Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 45
með hægar boðleiðir; seinvirk við- brögð við kröfum markaðarins og síð- ast en ekki síst þá þóttu ákveðnir framkvæmdastjórar á toppnum allt of lengi að taka ákvarðanir." Eftir þetta vissi hann nákvæmlega í hvað hann ætti að eyða kröftum sín- um. Hann orðar þessa aðferð sína svona: „Það er mun meiri þekking hjá fólkinu í fyrirtækjunum en menn gera sér grein fyrir.“ SPURÐU RITARANA, ÞEIR VITA HVERJIR RAUNVERULEGA STJÓRNA Mike Walsh heldur áfram: „Ef þú hefur enn á tilfinningunni að þú hafir ekki fengið nægar upplýsingar með því að fara um fyrirtækið og spyrja fólkið skaltu gera eins og Howard Ha- as, við Háskólann í Chicago, ráðlagði mönnum. Taktu nokkra ritara með þér í hádegisverð. Venjulega vita þeir nákvæmlega hverjir hafa hin raun- verulegu völd í fyrirtækjum. Skipurit- ið er síðasti staðurinn til að fínna út hver hefur völdin." Það hjálpar einnig að heim- sækja verksmiðjur og ræða við viðskiptavinina. En gættu þess vel að hafa engan af gömlu starfsmönnum fyrirtækisins með þér. Þá eru litlar líkur á að þú fáir hispurslaus svör. AÐSKIPTAUM LIÐ Á TOPPNUM, ÞAÐ ER EKKI ENDILEGA NAUÐSYNLEGT Sú kenning hefur verið við lýði varðandi utanaðkomandi forstjóra að nauðsynlegt sé að skipta um helstu framkvæmda- stjóra í leiðinni og hinn nýi for- stjóri komi inn með sitt eigið lið. Rökin eru að þeir gömlu séu annað hvort staðnaðir eða of hollir undir gamla stjórnunarfyr- irkomulagið. Þessi kennig er af mörgum talin röng. Það er talið nauðsynlegt að nýr, utanað- komandi forstjóri komi inn með nokkra lykilmenn, sem hann getur treyst, sérstaklega á sviði fjármála. Hins vegar má ekki vanmeta þá framkvæmdastjóra sem fyrir eru í fyrirtækinu, þeir eru bæði hæfileikaríkir og vilj- ugir. Þegar Stanley Gault yfir- gaf forstjórastólinn hjá Rubbermaid árið 1991 og tók við Goodyear upp- götvaði hann að flest af fólkinu hjá Goodyear hafði hæfileika — en þeir voru bara ekki nýttir rétt. „Málið var ekki skortur á hæfileikum, málið var að byggja upp liðsheild," segir Stan- ley Gault. Forstjórar, eins og Gault, Walsh og Allaire, segja að í hverju fyrirtæki séu um tólf menn sem spili lykilhlut- verk. Finndu strax út hverjir þeir eru og fáðu þá fljótt í lið með þér. Þeir eru þínir fylgismenn sem koma hlutunum í verk, breiða út boð þín um breyting- ar. En hvemig kemur þú auga á þá? Walsh segir: „Ef þú getur ekki strax rnyndað þér skoðun um fólk, þegar þú sérð það, þá áttu ekki heima í leikn- um.“ EKKIALLTAF BESTAÐTÁLGA FYRIRTÆKIÐ HRESSILEGA NIÐUR Stórfelldur niðurskurður á fjölda starfsmanna er alls ekki alltaf besta leiðin fyrir nýjan forstjóra til að bæta reksturinn. Innan Wall Street er sú skoðun ríkjandi að Fisher muni fækka starfsmönnum um 35 þúsund hjá Kodak en nú eru þar um 110 þúsund starfsmenn. Þetta er mun meira en þeir 10 þúsund starfsmenn sem Kodak hefur þegar tilkynnt að sagt verði upp. Eflaust gætu uppsagnir 35 þúsund starfsmanna Kodak aukið virði hluta- bréfa á skömmum tíma en hins vegar haft slæm eftirköst þegar til lengdar lætur. Þrátt fyrir vandræði Kodak eru margir á þeirri skoðun að þau stafi ekki af of mörgum starfsmönnum eða of háum kostnaði í rannsóknar- og þróunarstarfi. Hin raunverulegu vandræði eru talin vera þau að fyrir- tækið komi eklri sinni góðu tækni nægilega fljótt og vel á markað. Þeir segja að Kodak þurfi skurðlækni en ekki slátrara og að Fisher sé rétti maðurinn í það starf. Fisher hefur sagt að hann muni leggja áherslu á að auka fjárstreymið (cash flow) innan fyrirtækisins. Það getur hann gert með því að end- urskipuleggja fyrirtækið, bæta starfsaðferðir, koma vörum hraðar á markað og minnka skrifræðið, ofskipulagninguna. Til langs tíma mun endurskipu- lagning örugglega fækka störf- um hjá fyrirtækinu en það gerist þá að minnsta kosti með skyn- semi því innan þess sé mikill slagkraftur sem laða þurfi betur fram. EYDDU EKKI0F MIKLUM TÍMA ÍAÐKYNNA ÞÉRALLA HLUTI Stundum er spurt hvernig ut- anaðkomandiforstjóri, sem ekki þekkir fyrirtækið, starfsmenn þess og deildir, geti verið rétti maðurinn og náð tökum á stjórn- un þess. Hann þurfi langan tíma til að setja sig inn í hlutina sem innanhússmenn þurfi ekki. Svarið er að utanaðkomandi for- stjóri þarf í raun ekki að setja sig inn í alla hluti til að stjórna. Hann er með sérfræðingana og þeir eru hans dráttarklárar. Eyði hann miklum tíma í að verða sér- fræðingur á öllum sviðum, fara nákvæmlega ofan í saumana á allri starfseminni, er líklegt að NOKKRIR UTANAÐKOMANDI FORSTJÓRAR Lawrence Bossidy, utanað- komandi forstjóri Allied- Signal, hefur náð undra- verðuin árangri. I Frank Cahouet, fyrsti utan- aðkomandi aðalbankastjóri Mellon Bank. Stanley Gault, fyrrum for- stjóri Rubbermaid, er þjóð- sagnarpersóna sem hefur gjörbreytt rekstri Goodyear. Louis Gerstner, áður hjá RJR Nabisco, en nú forstjóri IBM. Mike Walsh, forstjóri Ten- neco, á að baki góðan feril við að koma fyrirtækjum á beinu brautina. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.