Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 63
ERLEND VEITINGAHÚS
DOWN UNDER í FLÓRÍDA
Flugleiðir hafa nú í vetur
haldið uppi góðum samgöngum
við sólskinsfylkið Flórída. Flog-
ið er til ORLANDO og Fort Lau-
derdale.
Raunar er það undirrituðum óskilj-
anlegt að ekki skuli fleiri íslendingar
en raun ber vitni fara til Flórída yfir
vetrartímann. Vart er hægt að hugsa
sér betri stað til að dvelja á þegar
myrkur og kuldi hrjá landsmenn.
Veðurfar er einstaklega þægilegt í
Flórída y6r vetrartímann. Fort Lau-
derdale hefur verið kallað „Feneyjar“
Bandaríkjana, og það ekki að ástæðu-
lausu. Um borgina liggja 300 km af
skurðum og síkjum sem bátar sigla
um.
í Fort Lauderdale taka menn ekki
leigubíl heldur leigubát eða Water
taxi. Nokkur hópur íslendinga hefur
keypt sér hús á Flórída og dvelur þar
hluta vetrar. Þá hefur iðnfyrirtækjum
margskonar og verksmiðjum fjölgað
töluvert í fylkinu en nógur vinnukraft-
ur er til staðar í Flórída. Margir ís-
lendingar eiga því erindi þangað ann-
aðhvort í viðskiptaerindum eða til
hvíldar og hressingar.
í Fort Lauderdale er fjöldi veitinga-
húsa og nokkur þeirra mjög góð. Þau
sem eru í hæðsta gæðaflokknum eru
yfirleitt mjög dýr og er boðið upp á
franska eldhúsið. Eitt besta veitinga-
húsið í Fort Lauderdale ef miðað er
við verð er THE DOWN UNDER.
Staðurinn hefur verið starfræktur í 25
ár og er hann í eigu Leonce Picot, en
hann er einn af helstu vínfræðingum
Bandaríkjanna.
FJÖLDIVERÐLAUNA 0G
FRÁBÆR VÍNSEÐILL
THE DOWN UNDER hefur fengið
fjölda verðlauna fyrir framúrskarandi
matargerð og einn besta vínseðil sem
um getur á bandarísku veitingahúsi.
Yfirmatreiðslumaðurinn er franskur
Richard Ruis að nafni. Það þýðir þó
SigmarB. Hauks-
son skrifar reglu-
lega um erlenda
bisnessveitinga-
staði í Frjálsa
verslun.
ekki að eingöngu sé matreitt að
frönskum hætti, þó svo að nokkrir
franskir úrvalsréttir séu á matseðlin-
um. Það er nefnilega matseðillinn á
THE DOWN UNDER sem gerir
staðinn svo sérstakan.
MATSEÐILLINN ER BANDARÍSK-,
FRANSK-ÍTALSKUR
Segja má að matseðillinn sé banda-
rísk-fransk-ítalskur, en það gætir
einnig áhrifa frá eyjum í Karabíska
hafinu. Á matseðlinum eru eins og
áður sagði, úrvalsréttir úr klassíska
The down under hefur fengið fjölda
verðlauna fyrir framúrskarandi
matargerð og einn besta vínseðil
sem um getur á bandarísku veit-
ingahúsi.
eldhúsinu þ.e.a.s. aðallega því
franska. Þá eru klassískir góðir
Bandarískir réttir á seðlinum, góðar
steikur og salöt.
ÝMSAR TEGUNDIR AF SKELFISKI
Þá er boðið upp á ýmsar tegundir af
skelfiski en hann er mjög góður í Flór-
ída og mikið úrval á boðstólnum. Það
er svolítið óvenjulegt að á þessum
öndvegisveitingastað er hægt að fá
hamborgara, en þessi réttur nýtur lít-
illar virðingar á meðal sælkera. En
hamborgarinn á THE DOWN UND-
ER er matreiddur eins og hver annar
réttur — með sömu alvöru og aðrir
úrvalsréttir á matseðlinum. í stuttu
máli þá geta gestir á einu borði á THE
DOWN UNDER verið að snæða ír-
anskan kavíar, ostrur eða léttsteikt
andabrjóst á meðan gestirnir á næsta
borði eru að borða hamborgara, rifja-
steik eða lauksúpu.
VERÐLAG HAGSTÆTT
MIÐAÐ VIÐ GÆÐI
Allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Merkilegastur er þó vín-
kjallarinn en þar er mikið úrval af góð-
um vínum mest af vínum í milliverð-
flokki eða jafnvel ódýrum vínum.
Hægt er að fá margar tegundir af vín-
um í glasatali og í hálfum flöskum. Alls
eru á vínseðlinum 450 tegundir af
víni. Það er ævintýri að snæða á THE
DOWN UNDER og verðlagið er mjög
hagstætt miðað við gæði. Allir sem
heimsækja Flórída, ég tala nú ekki um
Fort Lauderdale, ættu að snæða á
THE DOWN UNDER - þið verðið
ekki fyrir vonbrigðum.
THE DOWN UNDER
3000 E. OAKLAND PARK
BOULEVARD
SÍMI (305) 563-4123
FAX (305) 563-2070
63