Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 76

Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 76
.. Listir mennin?. Til eru fra Guðný Magnúsdóttir og uppsveiflan í leirlistinni Hvað skyldu margir af lesendum Frjálsrar verslunar viljandi eða óviljandi hafa fest kaup á leirlistaverki hin síðari ár? Mér seg- ir svo hugur um að þeir séu ekki ýkja margir. Þó hefur íslensk leirlist sjaldan staðið betur en einmitt nú. Hins vegar virðast fáir hafa tekið eftir því, sennilega vegna langvarandi umræðu um til- vistarvanda myndlistarinnar í landinu. Lítum á stöðu mála. Haukur Dór, sem árum saman var leiðandi afl í íslenskri leirlist, hefur aftur tekið upp þráðinn eft- ir langvarandi glímu við aðra listmiðla. í smiðju sinni á Stokkseyri er hann farinn að móta og brenna hluti sem bera öll helstu höfundareinkenni hans. Þeir eru miklir í sér, jafnvel þeir minnstu, einfaldir útlits og mjúkir viðkomu, með yrj- óttum glerjungi sem minnir á vel legið portvín. Kolbrún Björgólfsdóttir, Kogga, hefur um árabil praktíserað hið ómögulega; að framleiða leirmuni og selja í stórum stíl í verslun sinni á Vesturgötunni, án þess að slá hætishót af þeim listrænu kröfum sem hún gerir til alls þess sem hún lætur frá sér fara. Sérhver hlutur sem Kogga framleiðir, hvort sem um er að ræða postulínseggin sem seld eru flugfarþegum yiir miðju Atlantshafi, eða metraháar standmynd- irnar sem hún gerir á nokkurra mánaða fresti, er gagnvandaður, stílhreinn og gæddur alveg sérstökum ljóðrænum þokka sem engum hefur tekist að líkja eftír, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ef marka má nýjustu verk Koggu er hún enn að bæta við sig. Meg- inatriði eru óbreytt og nánast orðin sígild, en i ýmsum smærri atriðum, til dæmis í meðferð yfirborðsmynsturs, hefúr hún aukið á skáldskap verka sinna. Minna hefur farið fyrir leirlist Kristínar Isleifsdóttur, sem nýtt hefur djúpstæða þekkingu sína á handverki og leirlist Japana tíl sköpunar á verkum þar sem blandast norrænt formskyn og hárfi'n blæbrigði af austurlenskum toga. I verkum sínum hefur Kristín m.a. tekið form ýmissa nytjahluta til endurskoðunar; hún hefur gert öskjur úr leir, óræða leirhlutí tíl handfjötlun- ar, meira segja kolla úr leir sem undirritaður lét tilleiðast að tylla sér á ekki alls fyrir löngu. Gú, takk, bara þægilegir.) Þær Kogga og Kristín eiga það sammerkt að vera á hátíndi síns listræna þroska. • nÁ vprða einn besti Gerðarsafn í Kóp“WfL rs</ningar hérlendis. vettvangur fynr leÍrl^nTKristínBogadóttir Og fyrst við erum að tala um hlédrægni leirlistamanna — sem er raunar allt of algengur kvilli í þeim hópi — þá er líka rétt að nefna tíl sögunnar listakonu sem heilsu sinnar vegna og flarlægð- ar frá Reykjavík hefur haft verk sín allt of litið í frammi. Hér á ég við Elísabetu Haraldsdóttur á Hvanneyri, fágaðan og fjöl- menntaðan kúnstner sem aldrei bregst vonum aðdáenda sinna, en á sennilega enn eftír að gera sín allra bestu verk. Þann 21. desember næstkomandi lýk- ur síðan sýningu í Gerðarsafni í Kópa- vogi sem markar nokkur þáttaskil í sögu íslenskrar leirlistar. Hér er um að ræða eins konar „comeback“ Guðnýjar Magnúsdóttur, sem um nokkurt skeið hefur mestmegnis verið “í öðru”, eins og sagt er, gallerírekstri, félagsmála- vafstri og ýmislegum tilraunum á vett- vangi almennrar höggmyndalistar. Með þessari sýningu er Guðný aftur kominn „heim í leirinn” færandi hendi. Ferill hennar er um margt lær- dómsríkur og skýrir að hluta hvers vegna leirlistin virðist eiga undir högg að sækja í íslensku listalífl. Lækkandi gengi leirsins Leirlistin er að sönnu ekki gömul og gróin á Islandi. Við get- um auðvitað rakið hana aftur til flórða áratugarins, til Guðmund- ar Einarssonar frá Miðdal og Listmunahússins, en hún varð ekki listræn hreyfing með sterkum persónu- og þjóðareinkennum fyrr en Gestur & Rúna, Ragnar Kjartansson, Steinunn Marteinsdótt- ir, Haukur Dór og Jónína Guðnadóttír koma til sögunnar. Sjötti og sjöundi áratugurinn eru blómaskeið íslenskrar leirlistar, en þá ræður ríkjum hið sígilda ílát — skálin, kerið, vasinn — viðfangs- efni leirlistamanna frá örófi alda og enn það viðfangsefni sem mestar kröfur gerir til þeirra sem vilja bijóta undir sig þetta ævaforna jarðefni. Upp frá því fór gengi leirlistarinnar lækkandi og var ekki síst um að kenna innílutningi á alls kyns ódýru leirlistlíki og skeytingarleysi íslenskra liststofnana um hlutverk og afdrif leirlistarinnar í landinu. Enn er ekki tíl sú menningarstofn- un íslensk sem telur sér skylt að saíha og hampa leirmun- um þeirra listamanna sem hér hafa verið nefndir. Nú voru góð ráð dýr. „If you can't beat 'em, join em” segir bandarískur orðskviður og urðu sumir leirlistamenn til að keppa við innflutt listlíki með ýmiss konar billegri leir- og postulínsvöru. Þeir eru enn að, sem er hluti af þeim fortíðarvanda sem við þurfum að kljást við í þessari grein. Sjálf- um þykir mér raunalegt að sjá hve litlar kröfur Guðný Magnúsdóttir og uþþsveiflan í leirlistinni 76
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.