Frjáls verslun - 01.02.1994, Qupperneq 40
NÆRMYND
MAGNÚS GAUTIGAUTASON, KAUPFÉLAGSSTJÓRI KEA:
HLÉDRÆGUR KONUNGUR
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri á Akureyri, er
stjórnandi sjöunda stærsta
fyrirtækis á íslandi, Kaupfélags
Eyfirðinga, KEA. Félagið velti á
árinu 1992 tæpum 9 milljörðum
króna. Þau fyrirtæki, sem komu
næst á eftir KEA í veltu, voru
Hagkaup, Póstur og sími og fs-
landsbanki.
Því hefur stundum verið haldið
fram að embætti kaupfélagsstjóra
KEA á Akureyri væri eitt hið valda-
mesta á landinu. Kaupfélagsstjórinn
hefur stundum í gamni verið kallaður
konungur á Akureyri eða einvaldur í
Eyjafirði. Þá hafa menn í huga litríka
persónuleika sem gegndu þessu
starfi meðan KEA var sannarlega
eins og konungsríki. Margir þeirra
settu verulegan svip á bæinn og
gerðu starfið í raun að konunglegu
embætti.
FARSÆLL STJÓRNANDI
Magnús Gauti Gautason er 43 ára
gamall rekstrarhagfræðingur. Hann
hefur ekki lagt neina áherslu á hina
konunglegu hlið starfsins. Undir hans
stjóm hefur KEA haldið sjó í þeim
áföllum sem hafa riðið yfir kaupfélög
annars staðar og kaffært Samband ís-
lenskra samvinnufélaga. Magnús hef-
ur ekki aðeins náð að verja stöðu
KEA að miklu leyti heldur heyrast
raddir um að KEA hyggi á fjárfesting-
ar og aukin umsvif undir hans stjórn.
Þessar umræður sýna að KEA er á
leið upp úr öldudal undir stjórn Magn-
úsar.
Magnús Gauti Gautason fæddist á
Akureyri þann 8. ágúst 1950. Það
þýðir að hann er fæddur undir merki
Ljónsins, konungs dýranna. Himna-
rýnar segja að slíkt fólk sé ósveigjan-
legt, vinnusamt og agað og hafi alltaf
rétt fyrir sér, eða vilji það að minnsta
kosti.
Magnús er sonur Jóhanns Gauta
TEXTI: PÁLL ÁSGEIRSSON
Gestssonar og Eddu Magnúsdóttur.
Magnús ólst upp á Akureyri við leiki,
íþróttir og störf en settist þegar fram
liðu stundir á skólabekk í MA og lauk
þaðan prófi af stærðfræðibraut 1970.
Hann þótti prýðilega skarpur náms-
maður en lét fara frekar k'tið fyrir sér
Magnús Gauti Gautason þykir hafa
innleitt nýjan stjórnunarstíl í KEA.
Hann er lýðræðislega sinnaður og
tekur tillit til skoðana undirmanna
sinna.
á skólaárum og tók ekki mikinn þátt í
félags- eða skemmtanalífi innan skól-
ans.
RÆTURNAR Á AKUREYRI
Rætur Magnúsar á Akureyri
standa djúpt. Jóhann faðir hans fékkst
við leigubílaakstur sem aðalstarf en
köfun sem aukastarf og rekur nú Köf-
un sf. heildverslun á Akureyri og sel-
ur ýmsar vörur tengdar köfun og
málningarvörur. Þorsteinn M. Jóns-
son skólastjóri og bókasafnari á Akur-
eyri var langafi Magnúsar.
FÓR ÓTROÐNAR SLÓÐIR
SEM MARKVÖRÐUR
Magnús tók virkan þátt í íþróttum á
sínum yngri árum og lék handknatt-
leik með meistaraflokki KA í hvorki
meira né minna en átján ár. Þar lék
hann stöðu markvarðar og þótti
býsna seigur. Hann fór stundum
ótroðnar slóðir í embætti markvarðar
og segja gárungarnir að í gamla daga,
þegar liðið svitnaði í upphitunaræfing-
um fyrir leiki, hafi Magnús setið á
heitum ofni, og íhugað hvemig best
væri að veijast skotum andstæðing-
anna. Ekki þóttu þessar sérstæðu að-
ferðir hans við upphitun draga neitt úr
getu hans í markinu.
Magnús myndaði sterk vináttu-
tengsl við félaga sína í handboltanum
og þau bönd halda enn í dag og hann
umgengst nær eingöngu utan vinnu
þá sem hann spilaði með áður. Hann
handfjatlar enn knöttinn því hann er
virkur meðlimur í „old boys“ hópi KA
í handknattleik og mætir á æfingar
með þeim reglulega og er í ágætu
formi. Gamall leikfélagi hans segir að í
íþróttunum hafi hófstillingin verið
hans aðalsmerki og þess hafi aldrei
verið dæmi að Magnús heyrðist
hækka raustina við dómarann þó allir
aðrir í liðinu væru orðir arfavitlausir.
Hans framganga einkenndist af seiglu
og hörku.
EKKIHANS STÍLL AÐ VERA
MEÐ HÁVAÐA 0G LÆTI
Enn í dag sýnir hann handknatt-
leiknum mikinn áhuga og lætur sig
aldrei vanta í pallana þegar KA er að
keppa. Þá sem endranær er hann
ekki í forystu klappliðsins því það er
ekki hans stíll að vera með hávaða og
læti. Má þá einu gilda þótt dómarar
þyki ranglátir og flest fari úrskeiðis
sem aflaga getur farið, aldrei heyrist
40