Frjáls verslun - 01.10.1997, Blaðsíða 60
missir samband við aðaltölvuna fá sí-
hringikortin ekki þjónustu. Þess vegna
höfum við stóraukið afkastagetu þess
búnaðar.
Bankarnir hafa í harðri samkeppni
farið sífellt neðar í aldri þeirra sem hafa
kort sem hægt er að taka út úr hrað-
bönkum með og öll þessi unglingakort
eru síhringikort. Síðan hafa viðskipta-
menn í vaxandi mæli beðið um sí-
hringikort til að geta ávallt fengið nýj-
ustu stöðu.
Vandinn er sá að okkar varaleið í
sambandi við debetkortin hefur ekki
dugað fyrir þá sem eru með sí-
hringikort. Aðrir korthafar ættu ekki að
verða fyrir óþægindum nema í undan-
tekningartilfellum.
Nú er verið að skoða það að setja upp
sérstakan varabúnað fyrir þessi kort
sem ættí að leysa þetta vandarnál."
VANTAR VARAKERFI?
Væri ekki eðlilegt að Reiknistofan réði
yfir fullkomnu varakerfi sem tæki yfir
þegar kerfið bilar?
„Þarna er verið að tala um fjárfest-
ingu upp á hundruð milljóna. Fullkom-
inn varabúnaður hefði ekki komið í veg
fyrir vandræði 3. nóvember. Varabúnað-
ur gæfi okkur hinsvegar meira svigrúm
til að sinna viðhaldi á kerfinu á venjuleg-
um vinnutíma í stað þess að það þarf nú
að vinna undir miklu álagi á nóttunni
ákveðna daga vikunnar. Það er ekki
búið að taka neina ákvörðun um kaup á
varakerfi en það mál er í skoðun."
Seðlabankinn, sem ber endanlega
ábyrgð á að greiðslumiðlun afþessu tagi,
hefur lengi bent á nauðsyn þess að slíkt
varakerfi væri til. Hafið þið ekkert hlust-
að á þær ábendingar?
„Það er rétt að ábendingar þess efnis
komu fram í skýrslu frá bankanum fyrr
á þessu ári en þetta hefur ekki síður ver-
ið í skoðun að frumkvæði viðskipta-
banka og sparisjóða."
Margir eru þeirrar skoðunar að
Reiknistofan þurfi að vera sjálfstœtt fyrir-
STJÓRNUN
tæki í stað félags í eigu bankanna. Hvað
finnst þér um slíkar hugmyndir?
„Mér finnst það vel koma til greina,
enda gætí Reiknistofan þá keppt á al-
mennum markaði sem hún gerir ekki í
dag. I dag þjónar Reiknistofan aðeins
eigendum og vinnur engin verkefni fyr-
ir aðra með einni undantekningu sem er
framleiðsla ökuskírteina fyrir dóms-
málaráðuneytið. Að þessu leyti eru
hendur okkar talsvert bundnar."
Er ekki nauðsynlegt að breyta Reikni-
stofunni til þess að uþþfylla skilyrði sam-
keþþnislaga? Hvað gerist þegar nýr aðili
vill hasla sér völl í bankastarfsemi á Is-
landi? Fengi hann hindrunarlaust að-
gang að þjónustu Reiknistofunnar sem er
í eigu samkeþþnisaðila?
, A þetta hefur ekki reynt þar sem er-
lendir bankar hafa ekki komið hingað
enn. Hinsvegar er að koma nýr banki á
markaðinn um áramót, þ.e. Fjárfesting-
arbanki atvinnulífsins. Hann er ekki að-
ili að Reiknistofu bankanna enn, hvað
sem síðar verður."
KERFIÐ HEFUR REYNST VEL
I Seðlabankanum eru uþþi hugmynd-
ir um að breyta núverandi fyrirkomulagi
og gera uþþgjörsþátt Reiknistofunnar að
sjálfstæðu verkefni sem Seðlabankinn
bæri alla ábyrgð á en Reiknistofan ann-
aðist í verktöku. Hvað finnstþér um slík-
ar hugmyndir?
„Þessar hugmyndir kannast ég ekki
við og þær hafa ekki komið inn á mitt
borð. Það er verið að endurskoða
greiðsluskiptakerfið í samvinnu við-
skiptabankanna og Seðlabankans með
þátttöku Reiknistofunnar. Þar er um
tímabæra vinnu að ræða, enda er þetta
eitt elsta kerfi Reiknistofunnar. Það hef-
ur reynst ákaflega vel og var á sínum
tíma unnið í nánu samráði við Seðla-
bankann."
Benda þessar hugmyndir til þess að
Reiknistofan njóti ekki sama trausts og
verið hefur?
„Það tel ég af og frá. Seðlabankinn
hefur mikil áhrif hér innan veggja og
getur látið framkvæma breytíngar ef
honum finnst þörf á. Stærstu eigend-
urnir, þ.e. viðskiptabankarnir, ráða
mestu vegna umfangs þeirra verkefna
sem fyrir þá eru unnin hér en hagsmun-
ir þeirra og Seðlabankans fara saman.“
ER BJARTSÝNN Á FRAMHALDK)
Nú eru mjög margir viðskiþtaaðilar
úti íþjóðfélaginu sem eiga nœröllsín við-
skiþti undir því að þjónusta Reiknistof-
unnar bregðist ekki. Getur þú fullvissað
þá um að hér eftir gangi allt snurðu-
laust?
„Það væri ákaflega óraunsætt af mér
að halda þvi fram því reynslan hefur
sýnt okkur hvað margt getur gerst í því
flókna rekstrarumhverfi sem við búum
við. Okkar markmið er að gera rekstur-
inn eins öruggan og mögulegt er miðað
við aðstæður á hveijum tíma. Yið höfum
að undanförnu gengið í gegnum óvenju
miklar breytíngar á hugbúnaði og vél-
búnaði. En við höfum á að skipa góðum
og samhentum hópi starfsmanna sem
hefur mikinn metnað fyrir hönd fyrir-
tækisins og það gerir mig bjartsýnan á
framhaldið."
Eru mörg dæmi um að Reiknistofu
bankanna sé kennt um bilanir sem eiga
uþþtök sín annars staðar?
„Það kemur stundum fyrir og því er
það mjög mikilvægt fyrir Reiknistofuna
að fyrirtæki sem reka eigin búðarkassa-
og sjálfsalakerfi þrói þau í takt við aukið
álag á rekstrinum á hverjum tíma ekki
síður en Reiknistofan. Góð samvinna er
um þessi mál milli þessara fyrirtækja,
kortafyrirtækjanna og Reiknistofunn-
ar.“
Nú senduð þið út bréftil rúmlega 10
þúsund viðskiþtavina banka og sþari-
sjóða með uþþlýsingum um innistœðu-
lausar ávísanir sem reyndust rangar.
Hver erskýringin á því að þetta gerist?
,Astæðan var sú að þegar þessar til-
kynningar voru prentaðar og í fram-
haldi af því póstlagðar var, á þeirri
stundu, ekki vitað að mikill fjöldi launa-
innborgana hefði ekki skilað sér inn á
viðkomandi reikninga. Ennfremur var
fjöldi þessara tílkynninga sambærilegur
við þann fjölda sem var póstlagður mán-
aðamótín á undan og því gaf magnið
þennan dag ekkert óeðlilegt tíl kynna.
Annars hefði útsendingin að sjálfsögðu
verið stöðvuð. Við sendum þegar í stað
10 ÁRA GAMLIR KORTHAFAR
Þetta eru annars vegar viöskiptavinir bankanna sem biöja sérstaklega um slík kort sér
til hægðarauka eða þá að bankinn telur það nauðsyniegt. Hins vegar er stór hópur barna
og unglinga sem á og notar debetkort og verður af hafa síhringikort því sá sem ekki er
fjárráða má ekki stofna til skulda. Debetkortahafar eru allt niður í 10 ára gamlir.
60