Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 56
Hér er verið að þvo rútu í þvottaskýlinu við Hestháls.
* ****
er ekki með rekstur hópferðabíla. í sumar
voru um 70 bílar á skrá hjá fyrirtækinu. í vet-
ur eru skráðir bílar um 35.
Yfir veturinn sér Hópferðamiðstöðin um
skólaakstur fyrir Reykjavíkurborg og eru 12-
15 bílar í því verkefni. Daglega eru skólabörn
flutt úr Skerjafirði í Melaskóla, úr Suðurhlíð-
um í Hlíðaskóla og yst úr Grafarvogshverfi í
Rimaskóla. Að auki sér Hópferðamiðstöðin
um flutning barna í sund og leikfimi fyrir
ýmsa skóla.
Skólabörn í Rimaskóla njóta þjónustu Hópferðamiðstöðvarinnar en bílar fyr-
irtækisins aka þeim úr og i skólann.
Öhverjum degi flytja bílar Hópferða-
miðstöðvarinnar mikinn fjölda far-
þega í lengri eða skemmri ferðir.
Væru allir bílar stöðvarinnar ræstir út sam-
tímis gætu þeir flutt um 2000 manns í einu.
Iðulega flytja bílar Hópferðamiðstöðvarinnar
1000 til 1500 farþega á dag þegar haldnar
eru hér viðamiklar ráðstefnur og önnur stór
verkefni koma á sama tíma.
Hópferðamiðstöðin var stofnuð fyrir 20
árum og er einkahlutafélag 50 hluthafa. Þar
af eru um 30 aðilar með skráða bíla í af-
greiðslu stöðvarinnar. Hópferðamiðstöðin
annast, sem umboðsaðili, útleigu á bílum en
FRÁ 9 í 65 SÆTI
Þorleifur Þór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hópferðamiðstöðvarinnar, segir enn
miklar árstíðasveiflur í akstri hópferðabíla en
ferðamannavertíðin hafi þó lengst verulega.
Ánægjulegt er til þess að vita að nú sé verið
að taka á móti hópum í nokkurra daga ferðir
út um land allt fram í nóvember. Þar við bæt-
ast hefðbundnar helgarferðir allan veturinn.
„Við erum með umfangsmikla vinnu fyrir
ferðaskrifstofurnar auk almennrar hópferða-
þjónustu fyrir hvern þann sem þarf á rútum
að halda. Rúturnar eru frá 9 upp í 65 sæta
svo þær henta hvaða hóp sem er."
Hópferðamiðstöðin er með góða bíla í
þjónustu sinni „og við erum með einn nýleg-
asta bílaflotann á markaðnum. Því miður er
rekstrarumhverfi hópferðabíla þannig að það
leyfir ekki æskilega endurnýjun á bílum
nema menn eigi því stærri flota á bak við sig
sem getur borgað þá upp. Sé litið á bíl sem
sjálfstæða rekstrareiningu þá nær nýr bíll
HÓPFERÐAMIÐSTÓÐIN M
56
mzsEmmm