Frjáls verslun - 01.07.1997, Page 8
Og ekki er síður þörf á geymslurými
fyrir sjónvarpsefhið.
móti má bæta við nýjum skápum eða auka
vinnurými fyrirtækisins sem aftur leiðir til
meiri afkasta og aukins hagnaðar.
FLEXI skáparnir fást í 25 lengdum, 10
dýptum og 4 mismunandi hæðum, frá 150
í 260 sentímetrum. Þvf er hægt að fá skápa
GEYMSLURÝMIÐ JÓKST UM 75%
Martröð safnafólks er hve fljótt söfnin fyllast. Því er ekki ónýtt að geta
aukið geymslurými umtalsvert með því að setja upp skápa á borð við
FLEXI skápana frá Ofnasmiðjunni.
„Geymslurýmið í útvarpshluta safnadeildar Ríkisútvarpsins jókst um
61% og í sjónvarpshlutanum um hvorki meira né minna en 75% þegar sett-
ir voru upp FLEXI skápar,” segir Elín S. Kristinsdóttir á safnadeildinni.
Innlent dagskrárefiii hafði fýllt allt geymslurými í Utvarpshúsinu en nú
eru þar auðar hillur sem bíða nýrrar framleiðslu og þær gleðja augu safna-
fólksins. „Nýja skápakerfið hefur gjörbreytt öllu hér. Skortur á geymslu-
rými var orðinn vandamál en þetta er lausn til margra ára.”
Um 80 sentímetra gangur er milli hillnanna sem unnið er við. Það næg-
ir því sjaldnast eru þar tveir við vinnu samtímis. Elín segist hafa orðið vör
við að fólki líki vel að vinna við þessar aðstæður og áréttar að þetta sé ekki
síður vinnusvæði en geymsla og alltaf sé hér fólk á ferð. Afgreiðsla er nú
fljótvirkari og öllu efni má raða í hæfilegar hillur.
Margt þarf að geyma hjá útvarpsdeild
RIJV.
ví hefur lengi verið haldið fram að
tími sé peningar. Þess vegna
skiptir miklu máli í vel reknu nú-
tímafyrirtæki að skjalavarsla og geymsla
gagna séu með þeim hætti að auðvelt og
fljótlegt sé að finna hvaða skjal sem er
þegar þess gerist þörf. Til að svo megi
verða þurfa skjalaskápar að vera þægileg-
ir og aðgengilegir, hvort sem þeir eiga að
geyma skjöl sem verið er að vinna með
eða skjöl sem „komin eru f geymslu" en
getur samt sem áður þurft að grípa til. Flf.
Ofnasmiðjan býður upp á fjölbreytt úrval
hefðbundinna skjalaskápa sem og skápa
sem renna léttilega á hjólum eftir þar til
gerðum brautum og gera starfsmönnum
fyrirtækja auðvelt að komast að hverju
einstöku skjali. Um leið spara skáparnir
rými á skrifstofunni eða í geymslunni.
Það er norska fyrirtækið Constructor
Group sem framleiðir skápa og hillur í út-
færslunum FLEXImobile, Chassismobile og
SYSTEM shelving sem Ofnasmiðjan selur.
Með FLEXI skápunum er hægt að nýta
geymslurýmið helmingi betur en þegar
notaðir eru skjalaskápar, festir í gólfið og
sem ekki er hægt að hreyfa. Með þessu
ÞÆGILEGIR OG AÐGENG
AUGLÝSINGAKYNNING
8