Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 60

Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 60
TOLVUR ÖRTÖLVUTÆKNI: F^~TK9 HYGGST BJÓÐjyQ ALLAN PAKKANN TIL AD MÆTA ALMENNARI TÖLVUNOTKUN OG KRÖFUHARÐARI VIÐSKIPTAVINUM Á TÖLVUMARKAÐNUM Örtölvutækni hefur nú lagt fram nýjar áherslur í stjómun fyrirtækisins sem ganga fyrst og fremst út á að auka þjónustuna. Fyrirtækið hyggst bjóða upp á heildarlausn til að mæta al- mennari tölvunotkun og kröfu- harðari viðskiptavinum á tölvu- markaðnum. Heildarlausnin spannar greiningu á þörf, hönn- un og uppsetningu upplýsinga- kerfa, umsjón með útboðum og vali á búnaði svo og rekstur, eft- irlit og viðhald tölvukerfa. Hin nýja áhersla fyrirtækisins kem- ur til af breyttum tölvumarkaði bæði hér á landi og erlendis. Eftir að tölvu- notkun varð almennari hafa nú æ fleiri skoðun á því hverjar þarfirnar séu og meiri kröfur eru gerðar til hugbúnað- arins. Á sama tíma hefur verð á tölvu- búnaði lækkað og einnig framlegðin af tölvusölunni. Þannig fæst nú mun minna upp úr hverri meðalsölu en til dæmis fyrir tveimur árum. Að sögn Gísla R. Ragnarssonar, markaðsstjóra Örtölvutækni, er markmiðið að auka þjónustuþáttinn í rekstrinum og koma þannig til móts við almenn fyrirtæki sem spyrji sig gjarnan hvort þau eigi sjálf að reka umfangsmiklar tölvudeildir eða kaupa þjónustuna af utanaðkomandi fyrir- tæki. Við það að tölvunotkunin er orðin almennari og notendur kröfuharðari, 0 I söludeild. Frá vinstri: Tryggvi Þor- steinsson, Karl Wernersson, sölust- jóri og Halldór J. Jörgenson. auk þess sem rekstur fyrirtækja og stofnana er nú mun háðari tölvu- vinnslu en áður, verður hönnun, upp- setning og rekstur upplýsingakerf- anna flóknari og krafan um sérhæf- ingu meiri. Örtölvutækni hyggst mæta þeirri þörf m.a. með því að bjóða notendum tölvukerfa upp á svo- nefnda heildarlausn. HEILDARLAUSN TÖLVUREKSTRAR - NÝ SKILGREINING Inni í heildarlausninni er t.a.m. að finna greiningu á þörf, hönn- un og uppsetningu kerfis bæði hvað varðar hug- og vélbúnað og allar netteng- ingar hvort sem þær eru innanhúss (staðarnet) eða milli fjarlægari staða (víðnet). Hvað varðar útboð og val á búnaði þá þarf sá þáttur ekki að vera í höndum Örtölvutækni þó svo að það geti vissulega komið til greina. Ör- tölvutækni mundi sjá um að semja við undirverktaka, eins og t.d. ráðgjafa sem þegar eru starfandi á markaðn- um. Öll ábjngð og gæðaeftirlit verður eftir sem áður hjá Örtölvutækni. Inni í heildarlausninni geta svo verið þættir eins og rekstur, eftirlit og viðhald á tölvukerfmu auk aðlögunar að breytt- um þörfum og áherslum viðskiptavin- arins. „Við verðum samt sem áður að TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 60 Gísli R. Ragnarsson markaðsstjóri og Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Örtölvutækni. gera ráð fyrir sérhæfmgu og starfs- þekkingu inni í fyrirtækjunum þannig að í sumum tilvikum gæti orðið um samstarf að ræða við þær tölvudeildir sem hugsanlega eru fyrir,“ svarar Gísli um það hvort ætlunin sé að leysa tölvustarfsmenn af hólmi hjá þeim sem hyggjast fjárfesta í heildarlausn- inni. SÉRHÆFING OG HAGRÆÐI Grundvallarhugsunin í þessari nýj- ustu þjónustu við tölvunotendur hér á landi er fólgin í þekkingu á öllum þátt- um í notkun stórra sem smærri upp- lýsingakerfa. Hver og einn starfs- maður hefur á sinni könnu sitt sérsvið og með tengingu slíkra starfsmanna við alla þætti kerfanna á að nást eins virk stjórnun og auðið er. Með þeim hætti geta stjórnendur fyrirtækja og stofnana nýtt sér þá tækniþekkingu sem í boði er til betri árangurs í auk- inni samkeppni og auknum átökum um hagnaðinn. Á sama hátt er mikil- vægt að fjárfestingar í afkastamiklum tölvukerfum séu nýttar til fulls. Mikilvægt er einnig að fyrirtæki, sem alfarið sér um stór tölvukerfi, jafnvel að öllu leyti, sé traust og áreiðanlegt. Að sögn Gísla verður fyllsta öryggis gætt hvað varðar upp- lýsingastreymi því svona samstarf byggist á trausti. „Ríkjandi viðhorf hérlendis hafa verið á þá lund að seljendur hafa verið að ota sínum tota hvað sem það kost- ar. Þannig verða þeir varla hæfir til að veita hlutlausa ráðgjöf við verkefni af þessari stærðargráðu. Hér getur verið um stórkostlegar fjárfestingar að ræða og sölumennska af þessu tagi gengur hreinlega ekki undir þeim kringumstæðum. Við ætlum okkur að nýta okkur þennan vaxtarbrodd en fyrst og fremst þannig að kaupendur þjónustunnar sannfærist um að fjár- festingin henti þeim. Og hér á landi er engum vandkvæðum háð að kanna mismun á verði og framkvæmd, markaðurinn er það lítill, “ segir Gísli þegar þetta ber á góma. GÓÐUR AÐGANGUR AÐ ÞEKKINGU Hjá Örtölvutækni starfa nú 44 starfsmenn. Fimm menn eiga sæti í framkvæmdastjóm; þeir Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri, Eiríkur Jónsson fjármálastjóri, Karl Wern- 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.