Frjáls verslun - 01.10.1997, Blaðsíða 18
Si
IARMAL
B R
Annasamasti tími ársins í sölu hlutabréfa ergenginn ígarö. Samkeþþnin
Viö kynnum hér forstjóra
SIGURÐUR B.
STEFÁNSSON.VÍB
igurður B. Stefánsson, 50
ára, er framkvæmdastjóri
VIB. Hann er einn af kunn-
ustu hagfræðingum landsins. Hann
telst með reynslumestu mönnum í
verðbréfaviðskiptum hér á landi en
hann varð framkvæmdastjóri Verð-
bréfamarkaðar Iðnaðarbankans
árið 1986 og síðar Verðbréfamarkaðar Islandsbanka frá árinu 1990.
Sigurður var hagíræðingur hjá Þjóðhagsstofnun á árunum 1977 til
1983 - en þá varð hann hagfræðingur hjá Kaupþingi og ritstjóri Vís-
bendingar.
Sigurður er bæði verkffæðingur og hagfræðingur. Hann lauk
námi í byggingaverkifæði frá Edinborgarháskóla árið 1971. Árið
eftir tók hann masterspróf í stjórnun frá London School of
Economics. Hann sneri sér þá að hagfræði og útskrifaðist með
meistaragráðu frá sama skóla - og síðar sem doktor í hagfræði frá
Essex-háskóla í Englandi árið 1981. Fáir hafa verið jafnduglegir við
að skrifa um viðskipti og efnahagsmál á undanförnum árum og Sig-
urður - og hefur hann um árabil skrifað um þau mál í Morgunblað-
ið. Eiginkona Sigurðar er Kristín Bjarnadóttir og eiga þau tvo syni.
SIGURÐUR EINARSSON,
KAUPÞINGI
igurður Einarsson,
37 ára, varð forstjóri
Kaupþings um miðj-
an september sl. er Bjarni Ar-
mannsson var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins. I raun
má segja að Sigurður hafi orðið forstjóri Kaupþings á ný því hann
leysti Bjarna af hólmi sem forstjóri í fyrrahaust - en Bjarni, sem þá
var í námi eriendis, var ráðinn forstjóri í stað Guðmundar Hauks-
sonar er tók við starfi sparisjóðsstjóra SPRON. Sigurður er sagður
vera hugmyndafræðingurinn á bak við gott gengi Kaupþings á
þessu ári ásamt Bjarna Ármannssyni.
Sigurður er hagffæðingur frá Kaupmannahafnarháskóla og
hóf feril sinn sem starfsmaður hjá Den danske bank. Eftir að heim
kom varð hann sérfræðingur hjá Iðnaðarbankanum árið 1988 og
síðar hjá Islandsbanka á árunum 1990 til 1994. Hann réðst til
Kaupþings árið 1994. Hann hefur setið í stjórn Verðbréfaþingsins
frá því á síðasta ári. Þess má geta að Sigurður er sonur Einars
Ágústssonar, fyrrum utanríkisráðherra. Eiginkona Sigurðar er
Arndís Björnsdóttir viðskiptafræðingur og eiga þau tvö börn.
ÞORSTEINN OLAFS,
HANDSALI
□ orsteinn Ólafs, 40 ára, er
framkvæmdastjóri Hand-
sals. Hann var ráðinn til
Handsals í febrúar 1996 í kjölfar
þess að Edda Helgason lét þar af
störfum. Þorsteinn hefur margra
ára reynslu í verðbréfaviðskiptum.
Hann er viðskiptafræðingur að
mennt og hóf feril sinn sem ráðgjafi hjá Fjárfestingarfélagi Islands
árið 1984. Þar vann hann í þijú ár eða þar til hann var ráðinn for-
stöðumaður Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans, síðar Sam-
vinnubréfa Landsbankans. Hann hefur þvi verið í hringiðu verð-
bréfaviðskipta í nær fjórtán ár.
Þorsteinn hefur skrifað margar athyglisverðar greinar um hag-
fræði og peningamál á undanförnum árum - flestar sem ritstjóri
Fréttabréfs Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans (síðar Sam-
vinnubréfa Landsbankans). Fjölmiðlar hafa verið mjög drjúgir við
að vitna í greinar eftir hann í gegnum tíðina. Hann stýrir núna
Fréttabréfi Handsals um ijármál og verðbréfaviðskipti. Eiginkona
Þorsteins er Lára Kristjánsdóttir og eiga þau þijú börn.
BRYNHILDUR
SVERRISDÓTTIR,
FJARVANGI
□ rynhildur Sverrisdóttir, 44
ára, er framkvæmdastjóri
Fjárvangs. Hún tók við því
starfi í fyrra þegar VIS keypti Fjár-
festingarfélagið Skandia en þar var
Brynhildur framkvæmdastjóri frá
árinu 1993. Undanfarar Fjárvangs eru í raun tvö félög, Fjárfesting-
arfélagið Skandia og Fjárfestingarfélag íslands. Það var einmitt
hjá Fjárfestingarfélagi Islands sem Brynhildur hóf sinn ferill á
sviði verðbréfaviðskipta í byrjun ársins 1988. Hún hefur þvi verið í
hringiðu verðbréfaviðskipta hér á landi í um tíu ár.
Brynhildur nam viðskiptafræði í Danmörku og útskrifaðist frá
Verslunarháskólanum (Handelshojskolen) í Kaupmannahöíh árið
1982. Hún var síðan í framhaldsnámi í markaðsffæðum við sama
skóla frá 1982 til 1983 er hún kom heim og hóf störf hjá Utflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins. Síðar varð hún markaðsstjóri Álafoss. Eig-
inmaður Brynhildar er Atli Guðmundsson sálfræðingur og eiga
þau tvö börn.
TEXTI: JON G. HAUKSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
18