Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Side 45

Frjáls verslun - 01.07.1997, Side 45
fyrir þeim verkefnum sem þeim eru fal- in og þess að fylgjast grannt með öllu sem fram fer og hafa góða yfirsýn án þess að mönnum finnist að hann sé með nefið niðri í öllu. Þetta tekst stund- um en stundum ekki. Hann er sagður hafa fullan trúnað og traust sinna næstu undirmanna sem þora að ræða opinskátt við hann um hvaðeina sem kemur upp. Þegar þannig liggur á þeim gera þeir svo grín að hon- um fyrir sparsemina og nákvæmnina sem þeir segja að hann hafi lært af Þjóð- vcrjunum. Margir segja að Omar hugsi fyrst og fremst eins og sannur kapítalisti eða „enterpreneur" í þeim skilningi að per- sónulegur hagnaður hans og hluthaf- anna skipti hann mestu máli. Hann sé skynsamur og djarfur og óragur við að taka áhættur þar sem atvinnustjórnandi án eignarhagsmuna myndi sýna að- gætni. FORSTJÓRINN HLEÐUR FARANGRI Um þessar mundir eru miklir um- brotatímar hjá Islandsflugi og allt á útopnu ífá morgni til kvölds. Reglulegir fundir stjórnenda eru einu sinni í viku en daglega bera menn saman bækur sínar á hlaupum. Vinnudagurinn er langur og iðulega unnið á skrifstofunni fram eftir kvöldi og um helgar. Kvöldin, þegar síminn er þagnaður, eru oft besti tí'minn og þá notar Ómar tækifærið og rabbar við starfsmenn sína um ástandið og horfur næstu vikna. Yfir daginn getur starfið falist í því að svara í símann og hlaða farangri í flug- vélar en starfsfólk Islandsflugs gengur í öll störf og er forstjórinn þar ekki und- anskilinn. Þegar starfsmennirnir lyfta sér upp og skála fyrir vel unnum störfum tekur Ómar þátt í því og er hrókur alls fagnað- ar. Þannig var hann í fararbroddi í óvissuferð sem starfsfólki Islandsflugs var boðið í nýlega. Sú ferð endaði með grillveislu og gleði á Akureyri. FJÖLSKYLDUMAÐURINN ÓMAR Ómar er kvæntur Guðrúnu Mörtu Þorvaldsdóttur, húsfreyju og háskóla- nema. Guðnin er fædd 1959, dóttir Þor- valds Jónssonar, skipamiðlara í Reykja- vík, og Önnu Katrínar Wilhelmsdóttur Steinsen. Þau Ómar voru samstúdentar frá Verslunarskólanum og hafa verið Ómar keypti, ásamt eiginkonu sinni, hið gamla Cify Hotel við Ránargötu og dubbaði upp. Nú eru sjö hótel víða um land aðilar að Fosshótelkeðjunni og spámenn segja að Ómar vilji sjá þetta sem öflugustu hótelkeðju landsins inn- an fárra ára. óaðskiljanleg síðan. Þau eiga fjögur börn saman: Arnar f. 1984, Katrínu f. 1987, Einar Bjarna f. 1990 og Fannar Frey f. 1997 og búa við Barðaströnd á Seltjarnarnesi. Guðrún Marta hefur lítið unnið utan heimilis en starfaði þó um tíma í farskrárdeild Flugleiða. Ómar fer ekki í laxveiði, spilar ekki bridge eða er félagi í hefðbundnum klúbbum líkt og margir aðrir forstjórar. Hans tími fer í vinnuna og tjölskylduna sem, eftir að nýtt barn bættist í hópinn, þarf sinn tíma. Ómar gegndi til skamms tíma ýms- um störfum öðrum en að vera forstjóri íslandsflugs. Hann var stjórnarformað- ur íslandsferða og Safariferða og átti sæti í markaðsnefnd Ferðamálaráðs og stjórn Ferðamálasjóðs. Varla þarf að taka ffarn að hann vinnur gríðarlega mikið og tími til áhugamála gefst eigin- lega ekki en Ómar hefur selt hlut sinn í Island Tours og það var keppinauturinn Flugleiðir sem keypti og Guðmundur Jónasson og Urval-Utsýn keyptu hlut hans í Safariferðum. Þannig getur hann sinnt Islandsflugi betur og haft meiri tíma. Ómar á enn sæti í nefndum Ferða- málaráðs. Það er talið til marks um framsýni Ómars að hann stofnaði Island Tours úr engu fyrir nærri tíu árum en í dag er fyr- irtækið stærsti ferðaheildsali íslands- ferða frá Þýskalandi. Margir þykjast sjá svipað ferli í gangi í Fosshótelunum. Ómar keypti, ásamt eiginkonu sinni, hið gamla Cify Hotel við Ránargötu og dubbaði upp. Nú eru sjö hótel víða um land aðilar að Fosshót- elkeðjunni og spámenn segja að Ómar vilji sjá þetta sem öflugustu hótelkeðju landsins innan fárra ára. Hans mottó er að sígandi lukka sé best og ekki dugi að ráðast að hlutum með einhveiju offorsi. HVERJIR ERU VINIR ÞÍNIR? Ómar hefur mikið samband við bræður sína en til bestu vina hans þess utan má nefna Stein Loga Björnsson, framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum og Viðar Pétursson, hjá Pökkun og flutn- ingum. Til góðra kunningja má nefna Hjört Nielsen, forstjóra Isól, Brynjar Þórsson, íjármálastjóra SIF, Ólaf Garð- arsson lögfræðing, Jóhann Unnsteins- son endurskoðanda, Pétur Oddsson endurskoðanda og Guðmund Kjartans- son, framkvæmdastjóra Island Tours en þeir eru allir skólabræður Ómars úr Versló. Þessir gömlu skólabræður hafa með sér óformlegan félagsskap sem heitír Sameinaða sveinafélagið og þeir, sem tök hafa á, hittast á mánaðarlegum fund- um í hádegismat, aðallega á veitinga- staðnum Við Tjörnina. Til marks um það hve hópurinn úr VI er samlyndur er það nefnt að 10 hjón hafi orðið til úr ár- gangnum. Skúli Þorvaldsson og Gunnar, sam- starfsmenn Ómars og meðeigendur, eru einnig nefndir sem vinir hans. HVERT ÆTLAR ÓMAR? Þegar litið er á umsvif Ómars í ís- lenskum ferðaiðnaði, eignarhald hans í Islandsflugi og fleiri fyrirtækjum, sem koma við sögu í greininni, er ljóst að þessi ungi maður ætlar sér stóran hlut í þessari atvinnugrein. Ómari er svo lýst að hann sé ákaflega stórhuga, sjálfstæður, einbeittur og hug- myndaríkur. Hann hefur lengst af á sín- um starfsferli verið sjálfs sín herra og er vanur að fá að ráða. Það hentar sjálf- stæðum frumkvöðli ágætlega en er í senn veikleiki hans og sfyrkur því þeir, sem eru vanir að ráða, gleyma stundum að hlusta á aðra. Hann er rekinn áfram af ríkri sjálfstæðisþörf sem honum var innprentuð í æsku. Mikil og heilbrigð samkeppni er milli bræðranna þriggja og sérstætt hvernig kaupmannssynirnir úr Bolungarvík hafa látið mikið að sér kveða, hver í sinni atvinnugrein. [0 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.