Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 57
FOLK
ARNIPETUR JONSSON, SKIPA-
AFGREIÐSLU JES ZIMSEN
„Skipaafgreiðsla Jes Zimsen hf. stendur á gömlum merg en þar er fylgst vel með
nýjungum í flutningsmiðlun og starfsfólkið er ungt,“ segir Arni Pétur sem er aðeins
27 ára gamall framkvæmdastjóri.
„Skipaafgreiðsla Jes
Zimsen er alhliða flutn-
ingsmiðlunarfyriræki.
Sögu þess má rekja aft-
ur til 1894 en fyrirtækið
hefur aðlagað sig
breyttum aðstæðum og
leggur áherslu á flug-
safnsendingar, hrað-
sendingar, tollskýrslu-
gerð og aðra þætti nú-
t ímaflutningaþjónustu.
Við leggjum aherslu á
að þjónusta hvern við-
skiptavin eins vel og
hægt er og helst aðeins
betur.“ segir Árni Pétur
Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skipaafgreiðslu
Jes Zimsen.
Árni Pétur er 27 ára Bol-
víkingur. Hann byrjaði
snemma að hjálpa afa sínum
í söluskála og bensínstöð
Shell í Bolungarvík. Árni var
í tvo vetur í Menntaskólan-
um á ísafirði en fór þaðan í
Verslunarskóla íslands og
tók stúdentspróf 1986.
Hann lauk síðan prófi frá
viðskiptadeild Háskóla ís-
lands 1991. Hann byrjaði að
vinna sem markaðs- og
sölustjóri hjá Skipaaf-
greiðslu Jes Zimsen hf. í
febrúar 1991, á meðan hann
var enn í Háskólanum, en
hafði áður unnið að mark-
aðsverkefnum fyrir ýmis
fyrirtæki. í júní 1993 var
hann síðan ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis-
ins.
„Stór þáttur í starfsemi
fyrirtækisins er tollskýrslu-
gerð fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga, t.d. sjáum við
alveg um tollskýrslugerð
fyrir stór fyrirtæki eins og
Hagkaup, Ikea, Kosta Boda
og Baug, og einnig tíma-
bundið fyrir ýmis fyrirtæki
vegna sumarfría eða for-
falla,“ segir Árni Pétur.
„Flugsafnsendingar er
vaxandi þjónusta sem fyrir-
tækið hefur boðið í nokkur
ár og kemur örugglega til
með að eflast í framtíðinni.
Nýlega gerðum við samning
við þýskt flutningsmiðlunar-
fyrirtæki, Kuhne & Nagel,
sem er með útibú í flestum
löndum heims. Þeir munu
sjá um að safna saman frakt
frá öllum helstu borgum á
meginlandi Evrópu og
senda á hagkvæman hátt til
Lúxemborgar en þaðan er
flogið með þær sem safn-
sendingar til íslands. Með
þessu lækkar innanlands-
kostnaður í Evrópu, þ.e.
eftirkrafan, og einnig flutn-
ingskostnaður í fluginu. Við
bjóðum einnig upp á flug-
safnsendingar frá Bretlandi,
Bandaríkjunum og Norður-
löndunum.
í ágúst sl. gerði Skipaaf-
greiðslaJesZimsenhf. sam-
starfssamning við United
Parcel Service (UPS) sem
er eitt stærsta hraðsending-
arfyrirtæki í heimi. Við höf-
um boðið upp á hraðsend-
ingar til og frá landinu í
nokkur ár. Samningurinn
tryggir stöðu okkar á þess-
um markaði."
ÍÞRÓTTAFRÍK
Sambýliskona Árna Pét-
urs er Guðrún Elísabet
Baldursdóttir hárgreiðslu-
kona.
íþróttir og útivera eru
áhugamál Árna Péturs og
hefur hann haft mjög gaman
af íþróttum frá því hann man
eftir sér. Hann hefur þó
þurft að draga verulega úr
íþróttaiðkun sinni eftir að
hann gerðist framkvæmda-
stjóri. Nú spilar hann fót-
bolta einu sinni í viku og
reynir að fara í erobik eða
líkamsrækt tvisvar í viku.
„Ég hef gaman af göngu-
ferðum úti í náttúrunni og
fór oft í ferðir með Ferðafé-
lagi íslands þegar ég var
yngri. Ég hef líka þurft að
minnka útiveruna verulega
vegna vinnunnar. Sambýlis-
kona mín er frá ísafirði og
við reynum að fara vestur á
hverju sumri,“ segir Árni
Pétur.
57