Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Page 23

Frjáls verslun - 01.07.1997, Page 23
„að öðru jöfnu” því Skýrr munu einnig skipta við önnur tölvu- fyrirtæki. Eg minni til dæmis á að fyrsta ákvörðun nýrrar stjórnar Skýrr um tölvukaup var um kaup á tölvu frá Ný- herja.” - Opin kerfi eiga í tveimur hugbúnaðarfyrirtækjum, Skýrr og Þróun. Telur þú hættu á hagsmunaárekstrum þar á milli? „Nei. Frá upphafi hefur það einkennt Opin kerfi að geta unnið með mörgum hugbúnaðarhúsum á sama tíma - og not- ið fyllsta trausts. Og það ekki að ástæðulausu. Við vinnum eft- ir heiðarlegum og skýrum reglum. Heimurinn er ekki lengur svart/hvítur. Menn eru í samvinnu við fyrirtæki á sumum sviðum en í samkeppni við þau á öðrum.” - Það vakti athygli sl. vetur þegar Opin kerfi föluðust eft- ir hlutabréfum í Nýherja og gerðu formlegt kauptílboð í bréfin. Hvað kom til að þið fenguð skyndilega áhuga á að eignast hlut í einum helsta keppinaut ykkar? „Við töldum á þeim tíma að hlutabréfin í Nýherja væru á hagstæðu verði - það var útgangspunkturinn. Við höfðum selt 20% hlut okkar í Tæknivali og gátum vel hugsað okkur að kaupa bréf í Nýherja sem okkur var sagt að væru til sölu. Við sáum það alveg gerast að Nýherji og Opin kerfi sameinuðust um eitthvert fyrirtæki sem gæti gert mjög góða hluti á sviði margmiðlunar. En af þvi varð ekki.” - En hefði Hewlett Packard erlendis ekki gert athuga- semdir við að þið væruð komnir í sæng með IBM? „Nei, það er ólíklegt. Mjög margir af samstarfsaðilum Hewlett Packard út um allan heim selja fleiri en eitt merki og ég tel okkur hafa frjálsar hendur um að eiga í fyrirtækjum sem selja mismunandi tegundir af tölvum og keppa sín á milli.” - Kemur til álita að sameina ACO og Opin kerfi? „Það er ekki uppi á borðinu. Við eigum 40% hlut í ACO á móti þremur helstu starfsmönnum þess. Fyrirtækið er rót- gróið og rekið með ágætum hagnaði núna. Það er að gera góða hluti á sínu sviði. Það selur m.a. hinar ódýru Leo tölvur sem eru vinsælar á heimilismarkaðnum. Sömuleiðis hefur Frá kynningarfúndi Hewlett Packard árið 1984. Talið frá vinstri: Bergur Haraldsson, faðir Frosta, Steingrímur Ilermannsson, þáverandi forsætísráðherra, Frostí, Steen Haareschou, þáverandi forstjóri HP í Danmörku, og Andree Bruchels, þáverandi svæðisstjóri HP í Norður- Evrópu. andi forséci h?.rra’ hauð ,(I aýja íslenska isborgara” koininn og afln Frosta fykii s tákn uni að fyi ^Wð „gæti OJ að og hafið sta semi - en ttí þe Þurfti sérgta raðherrafeyfi. 23

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.