna á hugsjónir þær
sem samvinnuhreyfingin var byggð á.
Þetta þýðir reyndar ekki að Magn-
ús sé það sem kallað er yfirlýstur
framsóknarmaður og hann er reyndar
sagður hafa breytt um stíl í KEA hvað
þetta varðar og spyr ekki um stjóm-
málaskoðanir manna þegar hann ræð-
ur þá til starfa heldur um hæfni þeirra.
Þetta þykir tímanna tákn.
42