Frjáls verslun - 01.10.1997, Side 25
við tölvu. Nýlega kom á markað að-
gengilegur hugbúnaður fyrir almenning
þar sem hægt er að vinna myndir í tölvu.
Til dæmis er hægt að búa til kort,
sem ný hlið á málinu. Hans Petersen hf.
er dæmi um gott íslenskt íplskyldufyrir-
tæki en í ljósi breyttra tíma er eðlilegt að
það fari á Verðbréfaþing Islands og
breytist úr hefðbundnu íjölskyldufyrir-
tæki í eftirsóknarvert íyrirtæki sem
skráð er á Verðbréfaþingi Islands," segir
Frosti.
„Opin kerfi hf. var skráð á Verðbréfa-
þingi íslands síðastliðið sumar. Við
erum því með reynslu á þessu sviði og
þess vegna ákjósanlegur samstarfsaðili.
Okkar markmið er að þessi fjárfesting
skili hagnaði og erum við líka að leita að
traustum samstarfsaðila."
Um íramtíðina segir Frosti að hags-
munir þessara tveggja íýrirtækja fari vel
lokuö fjölskyldufyrirtœki verði oþnuö og skráö á Veröbréfaþingi.
almanök og fleira, breyta myndum, bæta
þær og senda um allan heim á tölvuneti.
Stærsti viðskiptahópur okkar er hins
vegar almenningur sem tekur fjölskyldu-
myndir á sína hetðbundnu myndavél og
vill varðveita minningar sínar á hágæða
ljósmyndapappír," segir Hildur Petersen,
framkvæmdastjóri Hans Petersen hf.
Opin kerfi hf. keyptu 18,2% hlut í
Hans Petersen hf. og jafnframt keypti
Þróunarfélagið hf. 18,2% hlut í fyrirtæk-
inu. Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri
Opinna kerfa, fer inn í stjórn Hans Peter-
sen hf. ásamt Andra Teitssyni, fram-
kvæmdastjóra Þróunarfélagsins hf. Opin
kerfi hf. er 10 ára gamalt fýrirtæki, sér-
hæft í upplýsingatækni.
Kom það Frosta á óvart þegar boðinn
var hlutur til kaups í þessu gamalgróna
fyrirtæki?
Já, það kom á ^_
óvart. Annars vegar
höfum við séð Hans
Petersen sem traust
og gott íyrirtæki og
hins vegar sem hugs-
anlegan samstarfsað-
ila. Við vorum farin að
ræða við Hildi um
samstarf og því kom
hugsanlegt eignarhald
„Hans Petersen hf. er dæmi um
gott íslenskt fjölskyldufyrirtæki en í
Ijósi breyttra tíma er eölilegt aö þaö
fari á almennan hlutabréfamarkað
og breytist úr hefðbundnu fjöl-
skyldufyrirtæki í eftirsóknarvert fyr-
irtæki sem skráð er á Verðbréfa-
þingi íslands," segir Frosti.
saman. „Hewlett Packard er að koma
með nýja kynslóð af tölvubúnaði sem
getur verið áhugavert fyrir Hans Peter-
sen að selja, svo sem stafrænar mynda-
vélar, skanna og prentara. Með tilkomu
starfrænnar myndbandsupptökuvélar er
hægt að skoða hvern ramma fyrir sig í
tölvunni og velja ákveðinn myndramma.
Hann má síðan prenta út, í allt að plakat-
stærð. Fyrirtæki og einstaklingar eru
komin inn á Internetið með hreyfanlegar
myndir. Verð á nýjum tækjum hefur
lækkað verulega og því eru að opnast
nýir markaðir. Við metum það þannig að
hin heföbundna pappírsframköllun sé
alls ekki á undanhaldi heldur séu ný
notkunarsvið að opnast,“ segir Frosti.
Nú ferð þú í stjórn Hans Petersen hf.
sem fagnar 90 ára afmæli á þessu ári.
Hvernig finnst þér að fara inn í gamalgró-
__ ið fyrirtæki?
„Eg hef áður farið
inn í stjórn rótgróins
íyrirtækis. Eg tel að
hagsmunir okkar og
þeirra, sem fyrir eru í
hlutafélaginu, fari
saman. Aðalatriðið er
að menn starfi sam-
an og í sátt við þá
hluti sem er verið að
Bármál
gera. Markmiðið er að bæta reksturinn
og ná fram meiri arðsemi. í byrjun þarf
að marka skýra stefnu og ég ímynda mér
að gerð verði skráningarlýsing fyrir
Verðbréfaþingið þar sem framtíðarsýn
fyrirtækisins verður skilgreind fyrir
væntanlega hluthafa. Við horfum á arð-
semi eigin tjár og eiginfiárstaða Hans
Petersen hf. er mjög sterk. Byrjað verður
á að skipta fyrirtækinu í tvennt, annars
vegar rekstur fasteigna og hins vegar
rekstur fyrirtækisins til að ná upp betri
ávöxtun í rekstrinum á fyrirtækinu. Þeg-
ar fyrirtækið Hans Petersen hf. fer á op-
inn hlutafjármarkað kemur í ljós áhugi
almennings á bréfum í félaginu og það er
trú okkar að menn muni taka vel á móti
nýju fyrirtæki á Verðbréfaþingi og Hans
Petersen hf. eigi þangað fullt erindi,“
segir Frosti. 33
Lagermal eru okkar sergrein
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þekking - raðgjöl. Aratuga neynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Sfraaisg
Sundaborg 1 • 104 Rvk • Sími 568 3300 • Fax 568 3305
25