Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 38
EFNAHAGSMÁL „Ef vald seðlabanka á tilteknu sviði er aukið þá liggur í hlutarins eðli að vald annarra minnkar. Þróun undanfarinna ára hefur reyndar verið sú að með vaxandi frjálsræði í viðskiptum, bæði innanlands og erlendis, er vald í efnahagslegum ákvörðunum í miklu ríkari mæli á frjálsum markaði, t.d. á fjármagnsmarkaði. Aukið frelsi hefur þannig minnkað vald stjórnvalda verulega, hvort sem um er að ræða vald seðlabanka eða ríkisstjórna.“ „Seðlabanki er hluti af opinberu valdi og verður að lúta eftirliti. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að sjálfstæði stofnana má aldrei vera eftirlitslaust. Eftirlit af hálfu löggjaf- ans með starfsemi Seðlabankans er fyrst og fremst verkefni bankaráðs svo og Ríkisendurskoðunar á tilteknu sviði. Bankaráð er kjörið pólitískri kosningu á Alþingi. Bankastjórar eru skipaðir núna af viðskiptaráðherra að fengnum tillögum bankaráðs. Það er hægt að skerpa þann ferill með því að auka hæfniskröfur til bankastjóra, skylda að auglýsa bankastjórastöður og að væntanlegir bankastjórar verði að fá stuðning í bankaráði. Það er eðlilegt að fulltrúi fram- kvæmdavaldsins, þ.e. viðskiptaráð- herra, skipi í stöður bankastjóra. Að- alatriðið er að þess sé gætt að skipað sé í bankastjórastöður út frá því sjón- armiði að fá sem hæfasta einstaklinga til að vinna að markmiðum bankans. Sjálfstæði seðlabanka er ekki tryggt með því að fela bankaráði öll völd. Bankaráð getur misnotað vald sitt eins og aðrir.“ 6. Stundum er sagt að stjórn- málamenn hugsi oft of mikið um skammtímasjón- armið. Er þá sjálfstæður seðlabanki „þessi ein- hver“ sem verður að hugsa um langtímasjónarmið? „Það er alþekkt að ríkisstjórnir huga oft að skammtímasjónarmiðum í efnahagsstjórn, enda takmarkar lengd kjörtímabils starf ríkisstjórnar. Stöðugleiki í verðlagi er hins vegar í eðli sínu langtímamarkmið og seðla- banki á að vinna að því markmiði sem venjulega styrkir umgjörð efnahags- lífins. Það er því ekkert sem mælir á móti því almennt að ríkisstjórn leggi áherslur á önnur efnahagsmarkmið til skemmri tíma. Langtímasjónarmið í efnahagslífinu endurspeglast ekki aðeins í starfsemi seðlabanka heldur miklu frekar í starfsemi fyrirtækja og í milliríkjasamningum. “ 7. Ef helsta hlutverk seðla- banka er að halda verð- bólgu niðri gegndi þá Seðlabanki íslands ekki hlutverki sínu næginlega vel í óðaverðbólgu síðustu ára? „Hlutverk Seðlabankans í núgild- andi lögum er ekki eingöngu að halda verðbólgu niðri heldur m.a. einnig að vinna að því að framleiðslugeta at- vinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllst- an og hagkvæmastan hátt og að efna- hagsstefna ríkisstjómarinnar nái til- gangi sínum. Hér er um mörg mark- mið að ræða sem geta stangast á. Efnahagsstjórn síðustu ára og ára- tuga var á ábyrgð ríkisstjórna á hverj- um tíma en ekki Seðlabankans. Það er beinlínis lögbundið að Seðlabank- inn skuli stuðla að framgangi efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Efna- hagsþróun hérlendis síðustu áratugi hefði vafalítið orðið önnur ef Seðla- bankinn hefði haft skýrt orðuð mark- mið, afmörkuð stjórntæki og frelsi til að beita þeim með langtímasjónarmið í huga.“ 8. Hvaða önnur tæki hefur seðlabanki til að halda niðri verðbólgu en með því að stýra peningamagninu og vöxtum? „Stjórntæki Seðlabankans eru fyrst og fremst vextir á lánum sem Seðlabankinn veitir m.a. innláns- stofnunum, bindiskylda, lausafjár- skylda og kaup og sala verðbréfa á markaði. Hið síðastnefnda er lang- mikilvægast hérlendis. Markaðsað- gerðir vega þyngst og bindiskylda og lausafjárskylda skipta sífellt minna máli. Stjórntæki Seðlabankans eru þannig fyrst og fremst fólgin í því að hafa áhrif á vaxtastig með markaðsað- gerðum. Það er einnig mikilvægt að ríkissjóður hafi ekki aðgang að lánsfé í Seðlabankanum. Þóttmarkmið seðla- banka eigi að vera að halda aftur af verðbólgu þá ræðst árangur slíkrar stefnu ekki síst annars staðar í hag- kerfinu, t.d. með stefnu íríkisfjármál- um og launamálum." 9. Nú er samband milli verð- bólgu og atvinnuleysis (Phillips-kúrfan). í því felst að seðlabanki þarf að skil- greina við hvaða atvinnu- leysisstig verðbólga fari af stað. Getur ekki verið að hann hafi aðra skilgrein- ingu en ríkisstjórn og hindri þannig markmið hennar? „Samband milli verðbólgu og at- vinnuleysis er flókið og margir þættir hafa þar áhrif. Flestir hagfræðingar telja að til langs tíma sé farsælast að tryggja atvinnu með því að stuðla að stöðugu verðlagi. Það er einfaldlega ekki hægt til lengdar að tryggja at- vinnu og hagvöxt með verðbólgu. Efnahagsleg markmið ríkisstjóma eru miklu fjölbreyttari en markmið seðlabanka og vissulega getur komið upp ágreiningur milli seðlabanka og ríkisstjórnar, t.d. þannig að verðlags- markmiðum seðiabanka sé stefnt í hættu með fjármögnun á hallarekstri ríkssjóðs erlendis. Þá myndi seðla- bankinn vinna að framgangi stefnu 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.