Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 43

Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 43
og bílamál, sitja eftir í minningu fólks. Fólki finnst skemmti- legra að ræða þau en hlusta á allt þetta þras sem tengist stórum mál- um. Ef ég ætti að ráð- leggja ungum mönnum, sem eru að byrja í póli- tík, þá væri það þetta: Reynið að hafa taum- hald á grallaranum í ykkur, gerið aldrei að gamni ykkar, verið alltaf grafalvarlegir, verið eins sviplausir og litlausir og þið mögulega getið. Það þykir traustvekjandi.” - Sumir hafa spurt sig að þvi hvers vegna þú sért jafri mikill Evrópusinni og raun ber vitni? Hvernig svarar þú þvi? „Eiginlega ættu menn að snúa spurningunni við. Hvers vegna í ósköpunum eru Islendingar ekki upp til hópa Evrópu- sinnar? Hvers vegna eru Islendingar eina þjóðin í gjörvallri Evr- ópu sem er ekki að ræða Evrópumál, málefni okkar álfú og okk- ar heimshluta? Hvernig stendur á því að Islendingar telja sjálf- um sér trú um að þeir geti staðið einir og sér utan slíks alls- heijabandalags lýðræðisþjóða í Evrópu sem er að verða til fyrir framan nefið á okkur? I þau ljögur ár, sem ég vann að EES- samningnum, fyrir hönd okkar Islendinga, kynntist ég dável innviðum Evrópsambandsins og út á hvað það gengi. Sú þekk- ing og reynsla leiddi til þeirrar rökréttu niðurstöðu að þegar við hugsum til framtíðar, um stað Islands í alþjóðavæddum heimi, eigum við auðvitað heima í Evrópusambandinu. í mínum huga Fjölskylda Jóns Baldvins hefur verið mjög í sviðs- ljósinu undanfarin ár. Hér eru þær mæðgur, Bryn- dís og Kolfinna. er ekki minnsti vafi á að þar verðum við - þótt sú tillaga verði hugsanlega ekki borin upp fyrr en á öðrum áratug næstu aldar og þá af Al- baníu eftir að hún verður ný- gengin inn - næstseinust þjóða. Þeir, sem þurfa að skýra sitt mál, eru þeir sem segja að innganga í Evrópusamband- ið sé ekki á dagskrá og drepa umræðu um það á dreif með þeim yfirborðs- legu sleggjudómum að Is- lendingar geti ekki séð þjóð- arhagsmunum sínum borgið í samningum við Evrópusam- bandið vegna fiskimiðanna. Það hafa aldrei verið færðar sönnur á það mál og ég er sannfærður um að það er ekkert hæft í því!” - Ert þú þá að segja að bæði Davíð Oddsson og Halldór As- grímsson hafi rangt fyrir sér þegar þeir segja að aðild að ESB komi ekki til greina vegna hagsmuna íslensks sjávarútvegs og aðgangs Evrópusambandsrílqa að íslenskum fiskimiðum? „Svarið við því fæst ekki fyrr en menn láta reyna á samn- inga. Það er hins vegar ákaflega handhægt í áróðri að slá þessu föstu; það höfðar til þjóðerniskenndarinnar að segja að það eigi að taka af okkur auðlindina. Evrópusambandið kemur þá í stað- inn fyrir Rússagrýluna sem óvinur er ógnar tilverurétti okkar. Eins og það standi til að taka af okkur auðlindina? Halda menn að Evrópusambandið semji við nýja aðildarþjóð, sem á efna- hagslega afkomu sína undir afrakstri auðlindar, og byrji á því taka auðlindina af henni? Kippa fótfestunni þar með undan við- komandi þjóð? Eg er sannfærður í þessu máli! En ég bið fólk 43

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.