Frjáls verslun - 01.11.2000, Qupperneq 17
OLGEIR KRISTJÓNSSON MAÐUR ÁRSINS
maður ársins
Framkvœmdaráð EJS. Frá vinstri: Katrín Rögn Harðardóttir, gœðastjóri, Páll Freystdnsson.framkvœmdastjóri þjónustu- og hugbúnaðarsviðs,
Guðný Benediktsdóttir, markaðsstjóri, Sigurður Grendal Magnússon, aðstoðarmaður forstjóra, Guðmundur Hannesson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri sölusviðs, Olgeir Kristjónsson, forstjóri, Hallgrímur Bergsson, fjármálastjóri, Helgi Þór Guðmundsson, eignastjóri og stjórnarformaður,
Snorri Guðmundsson, framkvœmdastjóri sölusviðs, Guðmundur Gunnlaugsson, aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustu- og hugbúnaðarsviðs.
Olgeir Kristjónsson, forstjóri EJS, er maður ársins 2000 í ís-
lensku atvinnulifi, að mati Frjálsrar verslunar. Hann hlýtur
þennan heiður fyrir einstakan árangur við stjórnun EJS en
hún er einkar vel útfærð, skipulögð og stefnuföst. Framtíðarsýn
fyrirtækisins og markmið eru sérlega skýr og metnaðarfull. Fyr-
irtækið er í fremstu röð íslenskra þekkingarfyrirtækja og í farar-
broddi i útflutningi á upplýsingatækni en vörustjórnunarkerfi fé-
lagsins, MMDS, er notað í hundruðum verslana í Ástraliu, Hong
Kong, Singapore, á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum.
Frjáls verslun óskar Olgeiri, eiginkonu hans, Rut Þorsteins-
dóttur, ijölskyldu og samstarfsmönnum til hamingju. Þremur
helstu meðeigendum hans í EJS til margra ára eru einnig færð-
ar hamingjuóskir, þeim Helga Þór Guðmundssyni, stjórnarfor-
manni EJS, Bjarna B. Ásgeirssyni og Erni Andréssyni.
Olgeir segir að hann líti fyrst og fremst á útnefninguna sem
heiður til handa samstarfsmönnum sínum. „EJS hefur á að
skipa afar drífandi og skemmtilegum starfsmönnum sem hafa
starfað hjá fyrirtækinu um árabil, en okkur hefur auðnast sú
gæfa að haldast vel á fólki. Starfsandinn byggist á vönduðum
vinnubrögðum og frjórri hugsun starfsmanna. Mitt hlutverk er
fyrst og fremst að virkja þennan hóp,“ segir Olgeir.
Eina tölvufyrirtækið með gæðavott-
un EJS er eina íslenska þekk-
ingarfyrirtækið sem er með gæða-
vottun á allri starfsemi sinni og er
sú vottun talin verða eitt beittasta
vopn fyrirtækisins í sölu á hug-
búnaði á næstu árum, bæði hér á
landi sem erlendis. Af 100 stærstu
fyrirtækjum landsins skipta um 40
við EJS, þeirra á meðal allir bank-
ar og stórverslanir. Fyrirtækið er
með allt hraðbankakerfið og þann hugbúnað sem keyrir það.
Á síðasta ári nam útflutningur EJS-samstæðunnar um 500 millj-
ónum króna af um 1,8 milljarða útflutningi alls tölvugeirans og
skákar þar keppinautum sínum. Á þessu ári verður útflutning-
urinn eitthvað lægri en gert er ráð fyrir að hann vaxi aftur þeg-
ar á næsta ári.
Hagnaður i tíu ár EJS hefur verið rekið með samfelldum
hagnaði síðustu tíu árin. Hagnaður EJS-samstæðunnar eftir
skatta á síðasta ári nam um 202 milljónum króna, sem jafngilti
6,3% af veltu. Efnahagur samstæðunnar er traustur og nam eig-
ið féð í lok ársins 1999 um 1.200 milljónum sem er meira en
gengur og gerist í þessum geira. Þetta eigið fé hefur að mestu
orðið til á síðustu átta árum.
Til stendur að skrá fyrirtækið á Verðbréfaþing á næstu
misserum en engu að síður eru hluthafar í því núna nálægt 700
talsins, þeirra á meðal flestir starfsmenn. Nafnverð hlutafjár er
389 milljónir króna. Sé horft til nýlegra viðskipta með bréf í fyr-
irtækinu á genginu 18 til 19 er markaðsverð þess yfir 7 millj-
arðar króna.
Stækka fótsporið EJS-samstæðan hefur á skömmum tíma
vaxið úr tveimur fyrirtækjum í tíu.
Starfsmönnum samstæðunnar
hefur á sama hátt fjölgað úr 170
starfsmönnum í um 380 sé miðað
við meirihlutaeign í dótturfélög-
unum. Þessi stækkun er þaul-
hugsuð og segir Olgeir að verið
sé að „stækka fótsporið" hér
heima svo hægt sé að taka stærra
og markvissara skref á erlendum
mörkuðum. m
17