Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 33
mmmmm^^m
kaðar og túlkun á upplýsingum; og
loks ráðgjöf fyrir stærri fjárfesta og
stofnanir í íjárfestingu á alþjóðlegum
mörkuðum sem og hér innanlands.
Yngvi hefur starfrækt eigin ráð-
gjafarþjónustu undanfarin misseri en
hann var áður hagfræðingur Félags
íslenskra iðnrekenda og hjá Þjóð-
hagsstofnun. Hann hefur MA gráðu í
hagfræði frá Queen’s University í
Kingston í Kanada.
Sverrir starfaði hjá Kaupþingi frá
byrjun ársins 1992 en þar áður sem
hagfræðingur verðbréfafyrirtækisins
MSC a/s í Kaupmannahöfn. Hann er
með doktorspróf í hagfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla.
STJÓRNENDUR ERU
SMÁM SAMAN AÐ VAKNA
Þeir segja að margir íslenskir
stjómendur séu að átta sig á auknum
möguleikum á alþjóðlegum fjár-
magnsmarkaði og gildi þess að fylgj-
ast vel með til að forðast áföll.
„Menn eru smám saman að vakna.
Stjómendur eyða kannski öllum
kröftum sínum við að spara í rekstrar-
kostnaði fyrir nokkrar milljónir en
tapa svo margfalt þeirri upphæð í
gengistapi vegna þess að þau mál sitja
á hakanum. Ábyrg stjómun hlýtur
hins vegar að byggjast á því að allir
þættir í rekstri fyrirtækja séu með
sem minnstum tilkostnaði," segir
Sverrir.
Með áhættustýringu og framvirk-
um samningum eru stjómendur að
tryggja sig gagnvart erlendum geng-
isbreytingum. íslensk fyrirtæki, sem
eru í miklum erlendum samskiptum;
með erlend lán, tekjur erlendis frá
eða hráefniskaup að utan, geta orðið
fyrir verulegu gengistapi vegna inn-
byrðis breytinga á gengi erlendra
mynta.
BJÓÐUMST TIL AÐ TAKA
AD OKKUR ÁHÆTTUSTÝRINGU
„Það er mikilvægt að myntsam-
setning erlendra lána taki mið af sam-
setningu tekna og horfum á gjaldeyr-
is- og fjármagnsmarkaði. Þess vegna
bjóðumst við til að fara yfir erlend
fjármál fyrirtækja og gefa stjómend-
um ráð. í mörgum tilvikum tökum við
að okkur að sjá um áhættustýringu
vegna heildarskulda og tekna í er-
lendri mynt. Við fáum upplýsingar af
alþjóðamörkuðum beint inn á borð til
okkar og teljum okkur í betri stöðu til
að meta upplýsingar og annast þessi
mál fyrir stjómendur fyrirtækja en þó
auðvitað í náinni samvinnu við þá,“
segir Sverrir.
Möguleikar á að tryggja sig á al-
þjóðamörkuðum með framvirkum
samningum eru afar fjölbreytilegir.
Fyrir utan að tryggja fast gengi vegna
erlendra lána er líka hægt að festa
sjálft verðið, til dæmis verð á útfluttri
vöru eða á aðkeyptu hráefni. Einnig
er hægt að festa vexti og fleira. Núm-
er eitt er auðvitað að stjómendur ís-
lenskra fýrirtækja átti sig á þeim
kostum sem bjóðast.
HVAÐ ER FRAMVIRKUR
SAMNINGUR?
En hvað er framvirkur samningur?