Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 53

Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 53
þetta allt saman og miklu meira til. Það nefnist MSD (Microsoft Diag- nostics) og kerfisskrá þess, sem nefnist Msd.exe, er geymd í MS- DOS efnisskránni. Ekki er minnst einu orði á þetta greiningarkerfi í handbókum margra PC-tölva og því til lítils að leita í atriðaskránni að því. Enga skýringu kann ég á ástæðu þess. Eg veit held- ur ekki með hvaða útgáfu af DOS MSD kom fyrst en það er a.m.k. að finna í útgáfu 6.0. Þá er það að finna geymt í Windows 3.1-deildinni í DOS 5.0. Með MSD er hægt að prenta skýrslu sem greinir frá flestu sem skiptir máli í uppbyggingu vélar og stýrikerfis. Skýrslan er ekkert smá- ræði, eins og hún kemur af skepnunni getur hún orðið um 30 síður og þar er auðvitað heilmargt sem skiptir venju- legan notanda engu máli. MSD inniheldur ekki prentstjóra fyrir „postscript" geislaprentara og því gerist ekkert ætli maður að reyna prenta með þannig búnaði. En til að nota frekar geislaprentara en nála- prentara fyrir skýrsluna valdi ég þann kostinn að sækja skrána Re- port.msd, en sú skrá inniheldur skýrsluna eftir að MSD hefur verið ræst, sem ASCII-skjal og opna í WordPerfect. Um leið notaði ég tækifærið og smækkaði letrið í skránni niður í 8 punkta. Það var eins gott því skýrslan reyndist samt sem áður vera 23 blaðsíður. MSD er heildstætt kerfi með mús- arstýrðum valmyndum og skjáhjálp. Það er sérstaklega tekið fram í leið- beiningum með því að til að fá sem nákvæmasta úttekt sé ekki ráðlegt að keyra það undir Windows eða DOS- kvaðningunni í Windows utan við Windows beint frá DOS-kvaðningu með skipuninni C:\>msd Þá ræsist MSD-kerfið og fer yfir búnaðinn. Skilaboð til notandans birt- ast á skjánum og að þeim loknum birt- ist valmynd. Frá henni má skoða skýrslu yfir 13 afmarkaða þætti tölvu- kerfisins á skjánum eða prenta hana. Á valmyndinni er samanþjöppuð lýs- ing á hverjum þessara 13 þátta. Vilji maður fá frekari útlistun er smellt með músinni á viðkomandi svið eða stutt á ENTER þegar bendillinn er á upplýsta stafnum í sviðinu. Skipana- lína er efst á skjánum með Skrár (Fi- les), Tól (Utilities)og Hjálþ (Helþ). Með því að velja sviðið TSR Programs fæst t.d. skrá yfir þau for- rit sem geymd eru í vinnsluminninu (minnislæg forrit) ásamt upplýsingum um stærð þeirra. Án þess að fara út í mjög tæknilegt efni er ástæða til að fjalla hér aðeins um atriði sem getur haft áhrif á nýt- ingu vinnsluminnis. Fjöldi File-ein- inga, sem úthlutað er í skránni Con- fig.sys, segir til um hve margar skrár DOS getur unnið við samtímis. Hver eining teppir vinnsluminni sem nemur 40 - 60 bætum. í mínu tilfelli er t.d. 500 bætum minna vinnsluminni til ráðstöfunar þegar skipunin er Fi- les=40 í stað Files=30 í skránni Config.sys. Þetta atriði skiptir flesta notendur engu máli en fyrir þá fáu, sem þurfa að nýta minnið til hins ýtr- asta, getur skipt máli að úthluta ekki fleiri File-einingum en nauðsynlegt er. Auðveldast er að prófa sig áfram. Minnsti fjöldi File-eininga er 8 og mestur 255. Eftir að Config.sys hefur verið breytt þarf að endurræsa tölv- una. Þegar lokið er við að prenta MSD- skýrsluna yfir kerfið, og hún komin á vísan stað í möppu, eru meiri líkur á því að bilanir megi lagfæra með minni fyrirhöfn og tilkostnaði en áður - jafn- vel í gegnum síma sé tæknimaðurinn látinn vita að skýrslan sé til. Microsoft Diagnostics version 2.00 2/28/94 4:18pm Page 2 Memory Legend: Available " " RAM "##" ROM "RR" Possibly Available " . . " EMS Page Frame "pp" Used UMBs "UU" Free UMBs "FF" 1024K FC00 RRRRRRRRRRRRRRRR FFFF Conventional Memory F800 RRRRRRRRRRRRRRRR FBFF Total: 640K F400 RRRRRRRRRRRRRRRR F7FF Available: 617K 96 0K F000 RRRRRRRRRRRRRRRR F3FF 631904 bytes EC00 FFFFFFFFFFFFFFFF EFFF E800 FFFFFFFFFFFFFFFF EBFF Extended Memory E400 FFFFFFFFFFFFFFFF E7FF Total: 7168K 896K E000 UUUUUUUUUUUUUUUF E3FF DC00 UUUUUUUUUUUUUUUU DFFF MS-DOS Upper Memory Blocks D800 uuuuuuuuuuuuuuuu DBFF Total UMBs: 188K D400 uuuuuuuuuuuuuuuu D7FF Total Free UMBs: 6 0K 832K D000 uuuuuuuuuuuuuuuu D3FF Largest Free Block: 43K ccoo uuuuuuuuuuuuuuuu CFFF C800 uuuuuuuuuuuuuuuu CBFF XMS Information C400 RRRRRRRRRRRRRRRR C7FF XMS Version: 3.00 768K cooo RRRRRRRRRRRRRRRR C3FF Driver Version: 3.07 BC00 ################ BFFF A20 Address Line: Enabled B800 ################ BBFF High Memory Area: In use B400 UUUFFFFFFFFFFFFF B7FF Available: 4760K 7 04K B000 ###UUUUUUUUUUUUU B3FF Largest Free Block: 4760K AC00 AFFF Available SXMS: 47 6 0K A800 ABFF Largest Free SXMS: 4760K A4 00 A7FF 640K A000 A3FF Video Video Adapter Type: VGA Manufacturer: Cirrus Model: Integra Display Type: VGA Color Video Mode: 3 Number of Columns: 80 Number of Rows: 25 Video BIOS Version: CL-GD540X/542X VGA BIOS Version l.OOd ST Integrated AVGA3/5422 VGA BIOS Rel. 1.00.04 Integrated AVGA3/5422 VGA BIOS Rel. 1.00.04 Video BIOS Date: 08/07/92 VESA Support Installed: Yes VESA Version: 1.02 VESA OEM Name: Cirrus Logic GD-5422 VGA Secondary Adapter: None ------------------------------ Network -------------------------------- Network Detected: No Kerfisskýrsla nr. 2 og nr. 3. „Um vinnsluminnið" og „Um skjástýringu“. Þannig greinir MSD minnisrýmd og notkun þess auk þess að gefa upplýsing- ar um skjákortið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.