Frjáls verslun - 01.07.1997, Qupperneq 66
McDonald's setur svip sinn á miðbæ Reykjavíkur eins og flestar aðrar höfuð-
borgir heimsins en keðjan fer um heiminn með miklum hraða og á hverjum
sólarhring eru opnaðir nokkrir nýir staðir. Hér er ung stúlka ásamt trúðnum
Ronald McDonald sem er menningarfulltrúi McDonald's.
tilvikum fari magnið allt upp í 240 g.
Nískir pizzusalar haldi ostmagninu
hinsvegar niðri eftir föngum því ostur sé
dýrasti hráefnisliðurinn.
Sé meðalpizzan með 170 grömmum
af osti eru seldar rúmar 2,2 milljónir af
pizzum. 360-380 tonn, sem Osta- og
smjörsalan selur pizzubökurum, þýða
um 1.4 kíló af osti á hvert mannsbarn
sem aftur þýðir að hver einasti íslend-
ingur borðar u.þ.b. 10 pizzur á ári. Pizzu-
neysla er hinsvegar langmest í yngri
aldurshópum sem endurspeglast í því
að mest er selt af pizzum á haustin en
desember og maí eru þó söluhæstu
mánuðirnir. Þetta bendir til ákveðinnar
samsvörunar við próflestur og fjárráð
skólanema eftir sumarvinnu.
Af þessum tölum er ljóst að pizzu-
markaðurinn veltir ekki minna en 2,3-
2,5 milljörðum á ári.
Þessum talnaleik mætti halda áfram
og segja sem svo að rúmar tvær milljón-
ir pizza myndu þekja 4,4 hektara eða
44.200 fermetra. Það eru 6,2 Laugar-
dalsvellir. Væru þær lagðar hlið við hlið
næði röðin rúmlega tvisvar sinnum frá
Reykjavík til Akureyrar.
Sé litið til hamborgarasölu þá eru
nokkrir stórir aðilar sem keppa um hylli
bragðlaukanna þar. McDonald's er
nýjastur á markaðnum með tvo staði en
Grillhúsið Tryggvagötu, Grillhúsið
Sprengisandi og Hard Rock Café, undir
stjórn Helgu Bjarnadóttur, veita honum
harða samkeppni ásamt Aktu-Taktu og
American Style í Skipholti.
McDonald's veitingastaðirnir veltu
rúmum 300 milljónum á síðasta ári og
stefna í 370 milljónir í ár. Kunnugir telja
að þeir hafi u.þ.b. 25% markaðarins
sem bendir þá til þess að hamborgara-
staðir velti 1.500 milljónum samtals.
Grillhúsin tvö og Hard Rock Café eru í
eigu sömu aðila og munu selja álíka
magn af hamborgurum og McDon-
ald's staðirnir. Þessir þrír staðir selja 7-
8000 hamborgara í viku hverri svo ætla
má að saman selji þeir og tveir McDon-
ald's staðir u.þ.b. 14-16.000 hamborg-
ara á viku. Ráði þessir fimm staðir sam-
an yfir um helmingi hamborgaramark-
aðarins má ætla heildarveltuna 800-
1.000 milljónir.
Þess má til gamans geta að þegar
Tómas Tómasson og Helga Bjarnadótt-
ir ráku Tommaborgara á Grensásvegi
árin 1981-'83 voru seldir þar 12-13.000
hamborgarar í hverri viku.
HELGISELUR MEST AF KJÚKLINGUM
I sölu á kjúklingabitum er Kentucky
Fried langstærstur með þrjá staði og tal-
inn ráða yfir um 80% af markaðnum.
Kentucky Fried hefur verið á Islandi í 18
ár undir stjórn Helga Vilhjálmssonar,
sem oft er kenndur við sælgætisgerðina
Góu, og barna hans. Kjúklingabændur
slátra tæpum 1700 tonnum af kjúkling-
66
■■■■
■H